Sport

Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geð­veiki“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sherrock gat aldeilis fagnað í gær.
Sherrock gat aldeilis fagnað í gær. Getty

Enski pílukastarinn Farron Sherrock kom, sá og sigraði á sérstöku áskorendakvöldi Luke Littler og Netflix í gærkvöld.

Netflix auglýsti viðburðinn í júlí og bauð almenningi að skrá sig til þátttöku á kvöldinu. Haldin var sérstök undankeppni víða um Bretlandseyjar og eftir stóðu 20 áskorendur sem áttu hver og einn að keppa við Littler í einum ramma af pílukasti, upp í 501.

Viðburðurinn bar heitið „Sigraðu Luke Littler“ og var þeim sem tækist að hafa betur gegn Littler boðin 501 þúsund pund í vinningsfé, eða rúmar 82 milljónir króna.

Áhugamönnum var þar boðið tækifæri að vinna sér inn gríðarháa fjárhæð og prófa að takast á við ríkjandi heimsmeistara. Sherrock hefur verið þátttakandi á mótaröðum í pílukasti og iðulega komist á heimsmeistaramótið í desember en þar sem hún er ekki keppandi á PDC-heimsmótaröðinni var henni heimilt að taka þátt.

Fjórtán pílukastarar höfðu reynt, þar á meðal einn 14 ára gamall, höfðu reynt að hafa betur gegn Littler á viðburðinum í Manchester í gær sem streymt var beint á Netflix. Engum hafði tekist það þegar Sherrock steig á svið.

Hún var nær búllinu (miðju píluspjaldsins) í upphafi og fékk því að byrja og tók út 180, hæsta skor í þremur köstum, í fyrstu heimsókn. Hún var skrefi á undan og kláraði 501 með því að hitta í tvöfaldan 20 með sínu síðasta kasti.

Það kast veitti Sherrock heilar 82 milljónir króna.

„Þetta er geðveiki. Ég kem því ekki í orð hvaða þýðingu þetta hefur, sérstaklega með Rory (son hennar) í salnum. Þetta er í fyrsta skipti sem hann mætir á keppni og sér mig vinna,“ sagði Sherrock eftir að hafa unnið Littler.

Hinn 19 ára gamli Littler, sem er ríkjandi heimsmeistari síðustu tveggja keppna, sagði: „Glæsilegt. Þetta er það sem ein manneskja þurfti að gera, vinna búllið í byrjun og klára rammann í 15 pílum og það er það sem hún gerði. Þetta var í heimsklassa.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×