Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Kjartan Kjartansson skrifar 14. september 2026 10:18 Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands í kjaradeilu fyrir nokkrum árum. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson Formaður samninganefndar Flugvirkjafélags Íslands lýsir vonbrigðum með framgöngu og yfirlýsingar forstjóra Icelandair á meðan atkvæðagreiðsla stendur yfir um verkfallsaðgerðir. Hann óskar eftir að flugvirkjar fái að greiða atkvæði í friði.
Atkvæðagreiðslu félagsmanna Flugvirkjafélags Íslands sem starfa hjá Icelandair um vinnustöðvanir lýkur á hádegi en hún hófst á föstudag. Um helgina sagði Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, að mögulegar aðgerðir flugvirkja gætu næstum lokað landinu. Þetta segir Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélagsins og formaður samninganefndar þeirra, varahugarverða og óábyrga framsetningu. „Flugvirkjar eru ekki að kjósa um það hvort Ísland verði opið eða lokað. Flugvirkjar loka ekki landinu. Verkfall myndi hafa veruleg áhrif á starfsemi Icelandair, en Icelandair er ekki eina flugfélagið sem flýgur til og frá Íslandi. Áhrifin geta verið mikil án þess að ein starfsstétt hafi þar með í höndum sér að „loka landinu“,“ segir í yfirlýsingu hans á vefsíðu félagsins í dag. Yfirlýsingar forstjóra Icelandair væru til þess fallnar að hafa áhrif á atkvæðagreiðsluna, hvort sem það hefði verið ætlunin eða ekki. „Flugvirkjar hafa reynt að semja. Nú taka þeir sjálfir ákvörðun um næstu skref. Leyfum þeim að kjósa í friði!“
Flug Kjaramál Icelandair Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira