Handbolti

Kannast ekki við krísufund á Hlíðar­enda

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ágúst Jóhannsson gerði Valsmenn að Íslandsmeisturum í vor.
Ágúst Jóhannsson gerði Valsmenn að Íslandsmeisturum í vor. vísir/Diego

Ágúst Jóhannsson, þjálfari karlaliðs Vals í handbolta, kannast ekki við fregnir af krísufundi hjá liði hans í aðdraganda stórsigurs á Mors-Thy frá Danmörku í Evrópudeildinni í gær.

Eftir að hafa fagnað Íslandsmeistaratitlinum í vor hættu stórir póstar og raðmeistarar í Magnúsi Óla Magnússyni, Agnari Smára Jónssyni og Róberti Aroni Hostert. Enn frekari breytingar urðu á hópi Vals sem hefur ekki byrjað tímabilið sérstaklega heima fyrir.

Liðið tapaði illa síðastliðinn föstudag gegn KA og hefur aðeins unnið tvo af fjórum leikjum í upphafi móts.

Því var haldið fram í hlaðvarpinu Handkastið að Valsmenn hefðu haldið krísufund í aðdraganda leiksins í kvöld.

Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, vildi ekki kannast við það aðspurður út í þær fregnir af Þorsteini Hjálmssyni, fréttaritara Vísis, eftir stórsigurinn á Mors-Thy í gær.

„Nei, allavega veit ég ekki af því. Nema einhverjir aðrir en ég séu farnir að halda krísufundi. Þú verður að spyrja Handkastið að því,“ segir Ágúst.

„Mótið er rétt að byrja og við erum með mjög breytt lið. Við misstum fimm til sex leikmenn frá því í fyrra, þannig að við erum að koma okkur aðeins af stað. Við sýndum okkar rétta andlit í dag og ætlum að byggja ofan á þetta. Sigurinn var góður í dag, en við þurfum að vakna á morgun með báða fætur á jörðinni og vera tilbúnir í leik á föstudaginn á móti Þór sem verður gríðarlega erfitt verkefni.“

Ágúst var þá spurður út í markmið Vals í Evrópudeildinni, en liðið er ásamt Mors-Thy með Tatabanya frá Ungverjalandi og Grosist Slovan frá Slóveníu í riðli.

„Það er klárt mál að þegar þú ferð í fjögurra liða riðil og tvö lið fara áfram, þá er markmiðið að fara áfram. Við erum samt meðvitaðir um það að þetta eru sterk lið. Tatabanya vann Pick Szeged núna um daginn í deildinni og Slóvenarnir eru góðir. Markmiðið er að fara áfram.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×