Fleiri fréttir Þrír hafa látist í bifhjólaslysum í ár Þrír hafa látist í bifhjólaslysum á árinu. Mótorhjólalögreglumaður telur aukna vélhjólaeign, vaxandi umferð og slæma vegi eiga sinn þátt í slysunum. Hjólafólk ætlar að hittast á fundi í vikunni og fara yfir umferðaröryggismál. 24.7.2006 18:45 Nærri fimm hundruð með endurvinnslutunnu Á fimmta hundrað endurvinnslutunna frá Gámaþjónustunni eru í notkun á höfuðborgarsvæðinu en farið var að bjóða upp á þessa þjónustu í desember. Það sem fer í tunnurnar er ekki grafið í jörð heldur selt til Hollands. 24.7.2006 18:45 Létust í umferðarslysum Maður lést af áverkum sínum aðfaranótt sunnudags eftir að hafa orðið fyrir bíl á Strandvegi skammt frá Hólmavík, á laugardagskvöld. Hann hét Þórður Björnsson til heimilis að Skólabraut 5 Seltjarnarnesi. Þórður var fæddur árið 1922. Hann lætur eftir sig sex uppkomin börn. Á sjöunda tímanum í gær lést ungur maður þegar hann missti stjórn á vélhjóli sínu á Suðurlandsvegi við brúnna yfir Eystri- Rangá. Hann hét Birkir Hafberg Jónsson til heimilis að Öldubakka 19 á Hvolsvelli. Birkir var 26 ára gamall, ókvæntur og barnlaus. 24.7.2006 18:29 Litbyssumenn fremja skemmdarverk Skemmdarverk voru unnin á útivistarsvæðinu í Sólbrekkuskógi við Seltjörn á Reykjanesi um helgina. Búið er að brenna útikamar til kaldra kola, og skjóta úr litboltabyssum á eignir svo litaklessur og taumar eru um allt. 24.7.2006 17:22 Tafir á flugi Tafir urðu á flugi til og frá landinu um helgina þegar flugumferðastjórar tilkynntu sig veika og enginn fékkst til að koma á aukavakt. Deilan vegna óánægju flugumferðarstjóra með nýtt vaktaplan er enn óleyst. 24.7.2006 16:39 Gert að sveigja reglur um áhættudreifingu Fyrrverandi stjórnarformaður Byggðastofnunar segir ríkisstjórnina hafa fyrirskipað að sveigja reglurnar um áhættudreifingu, þegar Eignarhaldsfélag Vestmanneyja var keypt. Og endurskoðunarfyrirtækið Deloitte og Touche staðfesti á stofnskjali Eignarhaldsfélagsins að allt stofnfé hefði verið greitt. En helmingur fjárins skilaði sér ekki. 24.7.2006 15:33 Sænsk ræðisskrifstofa í Húsavík Utanríkisráðuneyti Svíþjóðar hefur ákveðið að stofna sænska ræðisskrifstofu í Húsavík. Þórunn Harðardóttir leiðsögumaður hefur verið skipuð heiðursræðismaður fyrir sveitarfélögin Norðurþing og Akureyri. Útnefning Þórunnar verður kunngerð af sænska sendiherranum Madeleine Ströje Wilkens á Húsavík í dag um leið og Sænskum dögum verður hleypt af stokkunum. 24.7.2006 15:23 Kátir biskupar Hólabiskupar til forna voru höfðingjar heim að sækja, miðað við veislusal sem kom úr kafinu, rétt í þann mund sem fornleifafræðingar voru að ljúka uppgrefti á hinu forna biskupssetri þetta sumar. 24.7.2006 14:50 Áfengissala eykst Velta í dagvöruverslun var fimm komma þremur prósentum meiri í júní síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra, miðað við fast verðlag. Þetta kemur fram í smásöluvísitölu sem reiknuð er af rannsóknarsetri verslunarinnar við Viðskiptaháskólann á Bifröst. 