Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Samúel Karl Ólason skrifar 29. september 2026 11:19 Margus Tsahkna, utanríkisráðherra Eistlands, segir að árásin og aðkoma Rússa að henni sé með öllu ólíðandi. Hann segir að sendiherra Rússlands í Eistlandi verði kallaður á teppið í dag. AP/Aurel Obreja Yfirvöld í Eistlandi segja útsendara Rússlands hafa gert íkveikjuárás á eistneskt hergagnafyrirtæki í Tallinn í ágúst. Rússneskir starfsmenn þarlendra leyniþjónusta hafi staðið að árásinni og er hún sögð liður í skuggastríði Rússa gegn Evrópu, sem ætlað sé að ógna ráðamönnum og íbúum heimsálfunnar og grafa undan stuðningi við Úkraínumenn.
Þrír menn voru handteknir eftir árásina, sem gerð var aðfaranótt 15. ágúst. Þá kviknaði eldur í byggingu Milrem Robotics, sem framleiðir meðal annars róbóta sem notaðir eru af Úkraínumönnum. Í frétt ríkisútvarps Eistlands segir að eldurinn hafi verið fljótt slökktur og engan hafi sakað. Í kjölfarið voru þrír Lettar handteknir í Lettlandi. Í fórum þeirra fundust munir sem bentu til þess að þeir bæru sök á árásinni og voru mennirnir framseldir til Eistlands fyrr í þessum mánuði. Í yfirlýsingu frá öryggislögreglu Eistlands sem birt var í morgun segir að árás þessi hafi verið skipulögð af rússneskum njósnurum og þeir hafi fengið Lettana þrjá til að framkvæma hana. Þetta sé í samræmi við aðrar árásir í Evrópu á undanförnum árum sem Rússar hafa verið bendlaðir við. Sjá einnig: Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Margar þeirra hafi beinst að evrópskum hergagnaframleiðendum og þá sérstaklega á sviði dróna og róbóta, sem koma með einhverjum hætti að stuðningi við Úkraínumenn. Fyrr í mánuðinum ákærðu yfirvöld í Bandaríkjunum fimm menn sem grunaðir eru um að skipuleggja fjölþáttaárásir í Evrópu og launmorð í Bandaríkjunum, fyrir hönd rússneskrar leyniþjónustu. Mennirnir mynda hóp sem kallaður er RIS og hafa þeir reynt að ráða aðra gegnum netið til að gera árásir fyrir þeirra hönd. Kristen Michal, forsætisráðherra Eistlands, segir að Eistar muni ekki láta ógna sér með þessum hætti. Árásin og aðrar muni ekki bera árangur og muni þess í stað hafa þveröfug áhrif en þau sem Rússar vilja. Hann segir að Eistar muni bæta öryggi sitt, styðja Úkraínumenn frekar og taka þátt í að beita Rússa enn meiri þrýstingi. The arson attack against Milrem Robotics was ordered by Russian special services.This is part of Russia’s broader campaign across Europe to intimidate us and weaken our support for Ukraine. It will not work.Our response will be the opposite: stronger security at home, more…— Kristen Michal (@KristenMichalPM) September 29, 2026
Eistland Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Fjölþáttaógnir Hernaður Vladimír Pútín Lettland Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Innlent Fleiri fréttir Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Sjá meira