Innlent

Tafir á af­hendingu á bólu­efni við in­flúensu

Atli Ísleifsson skrifar
Fresta þarf tímabókunum um nokkra daga.
Fresta þarf tímabókunum um nokkra daga. Vísir/Vilhelm

Vegna tafa á afhendingu bóluefnis við inflúensu þarf að fresta bólusetningum um nokkra daga. Stefnt er að því að hefja bólusetningar fyrir fólk í áhættuhópum í næstu viku.

Þetta kemur fram í tilkynninu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar segir að áformað hafi verið að hefja bólusetningar fólks í forgangshópum 20. október og hafi heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þegar verið byrjaðar að bóka tíma. 

„Þar sem afhending bóluefnis hefur dregist þarf að fresta tímabókunum um nokkra daga.

Ekki er ljóst á þessari stundu hvenær heilsugæslustöðvar fá bóluefnið en vonast er til þess að það takist að hefja bólusetningar fólks í áhættuhópum fyrir lok október.

Þeir sem teljast í áhættuhópum eru:

  • Fólk 60 ára og eldra.
  • Börn milli 6 mánaða og 5 ára aldurs.
  • Börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Barnshafandi einstaklingar.
  • Heilbrigðisstarfsfólk sem annast fólk í áhættuhópum.
  • Fólk sem telst í áhættu á samsmiti inflúensu og fuglainflúensu vegna starfs síns.

Í kjölfar bólusetninga fólks í áhættuhópum verður opnað fyrir bólusetningar fyrir aðra.

Bóka þarf tíma í bólusetningar í gegnum Heilsuveru en fólk er hvatt til að hinkra þar sem ekki er vitað hvaða dag verður hægt að byrja að bólusetja.

Börn 2 til 4 ára fá nefúða

Vikuna 2. til 6. nóvember verður börnum 2 til 4 ára boðið upp á bólusetningu við inflúensu með nefúða. Ekki þarf að bóka tíma heldur verður opið hús á heilsugæslustöðvum milli 15 og 17. Nefúðinn er kominn til landsins og því engar tafir á þessum bólusetningum.

Eldri systkini sem eru í áhættuhópum eru velkomin með og geta fengið nefúða.

Tilvalið er fyrir foreldra að koma við á heilsugæslunni með börnin á leiðinni heim eftir leikskólann, og bangsinn er velkominn líka til að fá nefúða,“ segir í tilkynningunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×