24.7.2006 14:47 Líðan Sharon fer versnandi Ariel Sharon, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, var fluttur í skyndi á sjúkrahús í Tel Aviv í morgun en líðan hans hefur farið stöðugt versnandi um liðna helgi. 24.7.2006 13:30 Truflanir á vefþjónustu Truflun verður á vefþjónustu Veðurstofu Íslands vegna vinnu við raflagnir í kvöld klukkan 18:30. Í fréttatilkynningu frá Veðurstofunni segir að ætlunin sé að vinnu verði lokið í síðasta lagi klukkan 22:00 og vefþjónustan verði þá komin í samt horf. Beðist er er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur í för með sér. 24.7.2006 12:59 Óvíst með nýtingu olíutanka í Helguvík Mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins NATO hafði ný fallist á að íslensk olíufélög fengju afnot af olíumannvirkjunum í Helguvík, til að þurfa ekki að aka öllu flugvélaeldsneyti frá Reykjavík, þegar Varnarliðið tilkynnti um brottför sína og málið fór í uppnám. 24.7.2006 12:30 Búið að ráða um 100 starfsmenn Undirbúningur gengur vel fyrir útkomu Nyhedsavisen í Danmörku. Svenn Dam, forstjóri 365 media Scandinavia, segir að fyrsta blaðið muni koma út þegar keppninautar blaðsins eiga síst von á því. 24.7.2006 12:15 Sugar Rush 24.7.2006 12:12 Festival in Húsavík 24.7.2006 12:01 Eftirlit verður haft með eignum Varnarliðsins Utanríkisráðuneytið hefur, fyrir hönd Varnarliðsins, auglýst eftir verktökum til að annast viðhald og eftirlit með eignum Atlantshafsbandalagsins á Keflavíkurflugvelli, eftir að Varnarliðið fer í haust. Varnarlilðið sjálft hefur hins vegar ekki óskað eftir eftirliti með sínum eignum. 24.7.2006 12:00 Rice fundar með ráðamönnum Ísraels í dag Ísraelsher telur sig þurfa minnst viku í viðbót til að ljúka sókn sinni gegn skæruliðum Hizbollah áður en komist verði að samkomulagi til að binda enda á átök í Líbanon. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hélt til átakasvæðisins í dag til fundar með ráðamönnum í Ísrael. 24.7.2006 12:00 Doha samningalotunni frestað Svokallaðri Doha-samningalotu helstu viðskiptaríkja heims var frestað um óákveðinn tíma í dag. Viðræðurnar hafa farið fram á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Samningalotunni var ýtt úr vör í borginni Doha í Katar í nóvember 2001 og ætlað að taka sérstakt mið af hagsmunum þróunarríkja. Stefnt var að því að bæta aðkomu þeirra að alþjóðaviðskiptasamfélaginu. Áætlað var að nýr samningur gæti tekið gildi í byrjun þessa árs en svo var ekki. 24.7.2006 11:30 Schwartzenegger styður Ísraela Arnold Schwarzenegger, kvikmyndaleikari og ríkisstjóri í Kaliforníu, var meðal þeirra þúsunda sem komu saman á götum Los Angeles í Bandaríkjunum í gær til að sýna Ísraelsmönnum stuðning. Schwarzenegger sagði það rétt Ísraelsmanna að verja sig og sagðist biðja fyrir frið í Líbanon. Talið er að um tvö til þrjú þúsund manns hafi komið saman í Los Angeles til að styðja árásir Ísraela á Líbanon og innrásina á Gaza-svæðið. Ekki kom til átaka þó fámennur hópur andstæðinga Ísraela hafi komið saman skammt frá. 24.7.2006 11:15 Fatal Accidents 24.7.2006 11:07
Sjá næstu 50 fréttir
