Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Smári Jökull Jónsson skrifar 22. september 2026 07:37 Þingkosningarnar í Svíþjóð voru afar spennandi og fylgst var náið með talningu atkvæða. Vísir/EPA Sænsk yfirvöld rannsaka nú meint kosningasvindl eftir að kæra barst yfirvöldum í kjölfar þingkosninganna í Svíþjóð þann 13. september síðastliðinn. Frambjóðandi Vinstriflokksins er meðal annars sakaður um að hafa borgað fólki fyrir að merkja við sig á kjörseðlinum.
Meint brot á að hafa átt sér stað í bænum Borlänge í kjördæminu Dalarna í Norður-Svíþjóð og hefur sérstök eining sænska ríkissaksóknaraembættisins sem rannsakar spillingarmál nú tekið málið til rannsóknar. Samkvæmt heimildum Aftonbladet snýr rannsókn málsins að frambjóðanda Vinstriflokksins, Mohamed Abdukardir Ali, og hvernig hann náði kjöri á þing. Engar upplýsingar eru um hvort Ali sé sjálfur grunaður um lögbrot en blaðið skrifar að sést hafi til einstaklings sem hafi afhent kjósendum útfyllta kjörseðla þar sem búið var að merkja við nafn Ali. Geta mætt með kjörseðil á kjörstað Sænska kosningakerfið er sérstakt að því leyti að hægt er að merkja við við tiltekinn frambjóðanda á kjörseðli sem þá getur færst ofar á lista fái hann nægilegan fjölda atkvæða. Slík varð einmitt raunin með Ali sem var í sjöunda sæti á lista Vinstri flokksins en náði engu að síður þingsæti. Er afar sjaldgæft að frambjóðendur svo neðarlega á lista færist jafn hátt upp og Ali gerði. Það sem gerir sænska kerfið jafnframt sérstakt er að flokkarnir prenta sjálfir út og deila eigin kjörseðlum sem kjósandi getur mætt með á kjörstað. Kjósendur geta einnig valið úr kjörseðlum á kjörstað. Ekki er vitað hvort yfirheyrslur hafi farið fram í tengslum við kæruna en samkvæmt Aftonbladet eru meðal annars til myndir þar sem áðurnefndur einstaklingur sést taka út pening í hraðbanka og afhenda fólki ásamt útfylltum kjörseðli þar sem búið var að merkja við nafn Ali. Harðneitar að hafa brotið af sér Sjálfur neitar Ali öllum ásökunum. „Þetta er algjörlega, algjörlega rangt. Ég gerði þetta ekki og ég þekki lögin. Ég hef notið trausts í hverju einasta kjördæmi í Dalarna og þetta er ekki eitthvað sem ég myndi gera. Þetta er alvarlegt brot á sænskum lögum,“ sagði Ali í viðtali við sænska ríkisútvarpið SVT. Hann segist ekki hafa rætt við lögregluna og ekki fengið formlega tilkynningu um að hann liggi undir grun. Oscar Edvardsson saksóknari staðfestir við SVT að kæra hafi borist en vill að öðru leyti ekki tjá sig um smáatriði málsins. „Ég get í rauninni ekki sagt neitt um hvað málið snýst eða hvort einhver sé grunaður. Það er vegna rannsóknarhagsmuna og þeirrar staðreyndar að rannsóknin er á frumstigi,“ en kæran barst saksóknaraembættinu þann 1. september eða tæpum tveimur vikum fyrir kjördag. Málið var upphaflega fellt niður vegna skorts á sönnunargögnum en tekið upp að nýjua á mánudag eftir að nýjar upplýsingar bárust. Forsvarsmenn Vinstri flokksins hafa ekki enn tjáð sig um málið en samkvæmt Aftonbladet gætu yfir 200.000 Svíar þurft að kjósa aftur ef rannsókn málsins leiðir í ljós svindl.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Fleiri fréttir Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Sjá meira