Fleiri fréttir Ísland mismuni útlendingum 23.7.2006 06:30
Búist við 4.000 manns í Hrísey 22.7.2006 07:15 Dómsmálaráðherra undrast úrskurðinn Björn Bjarnason segir Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínuna hf. vera að hugsa um öryggi almennings með stjórnsýslukæru. Vonandi tekið tillit til öryggissjónarmiða þegar endanlegar ákvarðanir verða teknar, segir Arnar Þór Jónsson. 22.7.2006 07:00 Frystar afurðir skila mestu Sjávarútvegur Verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða nam 112 milljörðum króna árið 2005 og dróst saman um 5,7 prósent frá fyrra ári, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Útflutt afurðaverðmæti allra aflategunda nema uppsjávarfisks dróst saman frá fyrra ári en frystar afurðir skiluðu yfir helmingi útflutningsverðmætis. 22.7.2006 07:00 Enn að hugsa Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, er enn að velta fyrir sér framboði til embætta innan forystu Framsóknarflokksins. Það liggur ekkert á, það er enn mánuður til flokksþings, sagði Siv í gær. Hún sagði fjóra kosti í stöðunni, að gefa kost á sér til embættis formanns eða varaformanns, sækjast eftir endurkjöri í starf ritara eða draga sig út úr flokksforystunni. Flokksþing Framsóknar fer fram 18. og 19. ágúst. 22.7.2006 07:00 Dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi Tveir Litháar voru í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir innflutning á amfetamínvökva sem dugað hefði til framleiðslu á 13,3 kílóum amfetamíns til götusölu. 22.7.2006 06:45 Fjölgaði um rúm 12% í maí Ferðamönnum hingað til lands fjölgaði um tólf og hálft prósent í maímánuði síðastliðnum, miðað við sama mánuð í fyrra. Ríflega 31 þúsund ferðamenn heimsóttu landið í maí. Fjöldi ferðamanna þetta árið er kominn upp í tæp 105 þúsund og nemur fjölgunin tæplega átta prósentum á milli ára. 22.7.2006 06:30 Mikill skaði á sumum trjátegundum Rysjótt tíð í vor hafði slæm áhrif á trjávöxt í landinu. Þetta segir framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands. Á Suðurlandi og suðvesturhorninu varð mikill skaði á sumum trjátegundum. 21.7.2006 22:23 Um hundrað manns í mótmælabúðum á Kárahnjúkum Mótmælabúðir andstæðinga Kárahnjúkavirkjunar eru komnar upp á ný, annað sumarið í röð. 21.7.2006 22:11 Samtök stofnuð um sögutengda ferðaþjónustu Nýlega voru stofnuð samtök um sögutengda ferðaþjónustu. Forsvarsmenn samtakanna vilja samnýta krafta sína og beina sjónum ferðamanna enn frekar að söguarfleið Íslendinga. 21.7.2006 22:01 Dagur segist ekki hafa sakað sveitarfélög um svik á greiðslum Dagur B. Eggertsson segist aldrei hafa haldið því fram að sveitarfélög hafi svikist um að greiða til Strætó í samræmi við samþykkta fárhagsáætlun fyrirtækisins. 21.7.2006 20:59 Hagar fagnar tillögum matvælanefndar Fyrirtækið, Hagar fagnar tillögum matvælanefndar um einföldun á skattlagningu matvæla, minni skattalagningu á matvæli og auknu frelsi til innflutnings á matvörum, sem teljast sjálfsagðar neysluvörur heimilanna. 21.7.2006 20:40 Sprengjusérsfræðingar á leið til Patreksfjarðar Hrefnuskipið Njörður 1438 kom til hafnar í Patreksfirði um hálf átta í kvöld vegna þess að einn skutlinn sprakk ekki. Tveir sprengjusérfræðingar frá Landheglisgæslunni eru nú á leið vestur til að gera skutulinn óvirkann. Búið er að loka hluta hafnarinnar vegna þessa. 21.7.2006 20:25 Vistaskiptin ekki tengd valdaskiptum í ráðhúsi Reykjavíkur Helga Jónsdóttir hverfur úr æðstu embættismannastjórn Reykjavíkurborgar og verður næsti bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Hún segir vistaskiptin ekki tengjast valdaskiptunum í ráðhúsi Reykjavíkur. 21.7.2006 19:31 Samgönguráðherra lýsir framsóknarmenn ábyrga Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir að kosningaloforð framsóknarmanna um níutíu prósenta húsnæðislán hafi hrundið af stað þeirri óheillaþróun í verðlagsmálum sem verði nú til þess að fresta þurfi vegaframkvæmdum á Vestfjörðum og víðar. 21.7.2006 19:21 Rýmka á lög um stofnfrumurannsóknir Stofnfrumurannsóknir hafa verið stundaðar hér á landi í rúman áratug en lög sem gilda um þær koma í veg fyrir að íslenskir fósturvísar séu notaðir í slíkar rannsóknir. Það kann þó að breytast næsta vetur ef Alþingi samþykkir lagafrumvarp sem nú er í undirbúningi. 21.7.2006 19:00 Alvarlegasti ákæruliður Baugsmálsins úr sögunni Alvarlegasti ákæruliður Baugsmálsins var úr sögunni í dag þegar Hæstiréttur staðfesti frávísun héraðsdóms. Þar var Jón Ásgeir Jóhannesson sakaður um að hafa blekkt stjórn Baugs í kaupum á 10 -11 verslununum og hagnast sjálfur um 200 milljónir króna. 21.7.2006 18:50 Tveir Litháar dæmdir í óskilorðsbundið fangels Tveir Litháar voru dæmdir í tveggja og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, fyrir innflutning að fljótandi amfetamínbasa. 21.7.2006 18:32 Sjá næstu 50 fréttir
Rússarnir koma! Rússnesku skipin sem hingað koma bera af sér misgóðan þokka. Menn halda vart vatni sem líta á seglskipið Sedov sem kom til hafnar í Reykjavík á miðvikudag, svo stórt og tignarlegt sem það er. 23.7.2006 06:15
Hent á dyr og braut rúðu Ósáttur viðskiptavinur Café Cozy við Austurstræti lét illum látum eftir að hafa verið vísað á dyr aðfaranótt laugardags. Maðurinn lét gremju sína í ljós með því að brjóta rúðu skemmtistaðarins og var handtekinn. 23.7.2006 06:15
Uppskeruhátíð Lunga í dag Uppskeruhátíð Lunga, listahátíð ungs fólks á Austurlandi, var haldin í dag. Aldrei hafa fleiri sótt hátíðina sem stækkar með hverju árinu. Lunga er listahátíð fyrir fólk á aldrinum 16 til 25 ára en hún hófst á mánudaginn var. Í kvöld verða svo tónleikar þar sem hljómsveitin Todmobile spilar. 22.7.2006 19:27
Horfið aftur til miðalda á Gásum Horfið var aftur til miðalda á Gásum í Eyjafirði í dag þar sem haldin var lifandi hátíð í þessari fyrrum helstu útflutningshöfn Norðlendinga. 22.7.2006 19:21
Mótmælastaða undir kvöldið Íslandsvinir, sem dvelja í mótmælabúðum undir Snæfelli, fóru í dag í göngu um það svæði sem fer undir Hálslón í haust. Þátttakendur í búðunum koma frá ýmsum þjóðum og eru margir mættir til að sýna andstöðu sína gegn Kárahnjúkavirkjun. 22.7.2006 19:15
Persónuleg óvild segir formaður ÖBÍ Stjórnarmenn í Öryrkjabandalaginu ætla að kæra formann bandalagsins til félagsmálaráðuneytisins vegna framgöngu hans við gerð samnings við nýjan framkvæmdastjóra Öryrkjabandalagsins. Formaðurinn segir framgöngu mannanna sprottna af persónulegri óvild í sinn garð. 22.7.2006 19:07
Lagt hald á nokkuð af fíkniefnum Lögreglan á Siglufirði lagði í gærkvöldi og nótt hald á nokkuð af fíkniefnum og voru þrír menn handteknir í tengslum við málið. Gerð var húsleit á tveimur stöðum í bænum og játuðu tveir hinna handteknu að vera eigendur efnanna. 22.7.2006 16:00
Hreinsað til í Breiðholti „Tökum upp hanskann fyrir Breiðholt" nefnist fegrunarátak sem hófst í hverfinu í morgun. Breiðhyltingurinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri fór þar fyrir fríðu föruneyti. 22.7.2006 13:30
Fulltrúi Byggðastofnunar segir af sér vegna meintra lögbrota Fulltrúi Byggðastofnunar í stjórn Eignarhaldsfélags Vestmanneyja hefur sagt af sér vegna lögbrota félagsins sem hann kallar svo. Í greinargerð hans til Byggðastofnunar kemur fram að Guðjón Hjörleifsson, alþingismaður og fyrrverandi bæjarstjóri í Eyjum, greiddi aldrei fjórðung stofnfjár í eignarhaldsfélagi Vestmanneyja eins og þó hafði verið tilkynnt hlutafélagaskrá. 22.7.2006 12:59
Útskrifaður í dag eftir bílslysið á Suðurlandsvegi Maðurinn sem fór í aðgerð vegna beinbrota eftir bílslys á Suðurlandsvegi við Rauðhóla í gærkvöld verður útskrifaður í dag. Sjö manns voru fluttir á slysadeild eftir áreksturinn sem var mjög harður. 22.7.2006 12:15
Ökumaður stakk af Bíl var ekið á umferðamerki í Seljahverfinu um átta leytið í morgun og stakk ökumaður af af vettvagni. Tilkynnt var um hálf fjögur í nótt að bílnum hefði verið stolið. Talið er að bíllinn hafi verið á nokkurri ferð þegar hann fór á umferðarmerkið því um sextíu metra hemlaför eru eftir bílinn. 22.7.2006 10:45
Sprengjusérfræðingar eyddu skutli hrefnuskips Tveir sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru í gær kallaðir vestur á Patreksfjörð þar sem einn skutull hrefnuskipsins Njarðar sprakk ekki. Loka þurfti hluta hafnarinnar á Patreksfirði í gærkvöldi vegna þessa. 22.7.2006 10:45
Fíkniefni fundust Lögreglan í Reykjavík stöðvaði fólksbíl um klukkan hálf sex í nótt og reyndust allir í bílnum, þrír talsins, vera með fíkniefni á sér. Fólkið var bæði með hvít efni og e-töflur á sér auk þess sem að einn farþeganna var með stera í fórum sínum. 22.7.2006 10:30
Á annað hundrað manns í mótmælabúðum Á annað hundrað manns eru nú komnir í mótmælabúðir Íslandsvina undir Snæfelli. Hópurinn er þessa stundina á göngu um það svæði sem fer undir vatn þegar byrjað verður að safna í Hálslón í haust. 22.7.2006 10:16
Fíkniefni og vopn fundust í húsi í miðborginni Lögreglan í Reykjavík handtók fjóra einstaklinga í nótt eftir að hafa fundið fíkniefni og vopn í húsi í miðbæ Reykjavíkur. Verið er að yfirheyra þá sem voru handteknir. Gífurleg neysla hefur farið fram í húsnæðinu og hefur lögregla áður þurft að hafa afskipti af einstaklingum þar inni. 22.7.2006 10:15
Subbur kærðar Lögreglan í Reykjavík hefur í sumar stöðvað og kært ökumenn fyrir að henda sígarettustubbum og öðru rusli úr bílum sínum á götur borgarinnar. 22.7.2006 08:45
Umhverfismats krafist Landssamband veiðifélaga hefur sent umhverfisráðherra bréf þar sem þess er krafist að fyrirhuguð framkvæmd AGVA ehf., vegna þorskeldis í Hvalfirði, fari í umhverfismat. 22.7.2006 08:30
Listsköpun í stað áhættu Nýju meðferðarstarfi, sem ætlað er að minnka líkurnar á áhættusamri hegðun, hefur verið ýtt úr vör. Lögð er áhersla á listnám, vellíðan án vímuefna, hugræna atferlismeðferð og sjálfsstyrkingu. 22.7.2006 08:15
Listaverkin geta notið sín innan RÚV Ólafur Kvaran, forstöðumaður Listasafns Íslands, segir listaverkin Sumardagur í sveit og tvö verk er tilheyra seríu sem nefnist Sjávarútvegur, eftir Gunnlaug Scheving, geta notið sín innan veggja Ríkisútvarpsins. Í Fréttablaðinu í vikunni var greint frá því að Hilmar Einarsson, forvörður í Morkinskinnu, hefði metið verk Gunnlaugs á rúmlega 40 milljónir króna. Samtals eru listaverk í eigu RÚV metin á 52 milljónir króna. 22.7.2006 08:15
Ný umferðarljós á næstunni Framkvæmdir standa nú yfir vegna miðlægrar stýringar umferðarljósa í Reykjavík og er það samvinnverkefni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar. Skipta þarf út eða uppfæra stýribúnað umferðarljósa á rúmlega 30 gatnamótum og fyrir vikið hefur eldri samhæfingu ljósanna verið ábótavant undanfarið, til dæmis á Suðurlandsbraut. 22.7.2006 08:00
Yfir 400 aldraðir í brýnni þörf eftir hjúkrunarrými Fjárframlög vegna hjúkrunarrýma fyrir aldraða verða aukin um rúma þrjá milljarða króna. Peningunum verður varið í nýbyggingar, breytingu fjölbýla í einbýli og rekstur. Biðlistum á að koma í „ásættanlegt horf“. Hjúkrunarheimilum verður gert að veita sjúkra 22.7.2006 08:00
Fyrsta lið ákæru endanlega vísað frá Hæstiréttur staðfesti frávísun á fyrsta ákærulið Baugsmálsins í gær. Veigamesti ákæruliðurinn í málinu verður því ekki tekinn til efnismeðferðar. Mikið eftir af málinu enn, segir settur saksóknari. Kjarninn farinn, segir Gestur Jónsson. 22.7.2006 08:00
Kókaínparið laust úr haldi Gæsluvarðhald rann út í gær yfir íslensku pari sem handtekið var í Leifsstöð 6. júlí síðastliðinn. Fólkið, sem er á þrítugsaldri, var handtekið við komuna frá Frankfurt í Þýskalandi með eitt kíló af kókaíni falið á víð og dreif í skóm sínum. Við leit á heimili fólksins fannst svo eitt kíló af hassi. 22.7.2006 07:30
Líkhúsgjald ólöglegt Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma er óheimilt að innheimta líkhúsgjald fyrir geymslu á líkum í líkhúsi kirkjugarðanna í Fossvogi. Það er álit Umboðsmanns Alþingis. 22.7.2006 07:30
Hætt við sameiningu deilda Hætt hefur verið við fyrirhugaða sameiningu meðgöngu- og sængurkvennadeildar Landspítalans frá 21. júlí til 24. ágúst. Sameining deildanna var reynd í byrjun júní en starfsemi þeirra var aftur skilin að tveimur dögum síðar sökum álags á starfsfólk. 22.7.2006 07:30
Foreldrar fá 30.000 krónur Aðkoma Kópavogsbæjar að dagheimilum fyrir níu til átján mánaða börn er í undirbúningi. Búist er við því að boðið verði upp á þjónustuna í haust eða strax eftir áramót. 22.7.2006 07:30
Fagnaðarefni fyrir fyrirtækið Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group hf., segir þungu fargi af sér létt með niðurstöðu Hæstaréttar, þar sem frávísun fyrsta ákæruliðs Baugsmálsins er staðfest. 22.7.2006 07:15
Dómsmálaráðherra undrast úrskurðinn Björn Bjarnason segir Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínuna hf. vera að hugsa um öryggi almennings með stjórnsýslukæru. Vonandi tekið tillit til öryggissjónarmiða þegar endanlegar ákvarðanir verða teknar, segir Arnar Þór Jónsson. 22.7.2006 07:00
Frystar afurðir skila mestu Sjávarútvegur Verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða nam 112 milljörðum króna árið 2005 og dróst saman um 5,7 prósent frá fyrra ári, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Útflutt afurðaverðmæti allra aflategunda nema uppsjávarfisks dróst saman frá fyrra ári en frystar afurðir skiluðu yfir helmingi útflutningsverðmætis. 22.7.2006 07:00
Enn að hugsa Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, er enn að velta fyrir sér framboði til embætta innan forystu Framsóknarflokksins. Það liggur ekkert á, það er enn mánuður til flokksþings, sagði Siv í gær. Hún sagði fjóra kosti í stöðunni, að gefa kost á sér til embættis formanns eða varaformanns, sækjast eftir endurkjöri í starf ritara eða draga sig út úr flokksforystunni. Flokksþing Framsóknar fer fram 18. og 19. ágúst. 22.7.2006 07:00
Dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi Tveir Litháar voru í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir innflutning á amfetamínvökva sem dugað hefði til framleiðslu á 13,3 kílóum amfetamíns til götusölu. 22.7.2006 06:45
Fjölgaði um rúm 12% í maí Ferðamönnum hingað til lands fjölgaði um tólf og hálft prósent í maímánuði síðastliðnum, miðað við sama mánuð í fyrra. Ríflega 31 þúsund ferðamenn heimsóttu landið í maí. Fjöldi ferðamanna þetta árið er kominn upp í tæp 105 þúsund og nemur fjölgunin tæplega átta prósentum á milli ára. 22.7.2006 06:30
Mikill skaði á sumum trjátegundum Rysjótt tíð í vor hafði slæm áhrif á trjávöxt í landinu. Þetta segir framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands. Á Suðurlandi og suðvesturhorninu varð mikill skaði á sumum trjátegundum. 21.7.2006 22:23
Um hundrað manns í mótmælabúðum á Kárahnjúkum Mótmælabúðir andstæðinga Kárahnjúkavirkjunar eru komnar upp á ný, annað sumarið í röð. 21.7.2006 22:11
Samtök stofnuð um sögutengda ferðaþjónustu Nýlega voru stofnuð samtök um sögutengda ferðaþjónustu. Forsvarsmenn samtakanna vilja samnýta krafta sína og beina sjónum ferðamanna enn frekar að söguarfleið Íslendinga. 21.7.2006 22:01
Dagur segist ekki hafa sakað sveitarfélög um svik á greiðslum Dagur B. Eggertsson segist aldrei hafa haldið því fram að sveitarfélög hafi svikist um að greiða til Strætó í samræmi við samþykkta fárhagsáætlun fyrirtækisins. 21.7.2006 20:59
Hagar fagnar tillögum matvælanefndar Fyrirtækið, Hagar fagnar tillögum matvælanefndar um einföldun á skattlagningu matvæla, minni skattalagningu á matvæli og auknu frelsi til innflutnings á matvörum, sem teljast sjálfsagðar neysluvörur heimilanna. 21.7.2006 20:40
Sprengjusérsfræðingar á leið til Patreksfjarðar Hrefnuskipið Njörður 1438 kom til hafnar í Patreksfirði um hálf átta í kvöld vegna þess að einn skutlinn sprakk ekki. Tveir sprengjusérfræðingar frá Landheglisgæslunni eru nú á leið vestur til að gera skutulinn óvirkann. Búið er að loka hluta hafnarinnar vegna þessa. 21.7.2006 20:25
Vistaskiptin ekki tengd valdaskiptum í ráðhúsi Reykjavíkur Helga Jónsdóttir hverfur úr æðstu embættismannastjórn Reykjavíkurborgar og verður næsti bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Hún segir vistaskiptin ekki tengjast valdaskiptunum í ráðhúsi Reykjavíkur. 21.7.2006 19:31
Samgönguráðherra lýsir framsóknarmenn ábyrga Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir að kosningaloforð framsóknarmanna um níutíu prósenta húsnæðislán hafi hrundið af stað þeirri óheillaþróun í verðlagsmálum sem verði nú til þess að fresta þurfi vegaframkvæmdum á Vestfjörðum og víðar. 21.7.2006 19:21
Rýmka á lög um stofnfrumurannsóknir Stofnfrumurannsóknir hafa verið stundaðar hér á landi í rúman áratug en lög sem gilda um þær koma í veg fyrir að íslenskir fósturvísar séu notaðir í slíkar rannsóknir. Það kann þó að breytast næsta vetur ef Alþingi samþykkir lagafrumvarp sem nú er í undirbúningi. 21.7.2006 19:00
Alvarlegasti ákæruliður Baugsmálsins úr sögunni Alvarlegasti ákæruliður Baugsmálsins var úr sögunni í dag þegar Hæstiréttur staðfesti frávísun héraðsdóms. Þar var Jón Ásgeir Jóhannesson sakaður um að hafa blekkt stjórn Baugs í kaupum á 10 -11 verslununum og hagnast sjálfur um 200 milljónir króna. 21.7.2006 18:50
Tveir Litháar dæmdir í óskilorðsbundið fangels Tveir Litháar voru dæmdir í tveggja og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, fyrir innflutning að fljótandi amfetamínbasa. 21.7.2006 18:32