Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 11. október 2026 09:12 Veðurofsinn olli miklu tjóni. Skjáskot Tugir slösuðust þegar tveir skýstrókar gengu yfir strandbæinn Marsala á vesturströnd Sikileyjar á föstudag. Bílar ultu og byggingar skemmdust, þar á meðal skóli þar sem 273 nemendur voru við nám.
Að minnsta kosti ellefu voru fluttir á sjúkrahús eftir að hafa orðið fyrir braki og glerbrotum, að því er Guardian greinir frá. Sjötugur maður var meðal þeirra sem verst varð út úr því. Hann var lagður inn á sjúkrahús í bænum Mazara del Vallo með mörg beinbrot og var ástand hans talið lífshættulegt. Myndskeið sem birtust á föstudagsmorgun sýndu tvo skýstróka nálgast bæinn af hafi. Miklar skemmdir urðu þegar þeir gengu á land. Sex börn slösuðust í skóla Sex börn hlutu minniháttar skurði og skrámur þegar strokkur skall á skóla í bænum. Byggingin var rýmd í snatri. Á drónamyndum sem teknar voru eftir á mátti sjá umfangsmiklar skemmdir á skólanum. Rúður höfðu brotnað og borð og stólar oltið um koll. Ljósmyndir frá bænum sýndu jafnframt bíla á hvolfi og skemmdir á öðrum byggingum. Óvenjuhlýr sjór magni byli Óveðurskerfið myndaðist við aðstæður þar sem mikill hiti var yfir Norður-Afríku og sjór í Miðjarðarhafi óvenjuhlýr miðað við árstíð. Vísindamenn hafa varað við því að hækkandi sjávarhiti vegna loftslagsbreytinga geti aukið tíðni öflugar storma á svæðinu. Á Miðjarðarhafi myndast stöku sinnum lægðir með einkenni hitabeltisfellibylja. Þeim geta fylgt vindhraði yfir 27 metrum á sekúndu og allt að fimm metra háar öldur. Sérfræðingar hafa meðal annars tengt metsjávarhita við óveðrið sem grandaði lúxussnekkjunni Bayesian undan ströndum Sikileyjar í ágúst 2024. Sjö fórust í því slysi, þar á meðal breski tæknifjárfestirinn Mike Lynch og dóttir hans á unglingsaldri.
Ítalía Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira