Upp­gjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
FH er einu marki undir í einvíginu gegn stórliðinu.
FH er einu marki undir í einvíginu gegn stórliðinu. Anton/Vísir

FH mátti sætta sig við naumt 0-1 tap gegn þýska stórliðinu Eintracht Frankfurt í fyrri leik liðanna í annarri umferð umspils Evrópubikars kvenna í dag. FH-ingar stóðu vel í gestunum en eina mark leiksins kom eftir vítaspyrnu.

Eintracht Frankfurt byrjaði betur og skapaði sér nokkur góð færi en FH vann sig vel inn í leikinn og varðist bæði af krafti og var óhrætt við að sækja á þýska stórliðið.

Það var markalaust í hálfleik og FH-ingar gátu verið virkilega sáttar með sína frammistöðu.

Frankfurt setti meiri kraft í sóknarleikinn í síðari hálfleik en Aldís Guðlaugsdóttir gerði einkum vel í marki FH.

FH hélt einnig áfram að ógna og kom sér í nokkrar ágætis stöður. Á sama tíma varðist liðið vel á eigin vallarhelmingi.

Á 59. mínútu fengu gestirnir víti. Jónína Linnet var aðeins of sein til boltans og braut á Danique Tolhoek innan eigin vítateigs.

Rebecka Blomqvist steig á punktinn og skoraði, 0-1. Aldís fór í rétt horn en náði því miður ekki til boltans.

Bæði lið leituðu að marki á lokakaflanum en mörkin urðu ekki fleiri. 1-0 fyrir Frankfurt í einvíginu og munu liðin mætast aftur eftir viku í Þýskalandi.

Atvik leiksins

Vítið sem FH-ingar fengu á sig stendur uppúr. FH gerði afskaplega vel í dag bæði í vörn og sókn og því svekkjandi að fá þetta víti á sig.

Stjörnur og skúrkar

Aldís Guðlaugsdóttir átti frábæran leik í marki FH-inga.

Stemning og umgjörð

Rúmlega 500 manns mættu og hvöttu liðið sitt áfram í Kaplakrika í dag.

Dómarar

Dómarateymið kom í þetta sinn frá Noregi. Karoline Marie Jensen var á flautunni og henni til aðstoðar voru þær Helle Reiten og Victoria Nilsen. Fjórði dómari var hún Maren Hatletvedt.

Dómgæslan var heilt yfir fín í dag en þó voru nokkur atvik þar sem Karoline hefði mátt flauta.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira