Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sérsveitin kölluð út vegna hnífamanns í Sandgerði Sérsveit lögreglunnar og lögreglan á Suðurnesjum höfðu afskipti af manni í Sandgerði í dag. Hann hafði ógnað fólki með hníf í einhverskonar heimiliserjum sem höfðu átt sér stað og farið úr böndunum. Maðurinn er nú í haldi lögreglunnar og bíður yfirheyrslu. Hann var í annarlegu ástandi þegar hann var handtekinn, að sögn lögreglu. Einungis fáeinir dagar eru síðan lögreglan á Suðurnesjum og sérsveitin höfðu afskipti af manni í Grindavík en það var líka vegna heimiliserja. 14.5.2011 21:18
Spennufall hjá íslenska hópnum í Eurovison "Þetta er ekkert smá spennufall að vera búinn að þessu,“ segir Benedikt Brynleifsson, eða Benni trommari, einn af Vinum Sjonna sem flutti lag Íslands í Eurovision í kvöld. 14.5.2011 21:01
Óaðfinnanleg frammistaða Vinir Sjonna, íslensku strákarnir sem taka þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd, luku rétt í þessu við að flytja framlag Íslands, I´m coming Home. „Þeir gerðu þetta óaðfinnanlega,“ sagði Hrafnhildur Halldórsdóttir, þulan sem lýsir keppninni þetta árið fyrir Ríkisútvarpið. 14.5.2011 20:44
Vann 27 milljónir í Lottó Einn heppinn lottóspilari vann 27 milljónir í lottóútdrætti kvöldsins. Miðinn var seldur í söluturninum Þristinum á Seljabraut í Breiðholti. Fjórir unnu bónusvinninga og fær hver um sig 109 þúsund krónur. 14.5.2011 20:07
Danir stefna á sigur í Eurovision Frændur vorir, Danir, taka Eurovision söngvakeppninni ekki af neinni léttúð þetta árið. Þeir stefna á sigur í keppninni. Fréttavefur Jyllands Posten segir að í ellefu daga hafi danska grúppan, sem heitir A Friend In London, verið í Dusseldorf, æft og talað við fjölmiðla. 14.5.2011 19:36
Stóra stundin nálgast Það styttist i stóru stundina hjá strákunum okkar, Vinum Sjonna, sem flytja framlag Íslands í Eurovision keppninni í kvöld. Keppnin hefst klukkan sjö og eru Íslendingar númer 21 í röðinni. 14.5.2011 19:00
Kjarasamningur við grunnskólakennara undirritaður Samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara skrifuðu undir nýjan kjarasamning klukkan fimm í dag. Samningurinn gildir frá 1. maí 2011 til 31. mars 2014 og felur í sér sambærilegar hækkanir launa og nýgerðir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði. 14.5.2011 18:43
Fjöldi prúðbúinna gesta fagnaði Hörpunni Fjöldi prúðbúinna gesta mætti til opnunarhófs í tónlistarhúsinu Hörpu í gær. Þar voru meðal annars forsetahjónin, Björgólfur Guðmundsson, ráðherrar og fyrrverandi ráðherrar, borgarfulltrúar og fleiri. 14.5.2011 18:08
Vonar að Ísland verði meðal 10 efstu Eyjólfur Kristjánsson, ein af mestu Eurovision hetjum Íslendinga, segist vona að Íslendingar nái að verða á meðal tíu efstu í Eurovision í kvöld .Hann gerir samt ekki ráð fyrir að strákarnir okkar, eins og vinir Sjonna eru núna kallaðir, muni vinna keppnina. 14.5.2011 17:12
Símaskráin komin út Nýjasta útgáfa Símaskrárinnar kom út í dag. Símaskránni er dreift í 150 þúsund eintökum og fer hún inn á meirihluta heimila og fyrirtækja á landinu. Í bókinni eru um 400 þúsund símanúmer og á Gulu síðunum má finna gagnagrunn yfir meira en 2.000 þjónustuflokka. Í tilefni af útgáfunni var blásið til veislu í Smáralind í dag þar sem Egill Einarsson og Gerplustúlkur árituðu Símaskrána, en þau prýða forsíðu hennar að þessu sinni. 14.5.2011 16:37
Þúsundir hafa lagt leið sína í Hörpu Þúsundir manna hafa lagt leið sína í tónlistarhúsið Hörpu í dag. Nú um helgina fer þar fram opnunarhátíð með fjölbreyttri dagskrá. 14.5.2011 16:03
Flugvél hlekktist á í flugtaki Cessna flugvél, í eigu Flugklúbbs Flugskóla Íslands, hlekktist á í flugtaki á þriðja tímanum í dag á flugvellinum við Hvolsvöll. Fjórir voru í vélinni. Þeir sluppu með minniháttar meiðsl en voru fluttir á Heilsugæsluna á Hvolsvelli til aðhlynningar. 14.5.2011 15:20
Bretar spyrja sig hvort Íslendingar hafi efni á Hörpu Ítarleg umfjöllun var um tónlistarhúsið Hörpu á BBC 3 í dag. Þar er velt upp þeirri spurningu hvort Íslendingar, sem urðu fyrir gríðarlegum efnahagsáföllum fyrir tveimur og hálfu ári, hafi efni á jafn stóru tónlistarhúsi og Harpa er. 14.5.2011 14:12
Dylan sakaður um að svíkja málstaðinn Söngvarinn Bob Dylan hafnar því með öllu að stjórnvöld í Kína hafi ritskoðað tónlist sem hann flutti á tónleikum þar í landi. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir það að hafa látið yfirvöld í landinu í té lista yfir þau lög sem hann flutti áður en tónleikarnir hófust. Með þessu var Dylan sakaður um að hafa svikið hippamálstaðinn sem hann varð frægur fyrir þegar byrjaði að flytja tónlist á sjöunda áratug síðustu aldar. Dylan segist ekkert hafa vitað um neina ritskoðun og hann hafi flutt alla þá tónlist sem hann hafi í upphafi ætlað sér að flytja. 14.5.2011 13:51
Forsetinn á afmæli í dag Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands er sextíu og átta ára gamall í dag. Hann fæddist á Ísafirði þennan dag árið 1943. 14.5.2011 13:08
Eldur kom upp í Álftröð Eldur kom upp í einbýlishúsi við Álftröð í Kópavogi nú í hádeginu. Tvö reykkafarateymi voru umsvifalaust send inn í húsið til að slökkva, en allt tiltækt lið slökkviliðsins var á staðnum. Búið er að slökkva mestan eldinn. 14.5.2011 12:44
Veiðigjald hækki um 70% Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra kynnti breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu fyrir blaðamönnum í sjávarútvegsráðuneytinu í dag. Um er að ræða tvö frumvörp. Annars vegar frumvarp sem snýst um aukningu á strandveiðum, aukningu í byggðartengdum aðgerðum og hækkun veiðigjalds um 70%. 14.5.2011 12:06
Vinir Sjonna í góðri stemningu fyrir lokakvöldið Það hefur sjálfsagt ekki farið framhjá neinum að Íslendingar munu taka þátt í aðalkeppni Eurovision sem fram fer í Dusseldorf í kvöld. Benedikt Brynleifsson, betur þekktur sem Benni trommari, segir að stemningin fyrir lokakvöldinu sé góð. 14.5.2011 11:36
Slökkviliðsmenn standa vaktina í Hörpu Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn standa vaktina í Hörpu þessa dagana. Ástæðan er sú að ekki er búið að ljúka við frágang á húsinu. 14.5.2011 11:04
Taivan fagnar húnafullri pandabirnu Mikil gleði ríkir í Taívan en frægasta Panda-birna landsins, Yuan Yuan, er sögð húnafull. Talsmenn Taipei dýragarðsins segja hana sofa mikið, borða lítið og óvenjulega pirraða. Yuan Yuan var send í tæknifrjóvgun í febrúar því pandabjörninn í dýragarðinum, Tuan Tuan, sýndi henni lítinn sem engan áhuga. 14.5.2011 10:01
Kvótafrumvarpið mun hafa áhrif á stöðu útgerða Verði frumvarp ríkisstjórnarinnar um ný fiskveiðistjórnunarlög að veruleika á næsta ári mun það hafa umtalsverð áhrif á fjárhagslega stöðu útgerða og banka sem þjónusta þær. Þetta hefur Morgunblaðið eftir Friðriki J. Arngrímssyni, framkvæmdastjóra LÍÚ. 14.5.2011 09:50
Nafn konunnar sem lést Unga konan sem komið var með látna á Landspítalann í Fossvogi í fyrrakvöld hét Þóra Elín Þorvaldsdóttir en hún var búsett í Hafnarfirði. Þóra var fædd þann 19. júlí árið 1990 og lætur eftir sig rúmlega tveggja ára son. Sambýlismaður hennar, Axel Jóhannsson fæddur árið 1986, var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í gær en hann hefur játað að hafa orðið henni að bana. 14.5.2011 09:42
Lagðist til hvílu hjá ókunnugum karlmanni Íbúi í austurhluta Reykjavíkurborgar vaknaði við það um fimmleytið í nótt að karlmaður lagðist upp í rúm til hans á nærbuxunum einum klæða og sofnaði þar. Húsráðandinn, sem átti ekki von á þessum næturgesti, rauk á fætur og hringdi á lögreglu. Lögreglumenn brugðust snarlega við og komu til að vekja manninn. Maðurinn reyndist hafa lagst til hvílu með kærustu sinni fyrr um nóttina. 14.5.2011 09:22
Pössuð eins og aðrar ömmur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist ekki vita til þess að öryggi Söruh, ömmu Baracks Obama Bandaríkjaforseta, hafi verið sérstaklega ógnað hér á landi, spurður hvort íslensk yfirvöld muni tryggja öryggi hennar í væntanlegri heimsókn á næstu dögum. 14.5.2011 09:00
Díoxínrannsókn svæfð af ráðuneytinu Hollustuvernd ríkisins fór fram á það við umhverfisráðuneytið árið 1997 að allsherjarúttekt yrði gerð á losun díoxíns frá íslenskum fyrirtækjum og hugsanlegri mengun. Ráðuneytið varð ekki við þeirri beiðni heldur hóf vinnu við að fá undanþágu frá tilskipun ESB um takmarkanir á mengun frá helsta mengunarvaldinum – sorpbrennslum. 14.5.2011 09:00
Forsprakki vélhjólagengis í einangrun Forsprakki vélhjólagengisins Black Pistons, Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, situr nú í gæsluvarðhaldi og einangrun, ásamt öðrum meðlimi gengisins, Davíð Frey Rúnarssyni, eftir að þeir réðust á mann og héldu honum nauðugum í meira en hálfan sólarhring, að því er talið er. Þá hafa tveir meðlimir Black Pistons verið kærðir fyrir að reyna að hafa áhrif á rannsókn málsins. 14.5.2011 08:30
Allt að helmingur af umframkvóta í potta Allt að helmingur aflaheimilda þorsks á hverju fiskveiðiári, umfram 160.000 tonn, gæti runnið í svokallað pottakerfi sem ráðherra ráðstafar árlega ef nýtt frumvarp um stjórn fiskveiða verður afgreitt óbreytt. 14.5.2011 08:00
Við munum ekki líða neina vitleysu „Við munum ekki líða neina vitleysu,“ segir Páll E. Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar, spurður um viðbrögð fangelsismálayfirvalda við því að vista nú tvo menn úr íslenska vélhjólagenginu Black Pistons í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni. 14.5.2011 07:45
Afnema skilarétt verslana á kjötvöru Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga (KS) hyggst afnema skilarétt verslana á kjötvöru frá fyrirtækinu. Er þetta gert til að bregðast við banni á forverðmerkingum á kjötvöru. 14.5.2011 06:00
Ætlaði að slíta sambandinu Lögregla telur sig hafa fundið staðinn þar sem ungur maður banaði barnsmóður sinni á fimmtudag. Vettvangurinn er í Heiðmörk og var rannsakaður af lögreglu í gær. Fullnaðarniðurstaða liggur ekki fyrir úr rannsókn á banameini konunnar, sem var fædd árið 1990, en vísbendingar eru um að hún hafi verið kyrkt, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 14.5.2011 05:00
Krefst á annan tug milljarða Þorsteinn Hjaltested, landeigandi á Vatnsenda, ætlar að stefna Kópavogsbæ vegna vanefnda á eignarnámssamningi. Þorsteinn staðfestir að sú upphæð sem hann ætli að krefja bæinn um sé nærri 14 milljörðum króna. 14.5.2011 04:00
Óttast átök Black Pistons og Hells Angels Black Pistons er stuðningsklúbbur Outlaws, sem eru ein stærstu vélhjólasamtök heims, og nær alls staðar skilgreind sem skipulögð glæpasamtök. 14.5.2011 04:00
Sérstakur saksóknari stofnun ársins að mati SFR Val á Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins er samvinnuverkefni SFR stéttarfélags í almannaþjónustu og VR en þetta er í sjötta sinn sem SFR velur Stofnun ársins. Umfang könnunarinnar hefur aukist umtalsvert frá því í fyrra. 13.5.2011 17:46
Farið varlega í umferðinni Með hækkandi sól hefur talsvert borið á hraðakstri á höfuðborgarsvæðinu og því vill lögreglan beina þeim tilmælum til ökumanna að þeir flýti sér hægt. Nú er mikið af nýjum vegfarendum í umferðinni, m.a. á reiðhjólum og bifhjólum, og því afar mikilvægt að sýna aðgæslu samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni. 13.5.2011 17:22
Innkalla suðusúkkulaðidropa og spæni Nói Síríus hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur innkallað tímabundið vörurnar Síríus Konsum suðusúkkulaðidropa og Síríus Konsum suðusúkkulaðispæni þar sem ofnæmis- og óþolsvaldar voru ekki nægjanlega vel merktir á umbúðum þessara vara. 13.5.2011 17:15
Íslenska konan kom í kreppunni Lífið er einfaldara eftir að bankahrunið varð, segir Guðfinnur Halldórsson bílasali, betur þekktur sem Guffi, í samtali við bandaríska stórblaðið New York Times. Guffi segist hafa minni peninga á milli handanna, en það geri lífið einfaldara. Hann segist hafa selt marga bíla í uppsveiflunni en ekki hafa sparað mikið. Að eigin sögn notaði hann peningana í að ferðast, fara á skíði og njóta lífsins með útlenskum kærustum. "Taktu eftir þessum fallegu stelpum frá Úkraínu og Sviss," segir Guffi í samtali við blaðamann N 13.5.2011 16:32
Hringitónn með fagnaðarlátum Hrafnhildar Fagnaðarlæti Evróvisjón-þulunnar Hrafnhildar Halldórsdóttur þegar Vinir Sjonna komust áfram í aðalkeppni Evróvisjón vöktu mikla athygli. Hrafnhildur mátti vart mæla og afsakaði sig með því að hún þyrfti að hætta að tala, því að hún væri alveg að fara að gráta. 13.5.2011 16:05
Fjölmenningardagur í Reykjavík á morgun Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar verður haldinn hátíðlegur á morgun þegar að Jón Gnarr borgarstjóri setur hátíðina við Hallgrímskirkju klukkan 13. 13.5.2011 16:01
Föstudagsviðtalið: Treysta ber ákvörðunum kvenna Karen Busby er lagaprófessor við Háskólann í Manitoba. Hún hefur gert ýmsar rannsóknir og hefur nú beint sjónum sínum að staðgöngumæðrun. Hún var á Íslandi fyrr í vikunni á vegum samtakanna Tilveru, sem eru samtök um ófrjósemi, og Staðgöngu, sem er stuðningsfélag staðgöngumæðrunar á Íslandi. Þórunn Elísabet Bogadóttir spurði hana nokkurra spurninga. 13.5.2011 16:00
Sömu sæti í rútunni annað kvöld - frábær stemning í hópnum "Það er frábær stemning í hópnum og þetta leggst svo vel í okkur, við erum svo ánægð að vera komin í úrslitin,“ Benedikt Brynleifsson, trommari í Vinum Sjonna, en stóra stundin hjá þeim félögum er annað kvöld þegar sjálft úrslitakvöldið fer fram í Eurovision. 13.5.2011 15:15
Dæmdur til að greiða lögmanni sínum laun Kristján Sveinbjörnsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi á Álftanesi, hefur verið dæmdur til að greiða Jóni Egilssyni lögmanni 1700 þúsund krónur með dráttarvöxtum vegna lögfræðiaðstoðar sem lögmannnstofa Jóns veitti Kristjáni. 13.5.2011 15:12
Meint dýraníð: "Getur bara ekki lýst því hvað þetta er ógeðslegt" "Menn eru bara dofnir," segir umráðamaður hryssu sem talið er að hafi verið skorin í kynfærin með eggvopni. Honum var virkilega brugðið þegar hann fékk fregnir af því að grunur léki á dýraníðingur hafi ráðist á hryssuna og skorið í skeið hennar. "Maður getur bara ekki lýst því hvað þetta er ógeðslegt," segir hann. Vísir greindi frá því í gær að meint dýraníð hefði verið kært til lögreglunnar á Egilsstöðum eftir að tveir skurðir fundust í skeið hryssunnar, eins og sjö sentimetra langir. Lögreglan hefur engar vísbendingar fengið um hver hefur getað verið þarna að verki og er málið í rannsókn. Hestamenn á svæðinu eru slegnir óhug vegna atviksins og finnst erfitt að ímynda sér að þarna hafi í raun verið um mannanna verk að ræða. Tíðkast hefur víða á Héraði að hesthús séu ólæst en nú er svo komið að vegna ótta um öryggi hrossanna tryggja menn sérstaklega að hesthúsin séu læst. "Við erum farin að læsa hjá okkur," segir umráðamaður hryssunnar og tekur fram að það eigi við um fleiri hestamenn á svæðinu. Hryssan er á batavegi en hún var hin rólegasta við skoðun dýralæknis eftir að tilkynnt var um áverkana á sunnudag. Þá taldi læknir að áverkarnir væru um 8 til 24 tíma gamlir. Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir á Egilsstöðum, sem hlúði að hryssunni eftir að tilkynnt var um áverkana, sagði í samtali við Vísi í gær að hann hefði aldrei séð viðlíka áverka á kynfærum dýrs. 13.5.2011 14:35
Úrskurðaður í gæsluvarðhald Gæsluvarðhaldskrafa yfir manninum sem játað hefur að hafa orðið barnsmóður sinni að bana í gær var tekin fyrir í héraðsdómi Reykjaness nú rétt fyrir tvö. Dómari féllst á kröfuna og hefur maðurinn verið úrskurðaður í varðhald til 27. maí næstkomandi. Yfirheyrslur fóru fram yfir manninum í gærkvöldi og stóðu þær fram eftir nóttu. 13.5.2011 14:10
Var með barnið í bílnum Maðurinn sem játaði í gær að hafa orðið barnsmóður sinni að bana var, eftir því sem næst verður komist, með barn þeirra í bílnum þegar hann framdi voðaverkið. Heimildir fréttastofu herma að áður en hann fór með lík konunnar á Landspítala í Fossvogi í gærkvöldi, hafi hann farið með barnið heim til foreldra sinna. 13.5.2011 13:59
Telja sig hafa fundið Monu Lisu Fornleifafræðingar telja sig hafa fundið gröf konunnar sem sögð er vera Mona Lisa á málverki Leonardo da Vinci. 13.5.2011 13:50
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent