Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Smári Jökull Jónsson skrifar 14. september 2026 12:32 Magdalena Andersson leiðtogi Jafnaðarmanna og Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar og leiðtogi Moderaterna. Vísir/EPA Allt útlit er fyrir að ríkisstjórn hægri manna í Svíþjóð sé fallin en endanleg niðurstaða þingskosninganna í gær verður þó ekki ljós fyrr en síðar í vikunni. Stjórnmálafræðingur við Háskólann í Malmö segir að framundan sé stjórnarmyndunarmaraþon.
Þegar búið er að telja 94 prósent atkvæða eftir þingkosningarnar í Svíþjóð eru stjórnarandstöðuflokkarnir með 176 þingmenn en ríkisstjórn hægri flokka 173. „Það verður ekki búið að telja atkvæði fyrr en núna seinna í vikunni en þetta lítur nú þannig út að væntanlega mun stjórnarandstaðan með Jafnaðarmannaflokkinn sem stærsta flokkinn í broddi fylkingar, fá stjórnarmyndunarumboðið,“ sagði Gunnhildur Lilý Magnúsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við Háskólann í Malmö, í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Leiðtogar stjórnmálaflokkanna Amanda Lind Talsmaður Græningja. Daniel Helldén Talsmaður Græningja. Ebba Busch Formaður Kristilegra demókrata og orku- og iðnaðarráðherra. Elisabeth Thand Ringqvist Formaður Miðflokksins. Jimmie Åkesson Formaður Svíþjóðardemókrata. Magdalena Andersson Formaður Sósíaldemókrata. Nooshi Dadgostar Formaður Vinstriflokksins. Simona Mohamsson Formaður Frjálslynda flokksins og menntamálaráðherra. Ulf Kristersson Formaður Moderaterna og forsætisráðherra. Hún segir Miðflokkinn, sem segja má að sé systurflokkur Framsóknarflokksins, vera í oddastöðu en flokkurinn hefur útilokað að vinna með Vinstriflokknum sem og fjarhægriflokki Svíþjóðardemókrata. Þetta þrengir stöðu Magdalenu Andersson leiðtoga Jafnaðarmanna sem gæti freistað þess að mynda miðjustjórn og reynt að fá Kristilega demókrata til þess að yfirgefa hægri blokkina svokölluðu. Vinstriflokkurinn, sem hefur gert kröfu um sæti í ríkisstjórn, yrði þá aðeins stuðningsflokkur. „En þetta er auðvitað mikið hitamál fyrir Vinstriflokkinn sem aldrei hefur setið í ríkisstjórn að taka sæti við borðið,“ bætir Gunnhildur við. Niðurstöður þingkosningaþegar 95% atkvæða hafa verið talin Mun reyna að halda stjórninni á lífi Ulf Kristersson forsætisráðherra og formaður Moderaterna hittir samherja sína í ríkisstjórninni í kvöld en hann mun líklega reyna að fá fulltrúa Svíþjóðardemókrata og Miðflokksins til að finna flöt á samstarfi. „Hann hefur hingað til lagt mikla áherslu á það að stöðugleikinn felist í því að halda áfram með sömu ríkisstjórn en bjóða þá Svíþjóðardemókrötunum formlega inn í ríkisstjórnina og að það sé eini raunhæfi kosturinn. Þeir hafa verið stuðningsflokkur hingað til.“ „Hann var hins vegar aðeins svona óljósari eða sveigjanlegri í gærkvöldi og svo í morgun þegar hann talaði um það að það þyrfti auðvitað að skoða alla valmöguleika. Þannig að það voru svolítið önnur skilaboð en við höfum séð hingað til en það auðvitað helgast af því að stjórnin er fallin ef þessi úrslit standa.“ Gunnhildur Lilý telur þó ekki líklegt að Miðflokkurinn muni styðja við stjórn með Svíþjóðardemókrata innanborðs. „Einn möguleiki væri að borgaralega blokkin [núverandi ríkisstjórn] myndi halda sig við þriggja flokka stjórn og bjóða Svíþjóðardemókrötunum að halda áfram sem stuðningsflokkur. Mögulega gæti Miðflokkurinn sætt sig við það ef að Svíþjóðardemókratarnir væru ekki formlega í ríkisstjórn.“ Súr stemmning hjá Svíþjóðardemókrötum Svíþjóðardemókratar töpuðu hlutfallslega mestu fylgi allra flokka í kosningunum. Þeir voru næst stærsti flokkurinn eftir kosningarnar 2022 og í raun samkvæmt skoðanakönnunum allan aðdraganda kosninganna nú. Samkvæmt tölunum nú er flokkurinn með 17,5 prósent en fékk 20,5 prósent fyrir fjórum árum.Þetta er í fyrsta sinn sem Svíþjóðardemókratar tapa fylgi síðan þeir komust fyrst á þing árið 2010. „Einhver hluti af þeirra kjósendum ákvað að kjósa taktist og kjósa Frjálslynda flokkinn til að halda honum inni á þingi. Svo hefur einhver hluti þeirra kjósenda farið aftur til hófsamra hægri manna [Moderaterna] og Jafnaðarmanna.“ Jimmie Åkesson er formaður Svíþjóðardemókrata.Vísir/EPA Gunnhildur Lilý segir að stöðu Svíþjóðardemókrata þurfi að greina betur. „Hugsanlega hafa einhverjir hlutar þeirra kjósenda gert sér grein fyrir því að Svíþjóðardemókratarnir eru að mörgu leyti á hægri ásnum líka þegar kemur að efnahagsmálum en þeir hafa markaðssett sig sem hinn nýja verkamannaflokk. Þar hafa kannski einhverjir kjósendur haft væntingar en Svíþjóðardemókratar ekki getað staðið við það sem þeir hafa lofað.“ Mun mæða mikið á forseta þingsins Forystumenn Jafnaðarmanna hittust í höfuðstöðvum flokksins í Stokkhólmi í morgun og Kristersson sagði að leiðtogar stjórnarflokkanna ætluðu sér að hittast í kvöld. Kristersson sagði að engin ríkisstjórn yrðu mynduð ef allir flokkar myndu halda fast í sínar kröfur. Heldur þú að sé raunhæfur möguleiki á því að það þurfi hreinlega að kjósa aftur? „Það er ákaflega lítil hefð fyrir því hérna í Svíþjóð. Við sáum til dæmis árið 2018 að þá tók marga mánuði að mynda stjórn. Það tók yfir 130 daga að mynda stjórn.“ „En það verða fjórar umferðir að hámarki í stjórnarmyndunarmaraþoninu sem er fram undan. Þannig að ég geri ráð fyrir að það muni mæða mikið á forseta þingsins að halda flokksformönnum stærstu flokkanna við efnið,“ sagði Gunnhildur Lilý að lokum.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Sjá meira