Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Valur Páll Eiríksson skrifar 29. október 2026 21:05 Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var öflugur í kvöld og gaf 16 stoðsendingar. Þá setti hann vítaskotin í lokin sem skiptu sköpum. Vísir/Anton Brink KR vann 107-102 sigur á Sindra eftir æsispennandi lokamínútur í fjórðu umferð Bónus deildar karla í körfubolta að Meistaravöllum í kvöld. KR er með fullt hús en Sindri án stiga. Sindri hóf leik kvöldsins betur og leiddi eftir fyrsta leikhlutann. KR endaði þann leikhluta þó vel og minnkaði muninn úr átta stigum í þrjú. KR-ingar voru komnir á bragðið og voru sterkari aðilinn í öðrum leikhluta. Eftir hraðan og skemmtilegan leik var staðan 49-42 fyrir KR í hálfleik. Kaleb Higgins fær flugferð.Vísir/Anton Brink KR-ingar hófu þriðja leikhlutann þá töluvert betur en gestirnir. Ákveðinn getumunur virtist sýna sig eftir baráttuanda Sindra til að byrja með og munurinn tuttugu stig, 67-47, um miðjan þriðja leikhluta. Baráttuandi Sindramanna var þó ekki uppurinn og þeir unnu sig aftur inn í leikinn. Munurinn var þó tólf stig eftir þriðja leikhlutann og tilfinningin var á þá leið að maður velti fyrir sér hversu stór sigur KR-inga yrði. Kaleb Higgins óð á súðum í fjórða leikhlutanum, ef hann hafði ekki gert það fyrir, og fann leið inn í leikinn fyrir Sindramenn. Þriggja stiga karfa hans af spjaldinu og niður þegar 15 sekúndur voru eftir minnkaði muninn í eitt stig, 103-102. Martins Meiers var illviðráðanlegur í kvöld.Vísir/Anton Brink Þórir Guðmundur Þorbjarnarson fékk þá tvö vítaskot og setti bæði niður. Sindri tók leikhlé með sömu 15 sekúndur eftir og munurinn þrjú stig. Þar fannst Martins Meiers undir körfunni en í eitt af fáum skiptum í leiknum klikkaði sniðskotið. KR vann boltann, Þórir fór aftur á línuna, setti aftur bæði niður og innsiglaði 107-102 sigur KR eftir mikla og heldur óvænta spennu í lok leiks. Atvik leiksins Gríðarlega mikilvægur þristur Roberts Berzins kom KR 103-99 yfir og virtist klára leikinn. Þar til Kaleb Higgins svaraði stuttu síðar með algjörlega fáránlegum þrist á móti. Lokakaflinn var rosalegur. Stjörnur og skúrkar Kaleb Higgins tapaði leik kvöldsins en hann var bestur á vellinum. Hann skoraði heil 47 stig, tók níu fráköst og gaf 13 stoðsendingar. Kaleb Higgins var rosalegur í liði Sindra í kvöld.Vísir/Anton Brink Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var með 17 stig og 16 stoðsendingar fyrir KR og Linards Jaunzems var afar öflugur með 27 stig. Adam Ramstedt skoraði þá 14 stig og tók tólf fráköst fyrir KR. Dómarar Byrjuðu í smá brasi og gerðu báða þjálfara heldur reiða snemma leiks. Komust svo betur í takt við leikinn eftir því sem leið á. Höfðu ekki áhrif á úrslit leiksins í dag, sem er nákvæmlega það sem maður biður um. Stemning og umgjörð Nokkuð vel mætt í Vesturbæinn í kvöld og stemningin góð hjá ungri stuðningssveit KR-inga. Sindramenn fá hrós fyrir góða mætingu í stúku útiliðsins. Knesevic: Gátum unnið þennan leik Nebojsa Knesevic, þjálfari Sindra.Vísir/Anton Brink Nebojsa Knesevic, þjálfari Sindra, var að vonum svekktur með niðurstöðu kvöldsins. „Þetta eru töluverð vonbrigði. Við höfðum tækifæri til að vinna aftur, eins og í síðasta leik gegn Tindastóli. Við höfum margt til að sjá eftir í kvöld. Það voru of mörg augnablik þar sem við misstum einbeitinguna og stoppuðum ekki nægilega vel hraðar sóknir þeirra. Það er margt að læra af þessum leik og reyna að vinna næsta,“ segir Knesevic sem hefur enn ekki tekist að stýra Sindra til sigurs í deildinni en liðið komst býsna nærri því í kvöld. Martins Meiers klikkaði naumlega á tveggja stiga körfu þegar tæplega 13 sekúndur voru eftir þegar Sindri var þremur stigum undir. Knesevic segir menn hafa viljað ná snöggum tveimur stigum ef þristur myndi ekki opnast í þeirri sókn. „Hugmyndin var annað hvort snöggur tvistur en ef það væri ekki opið að fara í þrist. En skotið klikkaði, það kemur fyrir. Mér fannst við ekki tapa út af því eina skoti, við hefðum getað verið einbeittari í vörn og skotið betur í sókninni. Heilt yfir er bara eftirsjá. Við gátum unnið þennan leik,“ segir Knesevic. Margt jákvætt má taka úr leik Sindra í kvöld en vonbrigðin skyggja á það í augum þjálfarans. „Auðvitað sýndum við baráttu og anda og það að gefast ekki upp. En við eigum fyrst og fremst ekki að byrja þetta svona illa í þriðja leikhluta. Það má hrósa okkur fyrir það koma til baka og skapa spennuna en frá mér sér eigum við ekki að leyfa þeim að ná svo mikilli forystu til að byrja með.“ Berzins: Þreyttur en ánægður Roberts Berzins háði marga baráttuna við Kaleb Higgins í kvöld. Báðir settu hreint galinn þrist í leiknum.Vísir/Anton Brink „Ég er þreyttur en ánægður. Sigur er sigur,“ segir Roberts Berzins, leikmaður KR, eftir leik kvöldsins. „Þetta voru mikil hlaup og mikill eltingaleikur við tvistinn hjá þeim. Við gerðum vel og unnum leikinn sem er fyrir öllu,“ segir Berzins og vísar þar til hins eldsnögga Kaleb Higgins sem hann elti stóran hluta leiks. „Hann var ástæðan fyrir því að þetta varð leikur. Hann hitti að manni fannst úr hverju skoti. Við hefðum mögulega getað gert betur gegn honum en við gerðum flest af því sem þjálfarinn bað um í dag,“ segir Berzins. Hann setti sjálfur stórt þriggja stiga skot þegar skammt var eftir sem kom KR 103-99 yfir sem virtist klára leikinn áður en Higgins svaraði um hæl. „Ég vissi að okkur vantaði stórt skot og mér fannst ég vera í rytma. Í fyrri hálfleiknum var ég dálítið út um allt í skotunum en ég fann skotið og tók það,“ En hvað fer í gegnum hugann á svona augnabliki? „Það er bara að sækja sigurinn og fara heim. Það var það eina sem maður hugsaði um.“ Berzins fagnar því þá að KR hafi unnið fyrstu fjóra leikina í deildinni. „Þetta er frábær tilfinning. Að vinna leiki er það eina sem öllum líkar við svo við viljum bara halda áfram að vinna.“ Körfubolti Bónus-deild karla KR Sindri