Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Á Kayak hringinn í kringum landið Ísraelsk kona lýkur brátt ferð sinni á Kayak hringinn í kringum landið. Hún kom til Reykjavíkur í dag en þetta er í fyrsta skipti sem einstaklingur rær einn síns í liðs í kringum landið á Kayak . 24.7.2006 20:01
Áttu ekki krónu en keyptu fyrir milljónir Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja átti ekki krónu þegar ákvörðun var tekin um að kaupa Íslensk matvæli fyrir eitthundrað og þrjátíu milljónir. Stofnfjáreigendur félagsins borguðu ekki krónu fyrr en rúmum mánuði seinna og helmingur stofnfjárins skilaði sér aldrei. 24.7.2006 18:57
Þrír hafa látist í bifhjólaslysum í ár Þrír hafa látist í bifhjólaslysum á árinu. Mótorhjólalögreglumaður telur aukna vélhjólaeign, vaxandi umferð og slæma vegi eiga sinn þátt í slysunum. Hjólafólk ætlar að hittast á fundi í vikunni og fara yfir umferðaröryggismál. 24.7.2006 18:45
Nærri fimm hundruð með endurvinnslutunnu Á fimmta hundrað endurvinnslutunna frá Gámaþjónustunni eru í notkun á höfuðborgarsvæðinu en farið var að bjóða upp á þessa þjónustu í desember. Það sem fer í tunnurnar er ekki grafið í jörð heldur selt til Hollands. 24.7.2006 18:45
Létust í umferðarslysum Maður lést af áverkum sínum aðfaranótt sunnudags eftir að hafa orðið fyrir bíl á Strandvegi skammt frá Hólmavík, á laugardagskvöld. Hann hét Þórður Björnsson til heimilis að Skólabraut 5 Seltjarnarnesi. Þórður var fæddur árið 1922. Hann lætur eftir sig sex uppkomin börn. Á sjöunda tímanum í gær lést ungur maður þegar hann missti stjórn á vélhjóli sínu á Suðurlandsvegi við brúnna yfir Eystri- Rangá. Hann hét Birkir Hafberg Jónsson til heimilis að Öldubakka 19 á Hvolsvelli. Birkir var 26 ára gamall, ókvæntur og barnlaus. 24.7.2006 18:29
Litbyssumenn fremja skemmdarverk Skemmdarverk voru unnin á útivistarsvæðinu í Sólbrekkuskógi við Seltjörn á Reykjanesi um helgina. Búið er að brenna útikamar til kaldra kola, og skjóta úr litboltabyssum á eignir svo litaklessur og taumar eru um allt. 24.7.2006 17:22
Tafir á flugi Tafir urðu á flugi til og frá landinu um helgina þegar flugumferðastjórar tilkynntu sig veika og enginn fékkst til að koma á aukavakt. Deilan vegna óánægju flugumferðarstjóra með nýtt vaktaplan er enn óleyst. 24.7.2006 16:39
Gert að sveigja reglur um áhættudreifingu Fyrrverandi stjórnarformaður Byggðastofnunar segir ríkisstjórnina hafa fyrirskipað að sveigja reglurnar um áhættudreifingu, þegar Eignarhaldsfélag Vestmanneyja var keypt. Og endurskoðunarfyrirtækið Deloitte og Touche staðfesti á stofnskjali Eignarhaldsfélagsins að allt stofnfé hefði verið greitt. En helmingur fjárins skilaði sér ekki. 24.7.2006 15:33
Sænsk ræðisskrifstofa í Húsavík Utanríkisráðuneyti Svíþjóðar hefur ákveðið að stofna sænska ræðisskrifstofu í Húsavík. Þórunn Harðardóttir leiðsögumaður hefur verið skipuð heiðursræðismaður fyrir sveitarfélögin Norðurþing og Akureyri. Útnefning Þórunnar verður kunngerð af sænska sendiherranum Madeleine Ströje Wilkens á Húsavík í dag um leið og Sænskum dögum verður hleypt af stokkunum. 24.7.2006 15:23
Kátir biskupar Hólabiskupar til forna voru höfðingjar heim að sækja, miðað við veislusal sem kom úr kafinu, rétt í þann mund sem fornleifafræðingar voru að ljúka uppgrefti á hinu forna biskupssetri þetta sumar. 24.7.2006 14:50
