Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sindri Sverrisson skrifar 21. september 2026 07:02 Alvaro Arbeloa var hundóánægður með dómgæsluna í jafnteflinu við Manchester United. Getty/Justin Setterfield Alvaro Arbeloa, stjóri Fulham, segist hafa verið handviss um að dómararnir myndu ekki láta það gerast að Manchester United tapaði gegn hans mönnum, eftir mistökin sem gerð voru í síðasta leik United.
Þetta sagði Arbeloa við Sky Sports eftir 1-1 jafntefli Fulham og United í gær, þar sem Matheus Cunha skoraði jöfnunarmark í lokin. Arbeloa sagði að í aðdraganda marksins hefði ekki átt að dæma aukaspyrnu handa Harry Maguire, þegar Cesar Palacios braut á honum við miðlínuna, en að allir dómar hefðu fallið með United í leiknum. Því hefði hann búist við eftir að mark Erlings Haaland fékk ranglega að standa í Manchester-slagnum fyrir viku. „Allir dómar féllu með þeim. Þið sjáið þetta þegar þeir skoruðu, brotið á Maguire, hann er 100 kílóa maður. Allar ákvarðanir féllu með þeim,“ sagði Arbeloa. „Og ég vissi það. Ég vissi eftir leikinn við Manchester City að þeir myndu ekki láta Manchester United tapa hérna. Við áttum aðeins meira skilið,“ sagði Arbeloa. Arbeloa þarf enn að bíða eftir fyrsta sigrinum sem stjóri Fulham en jafnteflið dugði til að komast úr botnsætinu, upp fyrir Tottenham á markatölu. „Við vorum svo nálægt þessu. Svo, svo nálægt. Við vorum svolítið óheppnir aftur. Við vissum að þetta yrði erfitt gegn svona stórliði. Við vissum líka hvað gerðist um síðustu helgi. Við sáum hvað dómararnir gerðu allan leikinn svo þetta var erfitt. Og við vorum óheppnir,“ sagði Arbeloa við Sky Sports en dró svo nokkuð í land á blaðamannafundi og sagði enskuna sína ekki sérlega góða.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Sjá meira