Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Telma Tómasson skrifar 29. október 2026 11:37 Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir Fjármála- og efnahagsráðherra segir mjög ánægjulegt að sjá verðbólgu standa í stað og að hún sé helst drifin áfram af utanaðkomandi þáttum. Hagstofa Íslands birti verðbólgutölur fyrir október í morgun, sem sýna að hún er óbreytt frá fyrri mánuði og stendur í 5,9 prósentum. Rætt er við Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra í hádegisfréttum Bylgjunnar.
Spænska skipafélagið Boluda Shipping og Samskip undirrituðu kaupsamning á Samskipum og dótturfélögum þess í gær. Hjónin Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir voru stærstu eigendur skipafélagsins en sonur þeirra Ólafur Orri Ólafsson var í janúar ráðinn nýr forstjóri samstæðu félagsins. Hann verður áfram forstjóri samstæðunnar undir nýjum eigendum og ræðir um breytingarnar í hádegisfréttum. Hitafundur stendur nú yfir hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, sem telja ríkisstjórn Íslands grafa undan uppbyggingu atvinnulífs og byggðar í landshlutanum með ólíðandi álögum. Þannig eigi að sækja um helming nýrra skattahækkana í Suðurkjördæmi þrátt fyrir að aðeins rúmlega 9 prósent íbúa landsins búi þar. Rætt verður við formann samtakanna í beinni útsendingu. Einnig verður fjallað um stöðuna á Spáni, þar sem alvarlegt lestarslys varð í gær með þeim afleiðingum að minnst 68 létu lífið og tugir slösuðust. Þetta er annað alvarlega lestarslysið á Spáni á skömmum tíma, en í janúar á þessu ári rákust einnig tvær lestir saman með þeim afleiðingum að 46 létust og tugir slösuðust. Slysin hafa vakið upp áleitnar spurningar um öryggi spænska járnbrautarkerfisins. Þá verður fjallað um nýja viðhorfskönnun Maskínu sem sýnir að yfirgnæfandi meirihluti er mótfallin því að Ísland taki þátt í Eurovision verði Ísrael á meðal þátttökuþjóða. Stjórnarkona í félagi áhugafólks um söngvakeppnina segir félagið ekki taka afstöðu í málinu en segir sárt að ekki sé haldin innlend söngvakeppni. Fjölbreyttur hádegisfréttatími á slaginu tólf á Bylgjunni. Umsjónarmaður er Telma L. Tómasson.
Hádegisfréttir Bylgjunnar Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Erlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira