Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Samúel Karl Ólason skrifar 8. september 2026 23:24 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. Vísir/Anton Ísland mun áfram starfa með Evrópusambandinu að sameiginlegum hagsmunum þess en erfiðir tímar séu nú yfirstandandi sem þarfnist samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“. Íslendingar vilja halda samstarfinu á þeim grunni sem það er nú þegar og þótt að ekki verði farið í frekari viðræður verður aðildarumsókn Íslands enn óbreytt.
Þetta er meðal þess sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir í bréfi sem hún sendi til Helen McEntee, utanríkisráðherra Írlands, í dag en hún fer með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins. Bréfið snýr að niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og ítrekar Þorgerður þar að ríkisstjórn Íslands ætli ekki að hefja aðildarviðræður á ný. Þar leggur Þorgerður áherslu á að Ísland muni áfram vinna náið með ESB. Í bréfinu segir Þorgerður að Evrópusambandið sé meðal nánustu bandamanna Íslendinga og að Íslendingar muni halda áfram í að takast á við sameiginlegar áskoranir með bandalaginu. Vísar hún sérstaklega til öryggismála, EES-samningsins og Schengen-samstarfsins. Þorgerður nefnir einnig aukið samstarf á sviðum fiskveiða, hafsvæða og norðurslóða bjóði upp á ýmis tækifæri. Þá segir Þorgerður að ríkisstjórnin muni halda áfram að vinna að lausnum á mikilvægum áskorunum hvað varðar EES-samninginn. Er það líklega tilvísun í bókun 35, meðal annars. Sjá einnig: Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Hvað varðar Úkraínu segir ráðherrann að Ísland muni áfram standa með ESB við bak Úkraínumanna, bæði hvað varðar aðstoð handa þeim og refsiaðgerðir gegn Rússum. Íslendingar leggi mikla áherslu á aðgerðir gegn svokölluðum „skuggaflota“ Rússa. Sjá einnig: Svona virkar „skuggaflotinn“ Hvað varðar atkvæðagreiðsluna sjálfa, sem haldin var þann 29. ágúst, segir Þorgerður að hún hafi í grunninn snúist um að kanna næstu skref Íslands hvað varðar Evrópu. Niðurstaðan hafi þó verið sú að halda áfram samstarfinu við ESB á þeim góða grunni sem það byggir nú þegar. Þá segir hún að þó viðræðunum verði ekki haldið áfram, verði staða aðildarumsóknarinnar enn óbreytt.
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Viðreisn Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Ríkisstjórnin er í þrengri stöðu eftir sumarið en hún var fyrir að mati stjórnmálafræðings. Margt bendi til þess að stefni í átakamikinn þingvetur, meðal annars umræðan um Bókun 35 og vendingar í heimsmálum. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu breyti stöðu Íslands gagnvart EES-samningnum og ekki þurfi mikið til að samningurinn rakni upp og verði að engu. 8. september 2026 18:53 „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Formenn stjórnarandstöðuflokka á þingi segja þingmálaskrá rýra og að ríkisstjórnin sé algjörlega að missa tökin á hagstjórn í landinu. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir ískaldan vetur fram undan á þingi. Rætt var við formenn stjórnarandstöðu eftir þingsetningu á þingi fyrr í dag. 8. september 2026 16:35 Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Kratinn, upplýsingavettvangur þingflokks Samfylkingarinnar, telur að þjóðaratkvæðagreiðslan um aðildarviðræður við Evrópusambandið hafi styrkt stöðu flokksins. Í greiningu sem send var félagsmönnum er fylgistap nokkurra flokka sett í samhengi við afstöðu þeirra til viðræðnanna. Fylgisþróunin var þó ólík hjá flokkum sem stóðu sömu megin. 4. september 2026 14:16 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Forysta Viðreisnar segir flokkinn bera meiri ábyrgð en áður á að gæta hagsmuna þeirra sem vildu halda aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Flokkurinn verði áfram rödd þessa fólks í stjórnmálaumræðunni og við ríkisstjórnarborðið. 2. september 2026 11:14 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira
Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Ríkisstjórnin er í þrengri stöðu eftir sumarið en hún var fyrir að mati stjórnmálafræðings. Margt bendi til þess að stefni í átakamikinn þingvetur, meðal annars umræðan um Bókun 35 og vendingar í heimsmálum. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu breyti stöðu Íslands gagnvart EES-samningnum og ekki þurfi mikið til að samningurinn rakni upp og verði að engu. 8. september 2026 18:53
„Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Formenn stjórnarandstöðuflokka á þingi segja þingmálaskrá rýra og að ríkisstjórnin sé algjörlega að missa tökin á hagstjórn í landinu. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir ískaldan vetur fram undan á þingi. Rætt var við formenn stjórnarandstöðu eftir þingsetningu á þingi fyrr í dag. 8. september 2026 16:35
Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Kratinn, upplýsingavettvangur þingflokks Samfylkingarinnar, telur að þjóðaratkvæðagreiðslan um aðildarviðræður við Evrópusambandið hafi styrkt stöðu flokksins. Í greiningu sem send var félagsmönnum er fylgistap nokkurra flokka sett í samhengi við afstöðu þeirra til viðræðnanna. Fylgisþróunin var þó ólík hjá flokkum sem stóðu sömu megin. 4. september 2026 14:16
Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Forysta Viðreisnar segir flokkinn bera meiri ábyrgð en áður á að gæta hagsmuna þeirra sem vildu halda aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Flokkurinn verði áfram rödd þessa fólks í stjórnmálaumræðunni og við ríkisstjórnarborðið. 2. september 2026 11:14