Kraumar enn í Wolt-sendlum Sunna Sæmundsdóttir skrifar 19. október 2026 14:55 Sendlar hjá Wolt funduðu á skrifstofu Eflingar í dag. mynd/Sólveig Anna Tugir sendla hjá fyrirtækinu Wolt komu saman á skrifstofu Eflingar í dag. Þeir fara fram á að lágmarksgreiðslur verði hækkaðar og skipuleggja aðgerðir.
Fyrir rúmum mánuði lögðu sendlar hjá Wolt tímabundið niður störf, mótmæltu við skrifstofur fyrirtækisins og vísuðu til þess að laun þeirra hefðu verið lækkuð um fjörutíu prósent á einu ári. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu nam lágmarksgreiðslan áður um eitt þúsund krónum en hljóðar nú upp á sex hundruð krónur fyrir hverja sendingu. Verkalýðsfélög á Íslandi hafa lýst yfir stuðningi við kjarabaráttu og aðgerðir sendlanna. Í ályktun miðstjórnar Alþýðusambands Íslands er skorað á fyritæki að skrá starfsmenn sem launafólk og fylgja kjarasamninum. Efling hefur þá boðið sendlunum aðstoð og veitt þeim aðgang að starfsfólki og húsakynnum félagsins þrátt fyrir að þeir tilheyri því ekki. „Við viljum sýna þeim samstöðu og lítum svo á að framkoma fyrirtækisins sé aðför að hagsmunum alls verkafólks. Við metum það sem svo að það sé skylda okkar að gera það sem við getum,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður félagsins. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu lögðu sendlanir meðal annars fram kröfu um að lágmarksgreiðslur yrðu hækkaðar á ný upp í eitt þúsund krónur og eru stjórnendur Wolt sagðir hafa farið fram á fjögurra til sex vikna frest til þess að meta kröfuna. Fréttastofa ræddi við sendil hjá Wolt sem segir fólk orðið óþreyjufullt enda fresturinn að líða. Sendlar séu nú að skipuleggja sig og hugi að frekari aðgerðum. Sendlum hjá Wolt var boðið að nýta skrifstofur Eflingar.Vísir/Arnar Í ályktun sem miðstjórn ASÍ sendi frá sér vegna aðgerðanna segir að uppgangur hark-hagkerfisins er alþjóðlegt vandamál og að víða sé sótt að kjörum og réttindum launafólks.
Kjaramál Heimsendingarþjónusta ASÍ Veitingastaðir Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Liðið eins og glæpamanni á þriðjudag Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira