Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Þorsteinn Hjálmsson skrifar 29. september 2026 21:47 Arnór Snær var markahæstur í liði Vals í kvöld. vísir/Anton Valur vann í kvöld stórsigur á danska liðinu Mors-Thy í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar. Ellefu marka sigur var niðurstaðan í leik sem heimamenn léku við hvurn sinn fingur. Lokatölur 39-28 og Valsmenn byrja tímabilið í Evrópudeildinni af krafti. Mótherjinn í dag, Mors-Thy, endaði í fjórða sæti dönsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og fór alla leið í undanúrslit um danska meistaratitilinn. Því var ekki um neina aukvisa að ræða sem mættu í N1-höllina í kvöld, enda danska úrvalsdeildin talin sú sterkasta á Norðurlöndunum. Fyrstu 17 mínútur leiksins fylgdust liðin algjörlega að í markaskori og staðan var 10-9 fyrir Íslandsmeisturum Vals á þeim tímapunkti og tóku gestirnir þá leikhlé. Það leikhlé skilaði afar takmörkuðum árangri fyrir Mors-Thy, því Valsmenn stoppuðu betur upp í varnarleikinn hjá sér á meðan Björgvin Páll varði nokkra bolta. Lokaði Björgvin Páll til að mynda nánast á öll hornafæri gestanna og slök skotnýting þaðan getur haft afdrifarík áhrif. Björgvin Páll Gústavsson fór á kostum í kvöld.vísir/Diego Gestirnir fundu fyrir þeim áhrifum því að heimamenn fóru með fjögurra marka forystu inn í hálfleikinn. Staðan var 19-15 í hálfleik. Danirnir ætluðu að hefja síðari hálfleikinn af krafti með hröðum leik og koma Valsmönnum í opna skjöldu. Það getur þó verið banabiti liða gegn Val, því þegar hraðinn í leiknum eykst þá veitir þú Valsmönnum færi á því að hlaupa yfir þig, sem raungerðist. Þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum og gestirnir tóku leikhlé voru Valsmenn búnir að skora 28 mörk gegn aðeins 21 marki. Réðu gestirnir engan veginn við hraðann í Val, sem er svipað stef og hefur verið þegar lið frá Evrópu mæta Val og þá sérstaklega að Hlíðarenda. Líkt og Björgvin Páll kom að í viðtali eftir leik voru gestirnir hreinlega orðnir hræddir við Val á þessum tímapunkti og mótstaðan því lítil í takt við það. Heimamenn bættu því bara í og lauk leiknum, eins og áður segir, með ellefu marka sigri. Atvik leiksins Í upphafi síðari hálfleiks byrjuðu gestirnir með boltann og fóru beint í árás og koma Val á óvart. Heppnaðist það ekki betur en svo að Valsmenn stálu boltanum og skoruðu í tómt marki gestanna á hinum enda vallarins. Gaf þetta tóninn fyrir það sem koma skyldi í síðari hálfleik, þar sem Valur valtaði yfir Mors-Thy. Stjörnur og skúrkar Björgvin Páll á núna heima í martröðum hornamanna Mors-Thy. Þessi síungi markvörður var vel gíraður í kvöld og dró tennurnar úr gestunum þegar þeir mættu honum í dauðafærum. U.þ.b. 40 prósent markvarsla hjá Björgvini Páli. Arnór Snær Óskarsson skín skærast í leikjum þar sem hraðinn er í fyrirrúmi. Endaði þessi öflugi leikmaður með tíu mörk í leiknum úr aðeins þrettán skotum. Arnór Snær, engum líkurVÍSIR / DIEGO Fólk á svo að drífa sig í N1-höllina til þess að horfa á Gunnar Róbertsson sem mun ekki spila lengi hér heima fyrir. Átta mörk hjá Gunnari í kvöld. Hvernig gestirnir koðnuðu niður því sem á leið leikinn var í raun magnað að horfa upp á. Lið sem á að vera í og við toppinn í Danmörku átti ekki séns í Val í kvöld. Dómarar Dómarar leiksins voru þeir Anatolii Novykov, frá Úkraínu, og Mindaugas Gatelis, frá Litháen, voru með allt í teskeið í kvöld. Auðvitað einhverjir dómar og ekki-dómar sem er hægt að setja spurningarmerki við, en þetta er handbolti, og sama línan átti við um bæði lið sem er ekki alltaf. Stemning og umgjörð Alvöru umgjörð á þessum leik, enda EHF með kröfur á liðin sem taka þátt í Evrópudeildinni. Stemningin var fín en jókst umtalsvert þegar sást í hvað stemmdi. Mæli með að fólk fari á Evrópudeildarleiki Vals og FH í vetur, sem leika bæði í keppninni. „Þurfum að vakna á morgun með báða fætur á jörðinni“ Ágúst Jóhannesson, þjálfari Vals, var að vonum afar sáttur með sína menn eftir að þeir burstuðu danska liðið Mors-Thy í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar með ellefu marka mun. Ágúst Jóhannsson stýrði Valsmönnum að titlinum á sínu fyrsta tímabili. vísir / diego „Mér fannst við bara koma mjög vel út strax í byrjun, litum mjög vel út og vorum orkumiklir. Varnarleikurinn var sterkur og Björgvin auðvitað frábær fyrir aftan. Við náðum að keyra hraðaupphlupin vel, bæði sex á sex og sjö á sex, það hjálpaði okkur mikið í seinni bylgjunni í fyrri hálfleiknum. Svo vorum við að fá framlag frá ansi mörgum leikmönnum. Fengum inn Dag og Bjarna. Bjarni góður sóknarlega og Dagur mjög sterkur varnarlega. Liðsheildarsigur hjá okkur,“ sagði Ágúst, en Bjarni í Selvindi og Dagur Leó Fannarsson hafa verið meiddir að undanförnu og ekki spilað í nokkurn tíma hjá Val, en báðir spiluðu meirihluta leiksins í dag. Aðspurður einmitt út í stöðuna á þessum tveimur leikmönnum, þá hafði Ágúst þetta að segja. „Bjarni var búinn að æfa tvær æfingar, þannig að ég vissi að hann var klár. Dagur er svo sem bara gerður úr stáli eins og pabbi sinn. Við ákváðum það bara rétt fyrir leik að hann myndi byrja. Við vissum það að það væri kannski betra að láta hann byrja og prófa hann þannig, í stað þess að láta hann setjast niður og ökklinn hjá honum hélt.“ Mótherjinn í dag á að teljast sem nokkuð sterkur, en liði er það fjórða besta í Danmörku þar sem er ein af sterkari deildum Evrópu. Bjóst Ágúst við þessari frammistöðu frá mótherjanum? „Nei. Við erum náttúrulega búnir að skoða marga leiki með þeim og þeir eru búnir að spila að mörgu leyti bara vel í dönskudeildinni. Ég átt í langt í frá von á þessu og ég hefði bara verið þakklátur fyrir eins marks sigur hérna. En eins og frammistaðan var hjá okkur í dag og orkan, þá sýndum við mjög góða frammistöðu. Sérstaklega miðað við hvernig við höfum verið í síðustu leikjum.“ Evrópudeild karla í handbolta Valur