Þrír hafa látist í bifhjólaslysum í ár Þrír hafa látist í bifhjólaslysum á árinu. Mótorhjólalögreglumaður telur aukna vélhjólaeign, vaxandi umferð og slæma vegi eiga sinn þátt í slysunum. Hjólafólk ætlar að hittast á fundi í vikunni og fara yfir umferðaröryggismál. 24.7.2006 18:45
Nærri fimm hundruð með endurvinnslutunnu Á fimmta hundrað endurvinnslutunna frá Gámaþjónustunni eru í notkun á höfuðborgarsvæðinu en farið var að bjóða upp á þessa þjónustu í desember. Það sem fer í tunnurnar er ekki grafið í jörð heldur selt til Hollands. 24.7.2006 18:45
Létust í umferðarslysum Maður lést af áverkum sínum aðfaranótt sunnudags eftir að hafa orðið fyrir bíl á Strandvegi skammt frá Hólmavík, á laugardagskvöld. Hann hét Þórður Björnsson til heimilis að Skólabraut 5 Seltjarnarnesi. Þórður var fæddur árið 1922. Hann lætur eftir sig sex uppkomin börn. Á sjöunda tímanum í gær lést ungur maður þegar hann missti stjórn á vélhjóli sínu á Suðurlandsvegi við brúnna yfir Eystri- Rangá. Hann hét Birkir Hafberg Jónsson til heimilis að Öldubakka 19 á Hvolsvelli. Birkir var 26 ára gamall, ókvæntur og barnlaus. 24.7.2006 18:29
Litbyssumenn fremja skemmdarverk Skemmdarverk voru unnin á útivistarsvæðinu í Sólbrekkuskógi við Seltjörn á Reykjanesi um helgina. Búið er að brenna útikamar til kaldra kola, og skjóta úr litboltabyssum á eignir svo litaklessur og taumar eru um allt. 24.7.2006 17:22
Tafir á flugi Tafir urðu á flugi til og frá landinu um helgina þegar flugumferðastjórar tilkynntu sig veika og enginn fékkst til að koma á aukavakt. Deilan vegna óánægju flugumferðarstjóra með nýtt vaktaplan er enn óleyst. 24.7.2006 16:39
Gert að sveigja reglur um áhættudreifingu Fyrrverandi stjórnarformaður Byggðastofnunar segir ríkisstjórnina hafa fyrirskipað að sveigja reglurnar um áhættudreifingu, þegar Eignarhaldsfélag Vestmanneyja var keypt. Og endurskoðunarfyrirtækið Deloitte og Touche staðfesti á stofnskjali Eignarhaldsfélagsins að allt stofnfé hefði verið greitt. En helmingur fjárins skilaði sér ekki. 24.7.2006 15:33
Sænsk ræðisskrifstofa í Húsavík Utanríkisráðuneyti Svíþjóðar hefur ákveðið að stofna sænska ræðisskrifstofu í Húsavík. Þórunn Harðardóttir leiðsögumaður hefur verið skipuð heiðursræðismaður fyrir sveitarfélögin Norðurþing og Akureyri. Útnefning Þórunnar verður kunngerð af sænska sendiherranum Madeleine Ströje Wilkens á Húsavík í dag um leið og Sænskum dögum verður hleypt af stokkunum. 24.7.2006 15:23
Kátir biskupar Hólabiskupar til forna voru höfðingjar heim að sækja, miðað við veislusal sem kom úr kafinu, rétt í þann mund sem fornleifafræðingar voru að ljúka uppgrefti á hinu forna biskupssetri þetta sumar. 24.7.2006 14:50
Áfengissala eykst Velta í dagvöruverslun var fimm komma þremur prósentum meiri í júní síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra, miðað við fast verðlag. Þetta kemur fram í smásöluvísitölu sem reiknuð er af rannsóknarsetri verslunarinnar við Viðskiptaháskólann á Bifröst. 24.7.2006 14:47
Líðan Sharon fer versnandi Ariel Sharon, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, var fluttur í skyndi á sjúkrahús í Tel Aviv í morgun en líðan hans hefur farið stöðugt versnandi um liðna helgi. 24.7.2006 13:30
Truflanir á vefþjónustu Truflun verður á vefþjónustu Veðurstofu Íslands vegna vinnu við raflagnir í kvöld klukkan 18:30. Í fréttatilkynningu frá Veðurstofunni segir að ætlunin sé að vinnu verði lokið í síðasta lagi klukkan 22:00 og vefþjónustan verði þá komin í samt horf. Beðist er er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur í för með sér. 24.7.2006 12:59
Óvíst með nýtingu olíutanka í Helguvík Mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins NATO hafði ný fallist á að íslensk olíufélög fengju afnot af olíumannvirkjunum í Helguvík, til að þurfa ekki að aka öllu flugvélaeldsneyti frá Reykjavík, þegar Varnarliðið tilkynnti um brottför sína og málið fór í uppnám. 24.7.2006 12:30
Búið að ráða um 100 starfsmenn Undirbúningur gengur vel fyrir útkomu Nyhedsavisen í Danmörku. Svenn Dam, forstjóri 365 media Scandinavia, segir að fyrsta blaðið muni koma út þegar keppninautar blaðsins eiga síst von á því. 24.7.2006 12:15
Eftirlit verður haft með eignum Varnarliðsins Utanríkisráðuneytið hefur, fyrir hönd Varnarliðsins, auglýst eftir verktökum til að annast viðhald og eftirlit með eignum Atlantshafsbandalagsins á Keflavíkurflugvelli, eftir að Varnarliðið fer í haust. Varnarlilðið sjálft hefur hins vegar ekki óskað eftir eftirliti með sínum eignum. 24.7.2006 12:00
Rice fundar með ráðamönnum Ísraels í dag Ísraelsher telur sig þurfa minnst viku í viðbót til að ljúka sókn sinni gegn skæruliðum Hizbollah áður en komist verði að samkomulagi til að binda enda á átök í Líbanon. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hélt til átakasvæðisins í dag til fundar með ráðamönnum í Ísrael. 24.7.2006 12:00
Doha samningalotunni frestað Svokallaðri Doha-samningalotu helstu viðskiptaríkja heims var frestað um óákveðinn tíma í dag. Viðræðurnar hafa farið fram á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Samningalotunni var ýtt úr vör í borginni Doha í Katar í nóvember 2001 og ætlað að taka sérstakt mið af hagsmunum þróunarríkja. Stefnt var að því að bæta aðkomu þeirra að alþjóðaviðskiptasamfélaginu. Áætlað var að nýr samningur gæti tekið gildi í byrjun þessa árs en svo var ekki. 24.7.2006 11:30
Schwartzenegger styður Ísraela Arnold Schwarzenegger, kvikmyndaleikari og ríkisstjóri í Kaliforníu, var meðal þeirra þúsunda sem komu saman á götum Los Angeles í Bandaríkjunum í gær til að sýna Ísraelsmönnum stuðning. Schwarzenegger sagði það rétt Ísraelsmanna að verja sig og sagðist biðja fyrir frið í Líbanon. Talið er að um tvö til þrjú þúsund manns hafi komið saman í Los Angeles til að styðja árásir Ísraela á Líbanon og innrásina á Gaza-svæðið. Ekki kom til átaka þó fámennur hópur andstæðinga Ísraela hafi komið saman skammt frá. 24.7.2006 11:15
Neyðarkall barst frá olíulausum bát Vaktstöð siglinga barst neyðarkall frá erlendum bát, Sylvia Dawn, um sjöleitið í morgun en báturinn varð olíulaus skammt undan Dyrhólaey í Vík í Mýrdal. Björgunarsveitin Víkverji fór á björgunarbát áleiðis að bátnum með olíu og var kominn að honum laustyrir klukkan tíu. Engin hætta var á ferðum en rólegt og gott veður er á þessu slóðum. 24.7.2006 10:48
Um 20.000 ferðamenn hafa siglt á Jökulsárlóni í sumar Um 20.000 manns hafa farið í bátsferðir um Jökulsárlón á Breiðamerkursandi það sem af er sumri en það er svipaður fjöldi og á sama tíma í fyrra. Á laugardaginn sigldu 815 ferðamenn og er það metdagur sumarsins. Þar af voru um hundrað manns á vegum starfsmannafélags Skinneyjar-Þinganes. Fjórir hjólabátar eru nú nýttir í ferðir út á Jökulsárlónið. 24.7.2006 10:33
Ungfrú Puerto Rico valin Miss Universe 18 ára stúlka frá Puerto Rico, Zuleyka Rivera Mendoza, var í gær valin keppninni Ungfrú alheimur sem fór fram í Los Angeles. Ungfrú Japan varð í öðru sæti og ungfrú Sviss varð í þriðja sæti. Sif Aradóttir, ungfrú Ísland 2006 var meðal keppenda, en hún komst ekki í verðlaunasæti. Þetta er í fimmtugasta og fimmta sinn sem keppnin er haldin en enginn íslenskur keppandi hefur verið sendur í hana síðan árið 2003 þegar Manúela Ósk Harðardóttir fór utan en þurfti að hætta keppni vegna veikinda. 24.7.2006 09:45
Olíuævintýri í uppsiglingu við strendur Grænlands Vera má að mikið olíuævintýri sé í uppsiglingu fyrir Grænlendinga. Nýjar rannsóknir við hafbotni vesturstrandar Grænlands benda til að þar gæti verið að finna álíka mikla olíu og á olíusvæðum Noregs, Danmerkur og Bretlands í Norðursjónum til samans, samkvæmt frétt Jyllands-Posten. Nú standa yfir heimastjórnarviðæður milli danskra stjórnvalda og grænlensku heimastjórnarinnar en nýting olíusvæðisins skipar veigamikinn sess í viðræðunum. 24.7.2006 09:30
Tæplega 2.000 gestir á Þórbergssetur Hátt á annað þúsund gestir hafa komið á Þórbergssetur á bænum Hala í Hornafirði í þær tæpu þjár vikur sem safnið hefur verið opið. Safnið var opnað í byrjun þessa mánaðar en það er tileinkað Þórbergi Þórðarsyni rithöfundi. 24.7.2006 09:30
Mikið um neyslu áfengis meðal ófrískra kvenna Talið er að á hverju ári fæðast tæplega 400 börn í Danmörku með skaðleg einkenni sem rakin eru til áfengisneyslu móður á meðgöngu. Þar af fæðast um 70-100 börn með alvarleg einkenni sem munu há þeim alla ævi samkvæmt umfjöllun Politiken. Heilbrigðisyfirvöld í Danmörku íhuga átak gegn drykkju ófrískra kvenna en um 80% danskra kvenna drekka áfengi einhvern tíman á meðgöngu og er tíðnin sú hæsta innan Evrópusambandsins. 24.7.2006 09:15
Húsavíkurhátíðin sett í dag Meistarakokkur sænska sendiráðsins mun gleðja Húsvíkinga og gesti með eldamennsku sinni á Húsavíkurhátíðinni sem verður sett í dag með pompi og prakt. Fréttavefurinn Skarpur.is greinir frá því að kokkurinn muni reiða fram sænska rétti á veitingastaðnum Gamla Bauk á morgun og fram á fimmtudag. Mærudögum og Sænskum dögum hafi nú verið steypt saman og munu hátíðarhöldin standa út vikuna. Líkt og nærri má geta verða fjölmargar uppákomur, sænskar sem og íslenskar. 24.7.2006 09:15
