Ótrúleg frumraun á Íslandi og heimsmetið var í hættu Sindri Sverrisson skrifar 29. október 2026 18:00 Cassandra Goyette byrjaði feril sinn á Íslandi með stórkostlegum hætti. Hún býr yfir reynslu úr úr bandarísku háskólaíshokkíi og atvinnumennsku. Fjölnir Hin bandaríska Cassandra Goyette gleymir seint fyrsta íshokkíleik sínum á Íslandi því hún setti þá Íslandsmet í sannkallaðri maraþonvítakeppni.
Fjölnir vann lygilegan sigur gegn SR í Toppdeildinni í gærkvöld, í Skautahöllinni í Laugardal, í vítakeppni sem fer í sögubækurnar. Staðan var 2-2 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og því var gripið til vítakeppni sem lauk ekki fyrr en eftir 42 vítaskot. Liðin skoruðu bæði úr fyrsta víti en eftir það tók við sýning markvarðanna. Hin kanadíska Julianna Thomson varði 18 skot fyrir SR auk þess sem eitt víta Fjölnis fór framhjá en Goyette bætti um betur og varði 20 víti! Á vef íshokkídeildar Fjölnis segir að um Íslandsmet sé að ræða hjá Goyette og lengstu vítakeppni í íslensku íshokkí svo vitað sé. Þá sé það ansi nálægt því að vera heimsmet að 42 víti hafi verið tekin í einni og sömu vítakeppninni í íshokkí kvenna. Heimsmetið hafi verið sett í Svíþjóð árið 2015 þegar 56 víti þurfti til að knýja fram úrslit í leik AIK Stockholm og Brynäs Gävle. Goyette verður aftur á ferðinni eftir rúma viku, laugardaginn 7. nóvember, þegar Fjölniskonur sækja SA heim á Akureyri. SA hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum en tapaði í vítakeppni gegn SR sem þó var langtum styttri en vítakeppnin í gærkvöld.
Íshokkí Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Skoruðu tvö síðustu mörkin og náðu jafntefli í Skógarselinu „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Cristiano Ronaldo með þrennu Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Víkingar láta Einar Guðna fara Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur Ótrúleg frumraun á Íslandi og heimsmetið var í hættu Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hyrox stefnir á Ólympíuleikana Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Sparkað í punginn á dómaranum Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Fylkir kennir fjölmiðlum um og Magnús heitur í Kópavoginum Sjá meira