Áfengissala eykst Velta í dagvöruverslun var fimm komma þremur prósentum meiri í júní síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra, miðað við fast verðlag. Þetta kemur fram í smásöluvísitölu sem reiknuð er af rannsóknarsetri verslunarinnar við Viðskiptaháskólann á Bifröst. 24.7.2006 14:47
Truflanir á vefþjónustu Truflun verður á vefþjónustu Veðurstofu Íslands vegna vinnu við raflagnir í kvöld klukkan 18:30. Í fréttatilkynningu frá Veðurstofunni segir að ætlunin sé að vinnu verði lokið í síðasta lagi klukkan 22:00 og vefþjónustan verði þá komin í samt horf. Beðist er er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur í för með sér. 24.7.2006 12:59
Óvíst með nýtingu olíutanka í Helguvík Mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins NATO hafði ný fallist á að íslensk olíufélög fengju afnot af olíumannvirkjunum í Helguvík, til að þurfa ekki að aka öllu flugvélaeldsneyti frá Reykjavík, þegar Varnarliðið tilkynnti um brottför sína og málið fór í uppnám. 24.7.2006 12:30
Eftirlit verður haft með eignum Varnarliðsins Utanríkisráðuneytið hefur, fyrir hönd Varnarliðsins, auglýst eftir verktökum til að annast viðhald og eftirlit með eignum Atlantshafsbandalagsins á Keflavíkurflugvelli, eftir að Varnarliðið fer í haust. Varnarlilðið sjálft hefur hins vegar ekki óskað eftir eftirliti með sínum eignum. 24.7.2006 12:00
Neyðarkall barst frá olíulausum bát Vaktstöð siglinga barst neyðarkall frá erlendum bát, Sylvia Dawn, um sjöleitið í morgun en báturinn varð olíulaus skammt undan Dyrhólaey í Vík í Mýrdal. Björgunarsveitin Víkverji fór á björgunarbát áleiðis að bátnum með olíu og var kominn að honum laustyrir klukkan tíu. Engin hætta var á ferðum en rólegt og gott veður er á þessu slóðum. 24.7.2006 10:48
Um 20.000 ferðamenn hafa siglt á Jökulsárlóni í sumar Um 20.000 manns hafa farið í bátsferðir um Jökulsárlón á Breiðamerkursandi það sem af er sumri en það er svipaður fjöldi og á sama tíma í fyrra. Á laugardaginn sigldu 815 ferðamenn og er það metdagur sumarsins. Þar af voru um hundrað manns á vegum starfsmannafélags Skinneyjar-Þinganes. Fjórir hjólabátar eru nú nýttir í ferðir út á Jökulsárlónið. 24.7.2006 10:33
Tæplega 2.000 gestir á Þórbergssetur Hátt á annað þúsund gestir hafa komið á Þórbergssetur á bænum Hala í Hornafirði í þær tæpu þjár vikur sem safnið hefur verið opið. Safnið var opnað í byrjun þessa mánaðar en það er tileinkað Þórbergi Þórðarsyni rithöfundi. 24.7.2006 09:30
Húsavíkurhátíðin sett í dag Meistarakokkur sænska sendiráðsins mun gleðja Húsvíkinga og gesti með eldamennsku sinni á Húsavíkurhátíðinni sem verður sett í dag með pompi og prakt. Fréttavefurinn Skarpur.is greinir frá því að kokkurinn muni reiða fram sænska rétti á veitingastaðnum Gamla Bauk á morgun og fram á fimmtudag. Mærudögum og Sænskum dögum hafi nú verið steypt saman og munu hátíðarhöldin standa út vikuna. Líkt og nærri má geta verða fjölmargar uppákomur, sænskar sem og íslenskar. 24.7.2006 09:15
Ölvaðir ökumenn gerðu óskunda í Grafarvogi Tveir ölvaðir ökumenn óku aftan á tvo bíla í Grafarvogi með nokkurra klukkusutnda millibili í gærkvöldi. Báðir stungu af frá vettvangi, en náðust báðir heima hjá sér, samkvæmt ábendingum ökumanna bílanna, sem þeir óku á. Hvorugur þeirra meiddist og hvorugur ölvuðu ökumanna heldur, en þeir voru báðir handteknir á heimilum sínum og gista báðir fangageymslur þar til yfirheyrslur yfir þeim hefjast. 24.7.2006 09:00
Húsnæðisvelta fer minnkandi Húsnæðisveltan á höfuðborgarsvæðinu í þar síðustu viku var rúmlega 3,1 milljarður, sem er hátt í milljarði minni velta en að meðaltali síðustu tólf vikurnar þar á undan. Meðaltal þeirra vikna er líka orðið talsvert undir meðaltali jafnlengdar á fyrstu mánuðum ársins. Aðeins 116 kaupsamningum var þingslýst á höfuðborgarsvæðinu í vikunni, sem er 44 samningum undir meðaltali síðustu tólf vikna. 24.7.2006 08:38
Norskt fiskiskip hrekst undan hafís Hafís er norðvestur af landinu og hefur norskt fiskiskip, sem hefur verið að veiðum við Grænland, hrakist undan honum inn í íslenska lögsögu. Ekkert er þó að um borð. Vitað er um hafís um 65 sjómílur norðvestur af Barðaq, á milli Önundarfjarðar og Dýrafjaðrar á Vestfjörðum, en skipum á venjulegum siglingaleiðum umhverfis landið stafar engin hætta af honum. Ísinn hefur ekki verið kannaður úr lofti. 24.7.2006 08:30
Karlmaður lést í bifhjólaslysi Karlmaður á þrítugsaldri lést þegar hann missti stjórn á vélhjóli sínu við brú yfir Eystri Rangá á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Hjólið hafnaði í ánni en maðurinn á árbakkanum, og var hann látinn þegar bjrögunarmenn komu á vettvang. Tildrög slyssins eru óljós og segir lögregla ekkert benda til að maðurinn hafi ekið ógætilega. Þetta er ellefta banaslysið í ár en það tíunda varð þegar karlmaður á níræðisaldri varð fyrir bíl skammt frá Hólmavík í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að hann lést í fyrrinótt. 24.7.2006 08:03
Fjárfesting félagsins stórkostleg mistök Forstjóri Byggðastofnunar segir stórkostleg mistök hjá Eignarhaldsfélagi Vestmannaeyja að eyða öllu sínu fé í eitt fyrirtæki. Fyrrverandi stjórnarformaður félagsins segir auðvelt að vera vitur eftir á, kaupin hafi þótt góð á sínum tíma. 24.7.2006 07:45
Reynir annað „Ég óskaði sjálfur eftir að hætta og geri það í góðu en ég vil ekki tjá mig um hvað við tekur að sinni,“ segir Reynir Traustason blaðamaður, en hann er hættur störfum sem ritstjóri Mannlífs. 24.7.2006 07:45
Tólf sækja um embættið Tólf umsóknir bárust um embætti sveitarstjóra í Norðurþingi. Norðurþing varð til við sameiningu Raufarhafnarhrepps, Öxarfjarðarhrepps, Kelduneshrepps og Húsavíkurbæjar. 24.7.2006 07:30
Atvinnuveiðar á hrefnu hefjast hugsanlega á næsta ári Meginmarkmið rannsóknaráætlunarinnar, sem felur í sér veiðar á 200 hrefnum, er að afla grunnþekkingar á fæðuvistfræði hrefnu hér við land en auk rannsókna á fæðusamsetningu með greiningu magainnihalds verður aflað annarra gagna sem nauðsynleg eru til að meta afrán tegundarinnar á hinum ýmsu fæðutegundum. 24.7.2006 07:30
Flutu 30 metra niður Krossá Fimm sluppu óslösuð þegar pallbíll þeirra festist í Krossá í Þórsmörk í gær. Bíllinn lenti ofan í hyl, flaut upp og með straumnum um þrjátíu metra niður ána. Þar skorðaðist hann fastur og vatn braut yfir. Fólkinu tókst að klifra upp á þak bílsins og var þaðan bjargað, af björgunarsveit Landsbjargar. Skálaverðir í Húsadal drógu bílinn upp. 24.7.2006 07:15
Látinn vinna launalaust Veitingahús í Reykjavík auglýsti eftir starfskröftum á dögunum. Maður sem sótti um starf var beðinn að vinna einn vinnudag til reynslu og fá ekkert greitt fyrir. Kolólöglegt athæfi, segja stéttarfélögin. 24.7.2006 07:15
Leit á keflavíkurflugvelli einungis á sviði lögreglu Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar réði inn starfsmenn frá öryggisþjónustum til að aðstoða við öryggisleit á vellinum þegar bregðast þurfti skjótt við athugasemdum eftirlitsstofnunar Evrópska efnahagssvæðisins um skort á flugvernd. Þykir mörgum þetta skref í átt að einkavæðingu öryggisgæslu á vellinum. 24.7.2006 07:15
Segir farið með hálfsannleik Félag íslenskra flugumferðastjóra sýnir af sér ótrúlega óbilgirni að láta í veðri vaka að Flugmálastjórn hafi skellt á nýju vaktakerfi án samráðs við starfsmenn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri flugumferðarsviðs Flugmálastjórnar Íslands, hefur sent frá sér vegna ummæla stjórnar Félags íslenskra flugumferðarstjóra um vaktakerfisbreytingu sem gerð var 16. mars síðastliðinn. 24.7.2006 07:00
Það geta allir tekið þátt í þróunarhjálp Þær Margrét Þóra Einarsdóttir og Guðrún Blöndal hafa hleypt af stokkunum fjáröflun fyrir munaðarlaus og fötluð börn í Mapútó í Mósambík undir yfirskriftinni Gerum eitthvað gott - gerum það saman. Í Mapúto er rekin Mutanyana Weru miðstöðin fyrir þessi börn og mun ágóði verkefnisins renna til kaupa á húsgögnum og öðrum nauðsynjum inn í nýtt húsnæði hennar. 24.7.2006 07:00
Banaslys við Eystri-Rangá Banaslys varð síðdegis í gær á Suðurlandsvegi við Eystri-Rangá. Karlmaður á þrítugsaldri sem var á leið austur á mótorhjóli missti stjórn á hjólinu vestan megin við brúna yfir ána og lenti á rörstokki. Talið er að maðurinn hafi látist samstundis, en hann lenti við bakka árinnar og hjólið kastaðist út í ána. Lögregla telur ekki að um hraðakstur hafi verið að ræða. 24.7.2006 07:00
Aukin samvinna við Norðmenn Siglingastofnun Íslands og Kystverket, systurstofnun hennar í Noregi, hafa ákveðið að taka upp aukna samvinnu við vöktun skipaumferðar á hafsvæðinu milli Noregs og Íslands. Þá munu stofnanirnar skiptast á upplýsingum um veðurfar og sjólag á hafsvæðinu. 24.7.2006 07:00
Rýmt verði fyrir íbúðabyggð Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi síðastliðinn fimmtudag að stofna verkefnisstjórn, sem skal láta athuga framtíðarstaðsetningu olíubirgðastöðvarinnar í Örfirisey. Í kjölfarið verði svo athugað hvort betra væri að hafa stöðina í Hvalfirði eða á Grundartanga. Einnig verður skoðað hvort henti að flytja olíu svo langa leið frá nýrri stöð inn í höfuðborgina. 24.7.2006 06:45
Huglægt hver er hryðjuverkamaður Þó að margir stjórnmálamenn telji það auðvelt hafa fræðimenn ekki náð samstöðu um hver getur talist hryðjuverkamaður. Vandinn felst aðallega í því að erfitt er að skilgreina hver sé munurinn á hermanni, skæruliða og hryðjuverkamanni. Slíkt mat getur farið eftir pólitískum tilgangi þess sem skilgreinir eða hugsunargangi á hverjum tíma, að sögn Vísindavefs Háskóla Íslands. 24.7.2006 06:45
Stakk af undir áhrifjum lyfja Maður um þrítugt var handtekinn í gær á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar fyrir ofsaakstur og grun um að aka undir áhrifjum lyfja. 24.7.2006 06:45
Er afskaplega mikill bóhem „Efst á baugi er nýliðin helgi, við vorum að spila á föstudag og laugardag, það var afskaplega gaman. Ég var að spila á Players í Kópavogi og á Traffic í Keflavík í gær,“ segir Tómas Tómasson, bassaleikari Stuðmanna. „Við erum að spila núna alveg hverja helgi, fram til 26. ágúst, þá eru Stuðmenn komnir í frí og enginn veit hvað gerist.“ Spurður hvað hann ætli að gera í fríinu segist Tómas búast við því að fara til Grikklands. „Ég hef komið þangað áður en ég ætla að reyna að fara til Krítar núna“. 24.7.2006 06:30
Meðferðarúrræði úr takt við tímann Endurskipuleggja þarf meðferð fyrir geðsjúka, að mati Elínar Ebbu Ásmundsdóttur, meðlims Hugarafls. Hún er þeirrar skoðunar að skerða eigi þá starfsemi sem nú er í höndum geðdeildar LSH og byggja upp önnur úrræði fyrir geðsjúka. 24.7.2006 06:30
Töldu lögreglumenn vera farsímaþjófa Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru í Héraðsdómi Reykjaness dæmdir í sektir og fangelsi fyrir líkamsárás, eignaspjöll og þjófnaði. 24.7.2006 06:15
Vill einfalda skattlagningu Forstjóri Haga vill að skattlagning matvæla sé aðeins í formi virðisaukaskatts og að vörugjald verði fellt niður. „Ég tel að það sé eðlilegt að skatturinn sé tekinn bara á einum stað og það sé virðisaukaskattur,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga. Nýlega kom út skýrsla nefndar á vegum forsætisráðherra um orsök hás matvælaverðs. Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að matarreikningur meðalfjölskyldu geti lækkað um allt að 130.000 krónur ef farið verði að öllum tillögum hennar. 24.7.2006 06:15
Kristilegu kærleiksblómin spretta Nokkur umræða er nú sprottin upp um hugsanlegt samstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar og sýnist sitt hverjum um ágæti þeirra hugmynda. Í öllu falli sýna skeytasendingar milli forystumanna þessara flokka ekki mikinn samstarfshug; þannig andar greinilega heldur köldu milli þeirra Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra og Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingar 24.7.2006 06:00
Mávavandinn Mávar eru farnir að gera mörgum íbúuum höfuðborgarsvæðisins lífið leitt og hafa sumir borgarfulltrúar skorið upp herör gegn mávunum. Guðmundur Björnsson er rekstrarstjóri meindýravarna hjá Reykjavíkurborg. 24.7.2006 06:00
Kalkþörunganámur endast í 500 ár Kalkþörunganámur, sem fundist hafa á botni Arnarfjarðar, endast í fimmhundruð ár, miðað við afköst verksmiðjunnar sem brátt hefur störf á Bíldudal. Afurðin verður að mestu flutt úr landi og seld sem fæðubótarefni fyrir búpening. 23.7.2006 19:36
Eldur við íbúðarhúsnæði á Grettisgötu Eldur kviknaði í bílageymslu íbúðarhúss við Grettisgötu um klukkan hálf fjögur í dag. Þegar slökkvilið kom á staðin voru íbúar að mestu búnir að slökkva loganna og höfðu litlar skemmdir orðið utan þess að reykur hafði komist inn í nálægar geymslur hússins. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða og rannsakar lögregla málið. 23.7.2006 17:29
Réðst á lögregluþjóna Lögreglan í Reykjavík handtók mann um þrítugt á horni Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar um klukkan hálf ellefu í morgun eftir að nokkrar tilkynningar höfðu borist um ofsaakstur hans um borgina. Þegar lögregla gaf manninum merki um að stöðva bifreið sína reyndi hann að stinga af en var fljótlega króaður af. Eftir það réðist hann að lögregluþjónum en var fljótlega yfirbugaður og gistir hann nú fangageymslu. Maðurinn er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna. 23.7.2006 13:57