Enski boltinn

„Viss um að við gerðum alla á­kaf­lega stolta“

Sindri Sverrisson skrifar
Mikel Arteta er mættur með meistara Arsenal á toppinn.
Mikel Arteta er mættur með meistara Arsenal á toppinn. Getty/Robbie Jay Barratt

„Mér finnst frábært að ná einhverju sem við höfum ekki gert í mörg ár,“ sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, eftir fyrsta sigurinn í deildarleik gegn Liverpool á Anfield í fjórtán ár. Hann var fullur stolts eftir 1-0 sigurinn í dag.

Kai Havertz skoraði sigurmarkið eftir korters leik og Arsenal-vörnin sem verið hefur svo áreiðanleg í haust stóð af sér storminn það sem eftir lifði leiks.

„Ég er ákaflega stoltur. Það eru liðin 14 ár, það er langur tími. Ég er viss um að við gerðum alla sem tengjast félaginu ákaflega stolta í dag. Ekki aðeins vegna sigursins heldur vegna þess hvernig við fórum að því, vegna baráttuandans sem við sýndum. Sérstaklega í ljósi þess sem gerðist fyrir fjórum dögum þegar maður tapar og dettur úr bikarnum gegn liði sem maður á að vinna. Þetta eru töfrarnir við þessa íþrótt, hún getur farið með mann á mjög slæma staði en fjórum dögum síðar fær maður tækifæri til að gera eitthvað virkilega sögulegt og við gerðum það,“ sagði Arteta og var ekkert búinn að gleyma tapinu óvænta gegn Fleetwood Town í deildabikarnum.

„Ég held að við verðum að hrósa leikmönnunum fyrir stöðurnar og færin í dag sem við nýttum ekki. Á heildina litið, að vinna lið sem er að skila því sem það er að skila, og það í því tilfinningalega ástandi sem við vorum í eftir Fleetwood, það er það sem sigurlið á að gera,“ sagði Arteta.

Hann var spurður út í atvikið þegar togað var í treyju Alexanders Isak innan vítateigs án þess að vítaspyrna væri dæmd:

„Nei, ég hef ekki séð það,“ sagði Arteta. Hann vildi heldur ekki gera of mikið úr stöðu Arsenal nú þegar liðið er með þriggja stiga forskot á Manchester City á toppnum.

„Það er of snemmt í dag [að tala um titilbaráttu]. Njótum þessa ótrúlega sigurs með leikmönnunum og starfsfólkinu og á morgun byrjum við að undirbúa okkur fyrir annað stórt, stórt kvöld í Prag.

Ég er ákaflega stoltur; þetta er eitthvað sem maður vill afreka. Það er áskorunin og verkefnið sem maður vill leysa. Mér finnst frábært að ná einhverju sem við höfum ekki gert í mörg ár. Það sama átti við um útileikina gegn Chelsea og Manchester United. Að geta unnið öll þessi lið, það er tilgangurinn og hvatinn og ástæðan fyrir því að við gerum það sem við gerum,“ sagði Arteta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×