Fleiri fréttir

Kaldasti desember í hálfa öld gæti fylgt einum hlýjasta nóvember í sögunni
Horfur eru á að desember gæti orðið sá kaldasti á landinu í tæp fimmtíu ár. Meðalhitinn á landinu í nóvember var sá hæsti frá upphafi mælinga. Um átta gráða sveifla gæti orðið á meðalhitanum í Reykjavík á milli nóvembers og desembers.

Framlengja samning um siglingar í Hrísey vegna tafa á útboði
Vegagerðin hefur framlengt samning við Andey ehf. um að halda uppi siglingum milli Hríseyjar og Árskógasands næstu þrjá mánuði, eða til 31. mars 2023.

Erfið akstursskilyrði á Hellisheiði og í Þrengslum á aðfangadag
Útlit fyrir snjókomu á Hellisheiði, Þrengslum og Suðurlandi austur að Eyjafjöllum í fyrramálið og fram á annað kvöld.

Ófögur reynslusaga af samskiptum við leigufélagið Ölmu
Katrín María Blöndal hefur hörmungasögu að segja af samskiptum sínum við leigufélagið Ölmu sem hefur verið mjög í deiglunni að undanförnu vegna hækkunar á leigu og hörku í samskiptum við leigjendur sína. Katrín María telur einsýnt að þar á bæ sé hugsað um eitt og aðeins eitt; að græða á þeim sem minna mega sín.

Sakaði nágrannana um að hafa klippt runnana of mikið og eyðilagt þá
Kærunefnd húsamála metur það sem svo að hafna beri kröfum eiganda íbúðar í fjölbýlishúsi að aðrir eigendur í húsinu skuli greiða kostnað við að fjarlægja runna og gljámispil í sameiginlegum garði. Sá sakar nágrannana um að hafa klippt þá of mikið á garðvinnudegi í maímánuði þannig að þeir skemmdust.

Líkamsárás, eignaspjöll og tilraun til snjósleðaþjófnaðar
Tveir voru vistaðir í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt í kjölfar líkamsárásar og eignaspjalla. Þá var lögregla kölluð til vegna ágreinings og mögulegra skemmdarverka.

Stefán nýr dómari við endurupptökudóm
Stefán Geir Þórisson hefur verið skipaður í embætti dómara við endurupptökudóm frá og með 1. febrúar næstkomandi. Stefán hefur frá ársbyrjun 2021 verið varadómari við dóminn.

Búið að moka úr skýlinu við Keflavíkurflugvöll
Búið er að ryðja skýli við Keflavíkurflugvöll sem farþegar nota til að ganga í átt að flugstöðinni frá langtímabílastæðum flugvallarins. Unnið er að því að klára að ryðja önnur svæði sem eru mikilvæg fyrir aðkomu og þjónustu á vellinum.

Þarf að prjóna á hjólastólnum til að komast í búðina
Íbúi í Kópavogi sem notar hjólastól kvartar yfir mokstri við verslanir í Hamraborg og Fannborg í Kópavogi. Til að komast í verslun Krónunnar í Hamraborg þarf hún að prjóna á afturdekkjum hjólastólsins.

Reyndu allt til að halda veginum opnum við fordæmalausar aðstæður
Vegamálastjóri telur að ekki hafi verið hægt að koma í veg fyrir lokun Reykjanesbrautar þegar óveðrið gekk yfir í vikunni en mögulega hefði verið hægt að opna fyrr. Vegagerðin skoðar nú hvort og þá hvað hefði mátt fara betur en um hafi verið að ræða fordæmalausar aðstæður.

Miður sín yfir minkafaraldri
Mikið minkafár hefur verið í Mosfellsbæ á síðustu vikum en íbúar eru uggandi yfir fjölda minka í bænum sem hafa valdið talsverðum usla. Minkarnir hafa drepið hænur og dúfur og minkabóndi á Dalsbúi í Mosfellssveit segist miður sín.

Afturvirkni samninga gæti verið í hættu dragist þeir á langinn
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að erfitt gæti reynst að semja um afturvirkni samninga við Eflingu dragist gerð nýs kjarasamnings fram yfir áramót. Formaður Eflingar segir furðulegt ef refsa eigi eflingarfólki fyrir öfluga kjarabaráttu.

Bandaríkjamaður beit lögreglumann á Hverfisgötu
Bandarísku karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir að hóta lögreglumönnum, reyna að bíta lögreglumann og fyrir að bíta annan lögreglumann. Lögreglumaðurinn sem var bitinn hlaut yfirborðsáverka.

Krakkar oft komnir lengra en fagfólk í kynfræðslu
Samræma þarf kynfræðslu í grunnskólum og gera hana betri að mati fagstjóra heilsuverndar skólabarna. Nauðsynlegt sé að uppfæra hana því oft séu krakkarnir komnir mun lengra en fagfólk. Hún segir slæmt að nánast engin kynfræðsla sé á leikskóla-og framhaldsskólastigi.

Vél á leið til Ísafjarðar þurfti að snúa við vegna bilunar
Flugvél á vegum Mýflugs þurfti snúa við er hún var á leið til Ísafjarðar vegna tæknilegra örðugleika. Vélin lenti heilu og höldnu á Akureyrarflugvelli en hættustig var virkjað á vellinum vegna atviksins. Þrír voru um borð í vélinni.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Erla Bolladóttir segist loksins vera frjáls eftir að hafa í dag fengið afsökunarbeiðni og bætur frá stjórnvöldum. Viðurkenningin á ranglætinu sé henni þó mikilvægust.

Lopaskortur á Íslandi: „Ekkert lúxusvandamál“
Handóðir prjónarar og annað hannyrðafólk hefur líklega ekki farið varhuga af lopaskorti sem ríkir á landinu. Framkvæmdastjóri Ístex segir að fyrirtækið anni hreinlega ekki eftirspurn. Það sé hinsvegar ekki lúxusvandi heldur raunverulegt vandamál.

Skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu ráðuneytisstjóra
Sigurður Kári Árnason hefur verið skipaður í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu af heilbrigðisráðherra.

Ólykt sem herjar á íbúa Hafnarfjarðar veldur höfuðverk og ógleði
Megn ólykt herjar nú á íbúa Hafnarfjarðar. Fjölmargir íbúar hafa kvartað yfir lyktinni á samfélagsmiðlum, sem minnir á bensín-eða olíulykt. Fréttastofu hafa borist ábendingar um að fólk finni fyrir höfuðverk og ógleði vegna þessa. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlitsins segir stofnunina leita logandi ljósi að skýringum og það sé áhyggjuefni ef hreinsiefni kunni að hafa borist í skólplagnir.

Vantaði 26 snjómoksturstæki á götuna fyrst eftir snjókomuna
Borgaryfirvöld kanna nú hvers vegna undirverktakar með samning um viðbótarmokstursþjónustu við borgina hafi ekki verið tilbúnir fyrsta sólarhringinn eftir að mikla snjókomu gerði í síðustu viku. Tuttugu og sex tæki vantaði á göturnar vegna þess.

Best sé að sleppa alveg flugeldunum
Umhverfisstofnun hvetur landsmenn til að sleppa flugeldum alveg eða stilla notkun þeirra verulega í hóf. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stofnunarinnar.

Nafn mannsins sem leitað var í Þykkvabæjarfjöru
Leit að Renars Mezgalis hefur verið hætt. Hans hefur verið saknað frá 15. desember síðastliðnum. Bifreið hans fannst í flæðarmálinu í Þykkvabæjarfjöru daginn eftir og talið er að hann hafi lent í sjónum þar og sé látinn.

Mikilvægt að farþegar leiti réttar síns
Raskanirnar á flugferðum í vikunni höfðu áhrif á tugi þúsunda farþega og er enn verið að vinna í því að koma hlutunum í eðlilegt horf. Samgöngustofa og Neytendasamtökin hafa fengið fjölmargar fyrirspurnir frá farþegum vegna bóta. Farþegar eigi alltaf rétt á ákveðinni þjónustu og jafnvel skaðabótum, þó það sé meira álitsefni.

Erla fagnar sáttum 46 árum eftir varðhaldið langa
Erla Bolladóttir segir táknrænt að ná sáttum við íslenska ríkið í dag. Nákvæmlega 46 ár eru síðan hún var látin laus úr gæsluvarðhaldi.

Tíu nýir framkvæmdastjórar ráðnir á Landspítala
Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, hefur tekið ákvörðun um val á framkvæmdastjórum í nýja framkvæmdastjórn spítalans. Alls bárust 41 umsókn um tíu störf framkvæmdastjóra. Þrír umsækjendur drógu umsókn sína til baka.

Erla fær 32 milljónir króna í miskabætur
Íslenska ríkið hefur gert samkomulag við Erlu Bolladóttur vegna gæsluvarðhalds sem hún sætti í tengslum við hvarf þeirra Guðmundar og Geirfinns. Erla fær 32 milljónir króna í miskabætur vegna 232 daga gæsluvarðhalds.

Minkafaraldur í Mosfellsbæ: „Þetta eru úlfar í sauðagæru“
Minkar sem sloppið hafa úr minkabúi í Helgadal herja nú á íbúa Mosfellsbæjar. Síðustu daga hafa minkar drepið fjölmargar hænur og dúfur. Íbúar hafa áhyggjur af stöðunni, af því að minkarnir ráðist á gæludýr og þeir kynnu að fara ofan í barnavagna.

Samgönguinnviðir hafi ekki verið byggðir upp á sama hraða og flugstöðin
Formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis telur mögulegt að samgöngur að Keflavíkurflugvelli hafi ekki verið byggðar upp á sama hraða og flugstöðin sjálf. Auka þurfi eftirlit og koma á fót skýrum verkferlum. Mikilvægt sé að staðan sem kom upp vegna lokun Reykjanesbrautar fyrr í vikunni komi aldrei upp aftur.

Varðhaldskröfu í hryðjuverkamáli hafnað vegna vafa um ásetning
Tveir karlmenn á þrítugsaldri þurfa ekki að sæta gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa skipulagt hryðjuverk. Landsréttur staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis í dag. Landsréttur setur spurningamerki við hvort ásetningur hafi verið fyrir hendi hjá mönnunum tveimur.

Bæjarstjórinn í Vogum hneykslaður og svarar Landsneti fullum hálsi
Sveitarstjóri í Vogum segir fráleitt að þurfa að sitja undir því að Landsnet grafi undan faglegri og lögbundinni stjórnsýslu. Framkvæmdastjóri Landsnets segir seinagang í Vogum skila sér í töpuðum tækifærum og jafnvel milljörðum króna.

Segir víða hægt að spara meira
Fjármálaráðherra hefur óskað eftir því að opinberar stofnanir ráðist í umbætur til að hagræða í rekstri. Hann vonar að nýjar lausnir leiði til þess að í einhverjum mæli að ekki þurfi að ráða í stað þeirra sem hætta. Mjög víða megi gera betur.

„Það var ekki mikill hljómgrunnur fyrir okkar sjónarmiðum“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að Samtök atvinnulífsins hafi ekki fallist á það tilboð sem Efling hafði gert þeim. Það hafi verið niðurstaða fundarins sem fram fór í húsnæði ríkissáttasemjara í morgun. „Það var ekki mikill hljómgrunnur fyrir okkar sjónarmiðum,“ segir Sólveig Anna.

Tilboð Eflingar gæti aldrei orðið grundvöllur kjarasamnings
Framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins segir að tilboð sem Efling kynnti í dag sé ekki í neinu samræmi við þá línu sem lögð hefur verið í kjaraviðræðum undanfarið. Það gæti aldrei orðið grundvöllur kjarasamninga.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum fjöllum við um eftirstöðvar óveðursins sem setti ferðaplön tugþúsunda úr skorðum. Við fylgjumst með samningafundi Eflingar og SA sem fram fór í karphúsinu í morgun og þá heyrum við í Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra um sparnað hjá hinu opinbera.

Deildu um „vinnuleti“ þegar tillaga um að fella niður borgarstjórnfund var felld
Umræður um „vinnuleti“ spruttu upp í borgarstjórn Reykjavíkur þegar þrír borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði gegn tillögu forsætisnefndar um að fella niður borgarstjórnarfund sem er á dagskrá á þriðja degi nýs árs.

Segir engan í áskrift að mataraðstoð
Formaður Fjölskylduhjálpar Íslands segir engan í áskrift að mataraðstoð í svari til manns sem gagnrýndi að samtökin myndu ekki aðstoða úkraínskar fjölskyldur á Selfossi frekar á árinu.

Sólveig Anna segir Eflingu hafa komið til móts við SA en vill meiri hækkanir
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að félagið hafi komið til móts við Samtök atvinnulífsins með nýju samningstilboði sem kynnt var í gær. Hún segir þó alveg ljóst að verka- og láglaunafólk á höfuðborgarsvæðinu þurfi meiri hækkanir en samið hafi verið um í samningum við Starfsgreinasambandið.

Íbúar Íslands 467 þúsund árið 2073
Íbúar Íslands verða 467 þúsund árið 2073 samkvæmt nýrri mannfjöldaspá Hagstofunnar.

Lögreglan afhenti innbrotsþjófi þýfið þegar hann var leystur úr haldi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu afhenti innbrotsþjófi í miðbænum það góss sem hann hafði stolið þegar verið var að leysa hann úr haldi. Íbúi í húsinu þar sem hann var gómaður segir málið hlægilegt en vonar að þjófurinn njóti þess litla sem hann hafði úr krafsinu.

Skýli fullt af snjó við Keflavíkurflugvöll
Skýli sem ætlað er til þess að ferðamenn geti gengið í gegnum á leið sinni frá langtímabílastæði Keflavíkurflugvallar að flugstöðinni er enn troðfullt af snjó. Upplýsingafulltrúi Isavia segir það vera á dagskrá að fjarlægja snjóinn.

„Það vildi enginn vinna með ykkur“
Snjómokstur Reykjavíkurborgar var til umræðu í Kastljósi kvöldsins á RÚV. Mörgum finnst borgin ekki hafa staðið sig í stykkinu við mokstur og söltun gatna. Til viðtals voru Einar Þorsteinsson, starfandi borgarstjóri, og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, en athygli vakti þegar Einar sagði engan annan borgarstjórnarflokk hafa viljað vinna með Sjálfstæðisflokki eftir kosningar í vor.

Blindur maður fórnarlamb mansals og vistaður á Hólmsheiði
Erlendur blindur karlmaður hefur setið í gæsluvarðhaldi í fangelsinu á Hólmsheiði í um það bil mánuð. Hann talar hvorki íslensku né ensku. Í dag var honum afhent tæki sem gerir dvölina aðeins auðveldari. Formaður Afstöðu, félags fanga og annarra áhugamanna um fangelsismál og betrun, þakkar starfsmönnum á Hólmsheiði og samföngum mannsins kærlega fyrir að auðvelda honum lífið á meðan hann hefur dvalið í fangelsinu.

Vikulangt jólafrí Hagstofunnar skjóti skökku við
Hagstofa Íslands hefur ákveðið að veita starfsmönnum sínum aukalega vikulangt jólafrí. Hagstofan verður lokuð á milli jóla og nýárs. Hagfræðingur Samtaka atvinnulífsins segir fríið koma spánskt fyrir sjónir í ljósi aðstæðna á opinberum vinnumarkaði.

Vill hafa Reykjavíkurflugvöll til taks fyrir millilandaflug
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis kemur saman til sérstaks aukafundar í fyrramálið, að ósk Njáls Trausta Friðbertssonar, til að ræða það öngþveiti sem skapaðist vegna lokunar Reykjanesbrautar. Innviðaráðherra, sem kemur á fund þingnefndarinnar, segir ástandið hafa verið óásættanlegt og Njáll Trausti vill skoða beint millilandaflug frá Reykjavík.

„Við getum talað um misskilning þegar þetta gerist bara einu sinni“
Stjórnarkona í Samtökum kvenna af erlendum uppruna á Íslandi telur augljóst að Fjölskylduhjálp á Reykjanesi hafi mismunað fólki og segir framkomu þeirra bæði ólöglega og viðbjóðslega. Samtökin krefjast þess að stjórn Fjölskylduhjálpar segi af sér og aðrir með manneskjulegri nálgun taki við.