Ölvaðir ökumenn gerðu óskunda í Grafarvogi Tveir ölvaðir ökumenn óku aftan á tvo bíla í Grafarvogi með nokkurra klukkusutnda millibili í gærkvöldi. Báðir stungu af frá vettvangi, en náðust báðir heima hjá sér, samkvæmt ábendingum ökumanna bílanna, sem þeir óku á. Hvorugur þeirra meiddist og hvorugur ölvuðu ökumanna heldur, en þeir voru báðir handteknir á heimilum sínum og gista báðir fangageymslur þar til yfirheyrslur yfir þeim hefjast. 24.7.2006 09:00
Íbúar í Queens orðnir langþreyttir á rafmagnsleysi Um 6.000 íbúar í Queens í New York hafa nú verið í viku án rafmagns. Eftir að rafmagnið fór af í hitabylgju sem gengið hefur yfir. Raforkufyrirtækið á svæðinu hefur unnið hörðum höndum að viðgerðum en 19.000 af 25.000 heimilum hafa nú fengið rafmagn. Íbúarnir sem enn hafa ekkert rafmagn eru orðnir þreyttir og pirraðir og hafa beðið fylkisstjóra New York ríkis að grípa inn í og sjá til þess að viðgerðir gangi hraðar. 24.7.2006 08:45
Húsnæðisvelta fer minnkandi Húsnæðisveltan á höfuðborgarsvæðinu í þar síðustu viku var rúmlega 3,1 milljarður, sem er hátt í milljarði minni velta en að meðaltali síðustu tólf vikurnar þar á undan. Meðaltal þeirra vikna er líka orðið talsvert undir meðaltali jafnlengdar á fyrstu mánuðum ársins. Aðeins 116 kaupsamningum var þingslýst á höfuðborgarsvæðinu í vikunni, sem er 44 samningum undir meðaltali síðustu tólf vikna. 24.7.2006 08:38
Fastur í vatnsstokk í fimmtíu tíma Ungur indverskur drengur átti heldur eftirminnilegan afmælisdag í gær þegar honum var bjargað úr vatnsveitustokk, eftir um fimmtíu tíma dvöl í prísundinni. Drengurinn átti sex ára afmæli og var að leik í heimabæ sínum Aldeharhi, þegar hann féll niður í stokkinn. 24.7.2006 08:32
Norskt fiskiskip hrekst undan hafís Hafís er norðvestur af landinu og hefur norskt fiskiskip, sem hefur verið að veiðum við Grænland, hrakist undan honum inn í íslenska lögsögu. Ekkert er þó að um borð. Vitað er um hafís um 65 sjómílur norðvestur af Barðaq, á milli Önundarfjarðar og Dýrafjaðrar á Vestfjörðum, en skipum á venjulegum siglingaleiðum umhverfis landið stafar engin hætta af honum. Ísinn hefur ekki verið kannaður úr lofti. 24.7.2006 08:30
Flóttamönnum fjölgar í Damaskus Fjöldi flóttamanna sem streymir til Sýrlands frá Líbanon heldur áfram að aukast. Flóttafólkið dvelur í búðum sem settar hafa verið upp í kringum höfuðborgina, Damaskus. Ráðmenn í Ísrael sögðu í gær að ríkisstjórn Ísraels vildi að alþjóðlegt friðargæslulið hefði eftirlit með því að skæruliðar Hizbollah verði fluttir frá suðurhluta Líbanon. 24.7.2006 08:15
Karlmaður lést í bifhjólaslysi Karlmaður á þrítugsaldri lést þegar hann missti stjórn á vélhjóli sínu við brú yfir Eystri Rangá á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Hjólið hafnaði í ánni en maðurinn á árbakkanum, og var hann látinn þegar bjrögunarmenn komu á vettvang. Tildrög slyssins eru óljós og segir lögregla ekkert benda til að maðurinn hafi ekið ógætilega. Þetta er ellefta banaslysið í ár en það tíunda varð þegar karlmaður á níræðisaldri varð fyrir bíl skammt frá Hólmavík í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að hann lést í fyrrinótt. 24.7.2006 08:03
Fljúgandi listaverk drepur tvo Tveir létust og tólf manns slösuðust þegar risastórt uppblásið listaverk losnaði úr festingum sínum á sunnudag. Slysið varð í Durham-sýslu í Englandi samkvæmt fréttavef BBC. 24.7.2006 08:00
Árásir Ísraela fordæmdar Yfirmaður Neyðarhjálpar SÞ fordæmir loftárásir Ísraelsmanna sem mannréttindabrot. Um 600.000 Líbanir hafa flosnað upp frá heimilum sínum. Skotið var á líbanska flóttamenn í suðurhluta landsins í gær. 24.7.2006 07:45
Fjárfesting félagsins stórkostleg mistök Forstjóri Byggðastofnunar segir stórkostleg mistök hjá Eignarhaldsfélagi Vestmannaeyja að eyða öllu sínu fé í eitt fyrirtæki. Fyrrverandi stjórnarformaður félagsins segir auðvelt að vera vitur eftir á, kaupin hafi þótt góð á sínum tíma. 24.7.2006 07:45
Reynir annað „Ég óskaði sjálfur eftir að hætta og geri það í góðu en ég vil ekki tjá mig um hvað við tekur að sinni,“ segir Reynir Traustason blaðamaður, en hann er hættur störfum sem ritstjóri Mannlífs. 24.7.2006 07:45
Tólf sækja um embættið Tólf umsóknir bárust um embætti sveitarstjóra í Norðurþingi. Norðurþing varð til við sameiningu Raufarhafnarhrepps, Öxarfjarðarhrepps, Kelduneshrepps og Húsavíkurbæjar. 24.7.2006 07:30
Atvinnuveiðar á hrefnu hefjast hugsanlega á næsta ári Meginmarkmið rannsóknaráætlunarinnar, sem felur í sér veiðar á 200 hrefnum, er að afla grunnþekkingar á fæðuvistfræði hrefnu hér við land en auk rannsókna á fæðusamsetningu með greiningu magainnihalds verður aflað annarra gagna sem nauðsynleg eru til að meta afrán tegundarinnar á hinum ýmsu fæðutegundum. 24.7.2006 07:30
Bjargað eftir fimmtíu tíma Litlum dreng var bjargað úr átján metra djúpri holu á Indlandi í gær. Drengurinn hafði mátt dúsa í holunni í tæpar fimmtíu klukkustundir eða síðan á föstudaginn. 24.7.2006 07:15
Flutu 30 metra niður Krossá Fimm sluppu óslösuð þegar pallbíll þeirra festist í Krossá í Þórsmörk í gær. Bíllinn lenti ofan í hyl, flaut upp og með straumnum um þrjátíu metra niður ána. Þar skorðaðist hann fastur og vatn braut yfir. Fólkinu tókst að klifra upp á þak bílsins og var þaðan bjargað, af björgunarsveit Landsbjargar. Skálaverðir í Húsadal drógu bílinn upp. 24.7.2006 07:15
Látinn vinna launalaust Veitingahús í Reykjavík auglýsti eftir starfskröftum á dögunum. Maður sem sótti um starf var beðinn að vinna einn vinnudag til reynslu og fá ekkert greitt fyrir. Kolólöglegt athæfi, segja stéttarfélögin. 24.7.2006 07:15
Leit á keflavíkurflugvelli einungis á sviði lögreglu Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar réði inn starfsmenn frá öryggisþjónustum til að aðstoða við öryggisleit á vellinum þegar bregðast þurfti skjótt við athugasemdum eftirlitsstofnunar Evrópska efnahagssvæðisins um skort á flugvernd. Þykir mörgum þetta skref í átt að einkavæðingu öryggisgæslu á vellinum. 24.7.2006 07:15
Nútímaþrælabúðir starfræktar á Ítalíu Pólskir og ítalskir lögreglumenn frelsuðu um eitt hundrað Pólverja úr þrælahaldi á Ítalíu í mánuðinum. Tuttugu og fimm voru handteknir í lögregluaðgerðinni, en hún var árangur hálfs árs langrar rannsóknar. 24.7.2006 07:00