Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif Árni Sæberg skrifar 8. september 2026 14:58 Mohamad gengur út úr dómsal þegar málið var þingfest í júní. Vísir/Vilhelm Mohamed Sayidali Ahmed, sem er gefið að sök að hafa stungið brotaþola í Höfðatorgsmálinu svokallaða í rasskinn, segist hafa verið í bílakjallaranum til þess að reykja kannabis. Skyndilega hafi átök brotist út og hann hafi flækst í þau þegar hann reyndi að stöðva þau. Þá segir hann það sem ákæruvaldið telur að sé hnífur vera afrískan tannbursta, sem hann noti til að koma í veg fyrir að hann nagi neglurnar.
Mohamed var síðastur þriggja sakborninga í málinu til þess að gefa skýrslu í aðalmeðferð málsins, sem fer fram í dag. Fjallað er um framburð annarra ákærðu og ákæruna sjálfa í fréttinni hér að neðan. Mohamad er gefið að sök að stinga brotaþola málsins í vinstri rasskinn eftir að hinir ákærðu höfðu annars vegar keyrt á hann á miklum hraða og hins vegar barið ítrekað. Allt þetta heimfærir ákæruvaldið undir ákvæði hegningarlaga um tilraun til manndráps. Mætti daglega til að reykja Þegar Mohamad var beðinn um að lýsa atvikum umrætt kvöld sagðist hann hafa verið á leið heim úr líkamsrækt og ákveðið að koma við í bílastæðakjallaranum undir Höfðatorgi. Þangað hefði hann komið daglega í rúmlega mánuð til þess að hitta vini sína og reykja kannabis. „Þegar við vorum að reykja sá ég þrjár manneskjur birtast, þá heyrði ég einhvern öskra að þeir væru með byssur, sá fólk hlaupa og öskra. Vinur minn sagði að við ættum að fara en ég fór inn til þess að stöðva átökin, ég reyndi það oft en þegar það virkaði ekki stökk ég upp í bíl og fór af svæðinu.“ Hann hefði sjálfur séð að einn þeirra þriggja sem komu væri með hafnaboltakylfu, annar með sveðju og sá þriðji hefði verið með eitthvað í vasanum. Gat ekki staðfest að myndskeiðið sýndi hann Þegar myndbandsupptaka úr örrygismyndavél var borin undir hann kvaðst hann telja líklegt að maður klæddur í grá föt væri hann, þó að hann gæti ekki fullyrt það. Ákæruvaldið byggir á því að umræddur gráklæddur maður sjáist á myndskeiðinu stinga brotaþola einu sinni í vinstri rasskinn. Mohamad sagðist ekki hafa gert það heldur hefði henn reynt að skerast í leikinn. „Ég var að reyna að stöðva þetta vesen. Ef maður er ekki hluti af átökum og skerst í leikinn ræðst fólk ekki á þig, þess vegna gekk ég á milli. Ég hef orðið vitni að miklu ofbeldi, þess vegna veit ég þetta, þetta er mannlegt eðli.“ Hann ítrekaði þó aðspurður að hann gæti ekki fullyrt að hann væri sá sem sést standa yfir brotaþola. Hann hefði ekki stungið brotaþola. Sástu einhvern annan stinga brotaþola? „Já.“ Hvers vegna hefur þú ekki sagt frá því fyrr? „Það gæti verið hættulegt lífi mínu.“ Tannburstinn hafi róandi áhrif Hann var einnig spurður út í hlut sem gráklæddi maðurinn sést halda á og ákæruvaldið byggir að sé hnífur. Hann sagði að hann hefði ekki verið með hníf á sér umrætt kvöld. Hann gengi almennt um með afrískan tannbursta á sér. Tannbursta sem væri mikið notaður í heimalandi hans, Sómalíu, og væri mikilvægur trúarbrögðum hans. Í heimalandinu væri tannburstinn notaður á hefðbundinn hátt, að morgni og á kvöldin, en honum þætti gott að nota hann allan daginn, það væri streitulosandi og kæmi í veg fyrir þann ósið hans að naga neglurnar.
Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira