Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Birgir Olgeirsson skrifar 4. september 2026 14:16 Kristrún Frostadóttir er forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar. Kratinn telur að þjóðaratkvæðagreiðslan og framganga flokksins í aðdraganda hennar hafi styrkt stöðu Samfylkingarinnar. Vísir/Viktor Freyr Kratinn, upplýsingavettvangur þingflokks Samfylkingarinnar, telur að þjóðaratkvæðagreiðslan um aðildarviðræður við Evrópusambandið hafi styrkt stöðu flokksins. Í greiningu sem send var félagsmönnum er fylgistap nokkurra flokka sett í samhengi við afstöðu þeirra til viðræðnanna. Fylgisþróunin var þó ólík hjá flokkum sem stóðu sömu megin.
Kratinn er vefur, hlaðvarp og fréttabréf á vegum þingflokks Samfylkingarinnar. Vettvanginum er ætlað að upplýsa um störf og skilaboð jafnaðarfólks og er því miðill flokksins sjálfs. Í sendingunni segir að margt Samfylkingarfólk hefði viljað aðra niðurstöðu úr þjóðaratkvæðagreiðslunni. Alls sögðu 52,84 prósent, eða 118.040 kjósendur, nei við því að hefja aðildarviðræður á ný. Já sögðu 47,16 prósent, eða 105.339 kjósendur. Samfylkingarfólk á kosningavöku flokksins árið 2024. Þar má meðal annars sjá Ölmu Möller, Dagbjörtu Hákonardóttur, Jóhann Pál Jóhannsson, Kristrúnu Frostadóttur og Guðmund Ara Sigurjónsson. Fylgi Samfylkingarinnar mældist 29,6 prósent í ágúst, 3,4 prósentustigum meira en í júní.Anton Brink Kratinn segir ríkisstjórnina hafa staðið við loforð sitt um að leyfa þjóðinni að ráða næstu skrefum. „Málið er því ekki á dagskrá um fyrirsjáanlega framtíð,“ segir í sendingunni. Þar er jafnframt bent á að 56 prósent kjósenda í Reykjavík hafi sagt já en stuðningur við viðræðurnar hafi verið rétt undir 40 prósentum á landsbyggðinni. Að mati Kratans leiddi umræðan einnig í ljós breiðan stuðning við EES-samninginn. Fylgið jókst úr 26,2 í 29,6 prósent Í sendingunni er fylgisþróun Samfylkingarinnar frá júní til ágúst sérstaklega tekin fyrir. Flokkurinn mældist með 26,2 prósenta fylgi í júní, 27,9 prósent í júlí og 29,6 prósent í ágúst, samkvæmt könnun Gallup. Kratinn dregur þá ályktun að efnd loforðsins um þjóðaratkvæðagreiðslu, umræðan í kringum hana og framganga flokksfólks hafi styrkt Samfylkinguna enn frekar í sessi sem leiðandi afl í íslenskum stjórnmálum. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, fögnuðu sigri nei-hliðarinnar ásamt Miðflokksþingmönnunum Snorra Mássyni og Sigríði Á. Andersen. Þau studdu öll nei við því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný.Anton Brink Sjálfstæðisflokkurinn mældist með 24,9 prósent í júní, 25,4 prósent í júlí og 26,8 prósent í ágúst. Miðflokkurinn mældist með 15,1 prósent í júní, 14,6 prósent í júlí og 15,6 prósent í ágúst. Viðreisn mældist með 11,4 prósent bæði í júní og júlí en 9,7 prósent í ágúst. Framsóknarflokkurinn mældist með 5,3 prósent í júní, 5,8 prósent í júlí og 5,5 prósent í ágúst. Flokkur fólksins mældist með 4,6 prósent í júní, 5,2 prósent í júlí og 4,8 prósent í ágúst. Píratar mældust með 3,0 prósent í júní, 2,2 prósent í júlí og 1,9 prósent í ágúst. Viðreisn tapaði fylgi Samfylkingin og Viðreisn studdu báðar já í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Samfylkingin fór úr 26,2 prósentum í júní í 27,9 prósent í júlí og 29,6 prósent í ágúst. Viðreisn stóð hins vegar í 11,4 prósentum í júní og júlí en lækkaði í 9,7 prósent í ágúst. Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn og Framsóknarflokkurinn studdu nei. Sjálfstæðisflokkurinn fór úr 24,9 prósentum í júní í 25,4 prósent í júlí og 26,8 prósent í ágúst. Miðflokkurinn fór úr 15,1 prósenti í júní í 14,6 prósent í júlí og 15,6 prósent í ágúst. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, ásamt Heiðu Kristínu Helgadóttur, sérstökum ráðgjafa hennar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar, og Ingileif Friðriksdóttur, aðstoðarmanni ráðherra. Viðreisn barðist fyrir því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu hafnar á ný.Viktor Freyr Framsóknarflokkurinn fór úr 5,3 prósentum í júní í 5,8 prósent í júlí en lækkaði í 5,5 prósent í ágúst. Flokkurinn tapaði því fylgi frá júlí til ágúst en mældist engu að síður örlítið stærri í ágúst en í júní. Fylgistap Viðreisnar frá júlí til ágúst sýnir þannig að það voru ekki aðeins flokkar eða forystumenn sem studdu nei sem misstu fylgi á tímabilinu. Kjósendur VG fremur já-megin Kratinn vekur einnig athygli á fylgistapi Vinstri grænna og Sósíalistaflokksins. Vinstri græn mældust með 5,0 prósenta fylgi í júní, 3,9 prósent í júlí og 3,6 prósent í ágúst. Sósíalistaflokkurinn mældist með 4,3 prósent í júní, 3,2 prósent í júlí og 2,4 prósent í ágúst. Samanlagt fór fylgi flokkanna því úr 9,3 prósentum í júní í 7,1 prósent í júlí og sex prósent í ágúst. Sósíalistaflokkurinn studdi nei en afstaða forystufólks Vinstri grænna var klofin. Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður flokksins studdi já en Svandís Svavarsdóttir og Katrín Jakobsdóttir, báðar fyrrverandi formenn flokksins, studdu nei. Kannanir Gallup bentu jafnframt til þess að meirihluti þeirra sem sögðust myndu kjósa Vinstri græn hygðist segja já. Hlutfallið var 82 prósent í júní, 76 prósent í könnun 1. til 13. ágúst og 66 prósent í lokakönnun 24. til 27. ágúst.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Samfylkingin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Tengdar fréttir Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Annar hlaðvarpsstjórnanda breska hlaðvarpsins Rest is Politics veltir því upp hvort skortur á forystu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra hafi orðið til þess að ekki tókst að fá meirihluta Íslendinga til þess að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslu síðustu helgi. Hinn stjórnandinn segir ljóst að um mikinn sigur sé að ræða fyrir Vladimír Pútín forseta Rússlands. 4. september 2026 14:00 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Forysta Viðreisnar segir flokkinn bera meiri ábyrgð en áður á að gæta hagsmuna þeirra sem vildu halda aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Flokkurinn verði áfram rödd þessa fólks í stjórnmálaumræðunni og við ríkisstjórnarborðið. 2. september 2026 11:14 Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis Innlent „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sjá meira
Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Annar hlaðvarpsstjórnanda breska hlaðvarpsins Rest is Politics veltir því upp hvort skortur á forystu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra hafi orðið til þess að ekki tókst að fá meirihluta Íslendinga til þess að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslu síðustu helgi. Hinn stjórnandinn segir ljóst að um mikinn sigur sé að ræða fyrir Vladimír Pútín forseta Rússlands. 4. september 2026 14:00
Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Forysta Viðreisnar segir flokkinn bera meiri ábyrgð en áður á að gæta hagsmuna þeirra sem vildu halda aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Flokkurinn verði áfram rödd þessa fólks í stjórnmálaumræðunni og við ríkisstjórnarborðið. 2. september 2026 11:14
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent