Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Met aðsókn í Háskólann í Reykjavík Aldrei hafa borist fleiri umsóknir um skóavist til Háskólans í Reykjavík. Um 1800 manns hafa nú sótt um skólavist fyrir næsta skólaár, sem hefst 18. ágúst næstkomandi. 19.7.2006 17:18
Ósáttur við ummæli forsætisráðherra Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segist fullviss um að lækkum á sköttum og álagningu á matvælum muni skila sér til neytenda. Hann er ósáttur við ummæli forsætisráðherra um að verslunin gætu tekið slíkar lækkanir til sín. 19.7.2006 15:54
Tómas Zoëga áfram yfirlæknir hjá LSH Náðst hefur samkomulag milli forstjóra LSH og Tómasar Zoëga um að Tómas haldi áfram yfirlæknisstarfi sínu við geðsvið spítalans með sama hætti og áður. 19.7.2006 15:51
Bensínverð hækkar Bensínlítrinn hér á landi færi yfir 140 krónur, ef verðið væri látið fyglja hækkuninni á Rotterdammarkaði í gær. 19.7.2006 15:19
Samið við eldri borgara Lífeyrisgreiðslur til eldri borgara frá Tryggingastofnun ríkisins hækka og bótakerfið verður einfaldað með fækkun og sameiningu bótaflokka, samkvæmt samkomulagi sem Landsamband eldri borgara og ríkisstjórnin skrifuðu undir í dag. Þá munu bætur lækka minna vegna tekna maka og annarra tekna bótaþega en nú er. Samkomulagið var undirritað af forsætisráðherra, fjármálaráðherra, félagsmálaráðherra og landbúnaðarráðherra og fulltrúum eldri borgara í Ráðherrabústaðnum í dag. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að tekið verði upp frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega og vasapeningar hækkaðir. Þá verði starfslok sveigjanleg, þannig að lífeyrisgreiðslur hækki við frestun á töku lífeyris. Heimaþjónusta verði stóraukin og áhersla færð frá stofnanaþjónustu. Þá mun fjármagn sem nú gengur til reksturs stofnana úr Framkvæmdasjóði aldraðra ganga til uppbyggingar öldrunarstofnana. 19.7.2006 14:45
Áfrýjar til Hæstaréttar Jónas Garðarsson, fyrrverandi formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi sem kveðinn var upp yfir honum um manndráp af gáleysi. 19.7.2006 13:56
Landhelgisgæslan áfram á Reykjarvíkurflugvelli Hugmyndir um að flytja þyrlubjörgunarsveit Landhelgisgæslunnar upp á Keflavíkurflugvöll fá ekki hljómgrunn í nýjum tillögum að framtíðarskipulagi sveitarinnar. Þar er lagt til að sveitin verði áfram á Reykjavíkurflugvelli. 19.7.2006 13:38
Mikil fjölgun ferðamanna í maí Rúmlega 31 þúsund erlendir ferðamenn heimsóttu Ísland í maí síðastliðnum, samkvæmt talningum Ferðamálastofu. Þetta er aukning um 12,5% miðað við maí í fyrra. 19.7.2006 13:04
Brotlenti við fjallið Þorbjörn í Grindavík Svifdrekaflugmaður brotlenti við fjallið Þorbjörn í Grindavík rétt fyrir klukkan 12. 19.7.2006 12:19
Á móti einkavæðingu öryggiseftirlits á Keflavíkurflugvelli Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs krefst þess að horfið verði frá ákvörðun flugmálayfirvalda að einkavæða öryggiseftirlit á Keflavíkurflugvelli. 19.7.2006 12:00
Stærsta seglskip í heimi Stærsta seglskip í heimi, rússneska skólaskipið Sedov, kom til hafnar í Reykjavík um klukkan hálf ellefu í morgun. Skipið verður til sýnis almenningi á morgun 19.7.2006 11:23
Atvinnuleysi 4% á öðrum ársfjórðungi Að meðaltali 7.200 manns voru án vinnu á öðrum ársfjórðungi 2006 eða fjögur prósent af vinnuafli samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Atvinnuleysi mældist 3,9% hjá körlum en 4,1% hjá konum. Meirihluti atvinnulausra voru námsmenn. Á öðrum ársfjórðungi 2005 mældist atvinnuleysi þrjú prósent. 19.7.2006 10:29
Ók niður ljósastaur Ökumaður bíls slapp lítið meiddur þegar hann ók niður ljósastaur við þjóðveginn í Mosfellsdal undir kvöld í gær. Bíllinn stórskemmdist. Þá slapp ökumaður ómeiddur þegar hann velti bíl sínum í Tungudal við Ísafjörð í gærkvöldi. Það gerðist skammt frá gangamunnanum og eru tildrög óljós. 19.7.2006 08:51
Hreindýraveiðar á Austurlandi hafnar Hreindýraveiðitíminn á Austurlandi er hafinn og er þegar búið að fella þó nokkra tarfa. Um það bil áttatíu manns hafa atvinnu af leiðsögn fyrir veiðimennina, en þeir aðstoða líka við að bera bráðina til byggða. Á þessu veiðitimabili, sem lýkur fimmtánda september, má fella rúmlega níu hundruð dýr, sem er stærsti veiðikvóti til þessa.- 19.7.2006 08:11
Bjart og hlýtt næstu daga „Sólin fer að leika stærra hlutverk í okkar lífi á næstunni,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur sem spáir góðu veðri um allt land næstu vikuna. 19.7.2006 08:00
Listaverk RÚV eru metin á 52 milljónir Nefnd á vegum Ríkisendurskoðanda vinnur að mati á eignum Ríkisútvarpsins. Forvörður í Morkinskinnu verðmat listaverk í eigu stofnunarinnar. Hann telur þau eiga að vera á Listasafni Íslands. Hluti af ásjónu RÚV, segir útvarpsstjóri. 19.7.2006 07:45
Ísraelar ganga mjög hart fram Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra segir frábært til þess að vita að tekist hafi að flytja alla Íslendinga heilu og höldnu frá Beirút í Líbanon. Eftir því sem næst verði komist séu ekki fleiri Íslendingar eftir í landinu. 19.7.2006 07:30
Óvíst að lægri gjöld skili sér til neytenda Forsætisráðherra segir ekki víst að þótt skattar á matvöru lækki hafi það áhrif til verðlækkunar. Ígildi skattsins gæti runnið eitthvað annað. Skýrsla matvælaverðsnefndar forsætisráðherra var rædd á fundi ríkissins. 19.7.2006 07:30
Jónas áfrýjar til Hæstaréttar Jónas Garðarsson, sem dæmdur var í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðasta mánuði í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi, hefur áfrýjað dómnum til Hæstaréttar. 19.7.2006 07:30
Flöskuháls í skólakerfinu Rektor Listaháskólans er ánægður með tillögur nefndar menntamálaráðuneytisins um eflingu starfsnáms. Hann segir framhaldsskólastigið flöskuháls í skólakerfinu þegar kemur að listnámi. 19.7.2006 07:30
Ók niður ljósastaur Ökumaður bíls slapp lítið meiddur þegar hann ók niður ljósastaur við þjóðveginn í Mosfellsdal undir kvöld í gær. Bíllinn stórskemmdist. Þá slapp ökumaður ómeiddur þegar hann velti bíl sínum í Tungudal við Ísafjörð í gærkvöldi. Það gerðist skammt frá gangamunnanum og eru tildrög óljós.- 19.7.2006 07:27
Landgöngulið Ísraela komið inn í Líbanon Ísraelskir skriðdrekar og landgöngulið réðust í nótt inn í Suður-Líbanon. Hingað til hafa Ísraelar einungis gert loftárásir á Líbanon. 277 líbanskur borgari hefur nú látist í árásunum, þar af 42 í árásum í nótt en 25 Ísraelar hafa látist á rúmri viku í sprengjuárásum Hisbollah. Bush Bandaríkjaforseti ásakar nú Sýrlendinga um að kynda undir átökum milli Hisbollah og Ísraelshers til að styrkja áhrif sín í Líbanon. Ísraelskir hermenn réðust einnig inn í flóttamannabúðir í Gaza en þar létust tveir Palestínumenn í skotárásum og fimm í sprengjuárás Ísraela. 19.7.2006 07:16
Ég vil að veturinn komi bara strax „Bara allt gott, þakka þér fyrir. Ég er búinn að vera í fæðingarorlofi í tvo mánuði og hef notið þess að vera með fjölskyldunni,“ segir þriggja barna faðirinn Guðmundur Karl Jónsson, framkvæmdastjóri Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands og skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli. „Þó að það sé fullt starf að vera með lítil börn nýtur maður þess út í ystu æsar að vera með fjölskyldunni.“ 19.7.2006 07:15
Átta sinnum meira magn fíkniefna Lögreglan á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði gerði upptækt áttfalt magn fíkniefna á fyrri helmingi þessa árs samanborið við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum afbrotatölum frá lögreglustjóranum í Hafnarfirði. Upptækt magn fíkniefna á fyrstu sex mánuðum þessa árs nam rúmum 6,5 kílóum á móti 850 grömmum á sama tímabili síðasta árs. 19.7.2006 07:15
Komin heilu og höldnu Það voru vægast sagt fagnaðarfundir þegar tvær íslenskar fjölskyldur, sjö manns alls, lentu heilu og höldnu í Keflavík í gærkvöld eftir langt og strangt ferðalag frá vígvellinum í Líbanon. Brosið á ferðalöngunum og ættingjum þeirra var breitt, en tárin voru ekki langt undan. Sigríður Snævarr, starfandi ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, tók á móti hópnum fyrir hönd ráðuneytisins en það sendi flugvél eftir fólkinu til Damaskus í Sýrlandi í fyrradag sem flaug með það til Kaupmannahafnar, þaðan sem það kom fljúgandi í gærkvöld. Flugvirkjarnir þrír sem einnig voru í hópnum koma ekki strax til Íslands heldur halda til starfa á vegum Atlanta. 19.7.2006 07:10
Ekki víst að sjóðurinn veikist Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra segir ekki sjálfgefið að lækkun matsfyrirtækisins Standard & Poor‘s á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs veiki sjóðinn. „Það þarf ekki að vera til lengri tíma,“ sagði Magnús í gær en tók fram að hann ætti eftir að fara yfir málið með sérfræðingum. Hann benti á að breyting á mati S&P hefði svifið yfir vötnum í nokkurn tíma en Moodys, sem er sambærilegt fyrirtæki, gæfi sjóðnum áfram bestu einkunn. 19.7.2006 07:00
Vonast eftir friðsemd og ró Andrea Hólm og maður hennar, Hassan Jami Chahla, hafa ekki enn náð sambandi við nánustu fjölskyldu hans sem býr í þeim hluta Beirútborgar þar sem árásir Ísraela hafa aukist dag frá degi að undanförnu. 19.7.2006 07:00
Það er fleira dýrt en maturinn „Það liggur fyrir að á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar er unnið að því að semja um tolla og innanlandsstuðning og þar liggur landbúnaðurinn undir,“ sagði Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra eftir fund ríkisstjórnarinnar í gærmorgun þar sem rætt var um skýrslu formanns matvælaverðsnefndar. 19.7.2006 07:00
Vegið að kókópuffs-kynslóðinni Skýrsla um leiðir til lækkunar matarverðs hefur verið mikið í umræðunni síðan nefnd forsætisráðherra skilaði henni af sér í síðustu viku. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra hafa lítið tjáð sig um skýrsluna en það breyttist eftir ríkisstjórnarfundinn í gær. 19.7.2006 07:00
Ferðin frá Líbanon gekk vonum framar Íslendingarnar sem utanríkisráðuneytið flutti frá átakasvæðum í Líbanon lentu heilir á höldnu í Kaupmannahöfn í gær. Vel gekk að koma fólki frá Beirút til Damaskus. Stóðu vel að fólksflutningum frá Líbanon, segir Már Þórarinsson. 19.7.2006 07:00
Átján ára mál rannsakað Innri endurskoðandi KB banka sætir nú lögreglurannsókn fyrir að hafa notað skjal frá útlánaeftirliti Búnaðarbankans til að gera kröfur við gjaldþrot Stokkfisks. Eigandi fyrirtækisins kærði málið í nóvember í fyrra eftir að Fjármálaeftirlitið hafði gert athugasemdir við efni skjalsins. 19.7.2006 06:45
Fær ættleiðingu ekki greidda Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu eina milljón króna í bætur frá ríkinu vegna læknamistaka en vísaði hins vegar frá bótakröfu hennar vegna fyrirhugaðrar ættleiðingar barna frá Kína. 19.7.2006 06:45
Tíu aðrar leiðir vannýttari Stjórn Strætó bs. ákvað að leggja niður leið S5, að sögn Ásgeirs Eiríkssonar framkvæmdastjóra, vegna þess að mestan hluta leiðarinnar aka aðrar leiðir líka. 19.7.2006 06:45
Ýmsar reglur sem gæta verður að Fríhöfnin er í flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Forsvarsmenn hennar líta svo á að hún sé í samkeppni við aðrar fríhafnir í Evrópu og segja verð allt að 50 prósentum lægra en gengur og gerist í Reykjavík. Ísland er eitt af fáum ríkjum Vestur-Evrópu þar sem hægt er að selja vörur og þjónustu til allra farþega, bæði við komu til landsins og brottför. 19.7.2006 06:30
Ekkert ákveðið um framboð Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra gerist fámáll, inntur eftir eigin vangaveltum um framboð til embætta innan Framsóknarflokksins. „Ég hef ekkert ákveðið en útiloka ekki neitt. Ég hef svo sem ekkert hugleitt þetta sérstaklega. Það eru ýmsir sem vilja fá eitthvað að gera þarna og það er bara ágætt,“ sagði Magnús í gær. 19.7.2006 06:30
Ríkið heldur að sér höndum Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að stjórnvöld muni ekki grípa til neinna ráðstafana vegna hækkandi eldsneytisverðs. Öll olíufélögin hafa hækkað bensínlítra um þrjár krónur og 40 aura og dísilolíulítra um tvær krónur. 19.7.2006 06:30
Einn sá yngsti frá upphafi Pilturinn sem kærður hefur verið fyrir að nauðga sextán ára gamalli stúlku á sunnudagskvöldið er einn sá yngsti sem kærður hefur verið fyrir þess háttar brot, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík og Barnaverndarstofu. 19.7.2006 06:15
Hentugar þyrlur ekki til Nefnd á vegum dómsmálaráðuneytisins leggur til að þrjár nýjar, stórar og langdrægar björgunarþyrlur verði keyptar fyrir Landhelgisgæsluna á árunum 2010 til 2015. Þyrlan TF-LÍF, sú stærri í flotanum, verði seld en TF-SIF ekki. 19.7.2006 06:15
Vilja að farið sé norðar yfir fjörðinn Leið ehf. hefur kært ákvörðun Skipulagsstofnunar þess efnis að fyrirhugaðar framkvæmdir á þjóðvegi 1 milli Brúar og Staðarskála í Hrútafirði væru ekki líklegar til að hafa umtalsverð umhverfisáhrif og skyldu framkvæmdirnar því ekki háðar mati á umhverfisáhrifum. 19.7.2006 06:15
Sofia nýr þátttakandi Actavis er styrktaraðili forvarnarverkefnisins Ungmenni í Evrópu - gegn fíkniefnum, en Sofia, höfuðborg Búlgaríu, hefur nú bæst í þann hóp sem tekur þátt í forvarnarverkefninu. Verkefnið er byggt á íslenskum rannsóknum sem miða að því að greina þætti sem eru líklegir til að koma í veg fyrir að ungt fólk ánetjist fíkniefnum. 19.7.2006 06:15
Íbúasamtök Grafarvogs vilja ekki að þverun verði gerð með uppfyllingu í Eiðisvík Íbúasamtök Grafarvogs gagnrýna að ekki sé gert ráð fyrir fleiri en tveimur áþekkum valkostum í drögum að matsáætlun um framkvæmd annars áfanga Sundabrautar og benda á að hvorugur valkostanna komi til móts við hagsmuni nárrúruverndar og lífsgæða íbúa. 18.7.2006 21:07
Betri nýting á fjármunum í forvarnastarfi Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að fela félagsmálaráðherra að leiða samstarf þeirra aðila sem starfa að forvörnum hér á landi og móta heildstæða forvarnastefnu sem byggi á betri nýtingu þeirra fjármuna sem þegar er veitt í verkefni á þessu sviði. 18.7.2006 21:00
Búskap hætt á Hrafnseyri Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar, er komin í röð eyðijarða. Þetta fyrrum höfuðból var mannlaust í vetur, í fyrsta sinn frá landnámi. Þar er þó reynt að halda uppi öflugri starfsemi yfir sumartímann, en það nýjasta er að bjóða upp á háskólanám. 18.7.2006 18:57
2500 ábendingar um barnaklám Ábendingalínu Barnaheillar vegna barnakláms á Netinu hafa borist 2500 ábendingar síðustu ár. Talsmenn tengslasíðna eins og MySpace og Bebo hafa viðurkennt að þeir geti lagt meira á sig til að halda kynferðisglæpamönnum frá börnum. 18.7.2006 18:45
Húsavíkurdagar framundan Húsavíkurhátíðin, Mærudagar og Sænskir dagar, verður haldin 24. til 30. júlí. 18.7.2006 18:44