Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Kjartan Kjartansson skrifar 13. október 2026 09:19 Bandarískur alríkisfulltrúi ber kassa með hlutum af heimili Ilhan Omar, þingkonu demókrata, sem alríkisstjórnin lagði hald á í gær. AP/J. Scott Applewhite Fulltrúadeildarþingkona Demókrataflokksins segir að húsleit sem var gerð á heimili hennar í gær sé liður í pólitískum ógnunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Demókratar segja tímasetningu húsleitarinnar grunsamlega, innan við mánuði fyrir þingkosningar.
Útsendarar rannsóknararms heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna gerðu húsleit á heimili Ilhan Omar, fulltrúadeildarþingmanns demókrata frá Minnesota, í Washington-borg fyrir dögun í gærmorgun. Leitin er sögð tengjast sakamálarannsókn á meintu skjalafalsi fjölskyldu Omar þegar hún fékk hæli í Bandaríkjunum þegar hún var barn að aldri. Omar fæddist í Sómalíu og er fyrsti bandaríski þingmaðurinn sem fæddist í Afríku. Repúblikanar hafa frá því áður en Omar var kjörin á þing árið 2018 haldið uppi samsæriskenningum um að hún hafi gifst bróður sínum til þess að fá bandarískan ríkisborgararétt. Hún hefur kallað slíkt svívirðilegar lygar. Forðast yfirleitt aðgerðir sem þessar svo skömmu fyrir kjördag Eftir húsleitina í gær sagði Omar í samfélagsmiðlafærslu að hún væri tilraun til þess að ráðast á pólitíska óvini Trump forseta og að beita alríkislögregluyfirvöldum sem vopni gegn þeim. „Í tíu ár hefur Trump beint spjótum sínum að mér með stoðlausum lygum og rógsherferð. Þetta er bara nýjasta stigmögnunin á pólitískum ógnunum hans. Það verður ekki þaggað niður í mér,“ sagði Omar. Omar er frjálslynd þingkona demókrata frá Minnesota. Hún hefur verið hluti af hópi frjálslyndra þingkvenna sem Trump hefur verið sérstaklega uppsigað við. Þingkonurnar eiga það sameiginlegt að vera svartar eða af erlendum uppruna.AP/Adam Gray Leiðtogar Demókrataflokksins á þingi tóku í sama streng í sameiginlegri yfirlýsingu. Trump og hægriöfgamenn hans hefðu um árabil beint rætnum persónuárásum að Omar. „Nú innan við þrjátíu dögum fyrir þingkosningar hefur ofbeldisfull fjöldabrottvísanavél hans lent á heimili réttkjörins þingmanns og fjölskyldu hans,“ sagði í yfirlýsingu Hakeem Jeffries, leiðtoga demókrata í fulltrúadeildinni og félaga hans. AP-fréttastofan segir að bandaríska dómsmálaráðuneytið hafi sögulega reynt að forðast svo áberandi aðgerðir gegn frambjóðanda tveimur mánuðum fyrir kjördag. Segist ekkert vita um rannsóknina Trump sjálfur bar við fáfræði þegar fréttamenn spurðu hann um húsleitina í gær. Hann hefði ekki hugmynd um hvað rannsókninni á Omar liði. Q: Did you know about Ilhan Omar's house search in advance? TRUMP: Well, I understand they are looking at her very carefully. I've always found her to be totally crooked personally, but that has nothing to do with me. I think she's a terrible person. She comes from a country that is a non-country.[image or embed]— Aaron Rupar (@atrupar.com) October 12, 2026 at 9:01 PM Síðar í gær hélt Trump áfram að gagnrýna Omar og uppruna hennar á kosningafundi með stuðningsmönnum í Ohio. Sagði hann að Omar kæmu frá „einu versta landi nokkurs staðar á plánetunni“. Stuðningsmenn forsetans brugðust við með því að kyrja: „Brottvísun“. Alríkisfulltrúar lokuðu götunni sem hús Omar stendur við í Washington-borg á meðan húsleitin fór fram í gærmorgun.AP/J. Scott Applewhite Bæði Trump, J.D. Vance, varaforseti hans og fleiri repúblikanar hafa ekki farið leynt með að þeir telji að Omar sé ólöglega í Bandaríkjunum. Markwayne Mullins, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, sagði í hlaðvarpsviðtali í síðasta mánuði að „eitthvað ætti eftir að gerast“ í rannsókn ríkisstjórnarinnar á Omar. „Ef þú ákveður að brjóta lög eða ljúga í þeim upplýsingum sem þú gafst Bandaríkjunum til þess að geta komið til Bandaríkjanna þá er enginn fyrningarfrestur á því,“ sagði Mullin en Omar var þrettán ára þegar hún fékk hæli vestanhafs.
Bandaríkin Donald Trump Sómalía Innflytjendamál Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira