Innlent

Maðurinn sem lést var Ís­lendingur

Agnar Már Másson skrifar
1830 ANDLÁT .iCf-sa_yMSntb61jQA0A.LrbVMBjwos

Maðurinn sem lést í slysi norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld var fjölskyldufaðir búsettur á Norðurlandi.

Þetta herma heimildir Vísis en Rúv greindi fyrst frá. Karlmaðurinn, sem var á fimmtugsaldri, var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á hálendinu norðan á Gæsavatnaleið á föstudagskvöld.

Slysið átti sér stað þegar tíu manna hópur ferðafólks var að reyna að losa fastan jeppa, að sögn lögreglu.

Lögreglan sagði í tilkynningu í gær að ljóst hefði verið strax í upphafi að um alvarlegt slys væri að ræða og voru viðbragðsaðilar sendir á hæsta forgangi á vettvang. Björgunarsveitir hefðu flutt samferðafólk mannsins til Akureyrar þar sem áfallateymi Rauða krossins hefði veitt því áfallahjálp.

Lögregla segir að rannsóknarnefnd samgönguslysa hafi verið upplýst um slysið.

Að sögn varðstjóra lögreglu er ekki að vænta frekari upplýsinga um málið í dag.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×