Viðskipti innlent

Bein út­sending: Heinemann svipti hulunni af breytingum á frí­höfninni

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Fulltrúar mættir á blaðamannafund Heinemann.
Fulltrúar mættir á blaðamannafund Heinemann. Vísir/Einar

Forsvarsmenn Ísland Duty Free kynna breytingar á fríhafnarverslunum á Keflavíkurflugvelli á blaðamannafundi klukkan tíu. Fylgjast má með fundinum í beinni útsendingu hér í fréttinni.

Á fundinum verður ný hönnun verslana fyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli kynnt. Ísland Duty Free rekur þrjár verslanir á Keflavíkurflugvelli: um sextánhundruð fermetra brottfararverslun, um tvö þúsund fermetra komuverslun og verslun við brottfararhlið.

Breytingar hafa staðið yfir frá því í ágúst í fyrra og segir fyrirtækið breytingarnar þær víðtækustu sem gerðar hafi verið á fríhafnarverslun á flugvellinum frá upphafi.

Fulltrúar Heinemann, Ísland Duty Free og Isavia verða á staðnum. Brottfararverslunin verður formlega opnuð klukkan tólf og verður Vísir í beinni. Heinemann tók við rekstri fríhafnarverslananna í maí í fyrra.


Tengdar fréttir

Nýtt slagorð Ísland Duty Free: „Ég er á leiðinni“

Tómar hillur blasa við komufarþegum Leifsstöðvar og virðist frasinn „I'm on my way“ eða „Ég er á leiðinni“ standa á öðru hverju skilti. Framkvæmdastjórinn segir að unnið sé hörðum höndum að því að leysa málið. 

Fríhöfnin fær nýtt nafn og verður lokað um tíma í vikunni

Nýr rekstraraðili tekur við rekstri fríhafnarverslana í Keflavík á miðvikudaginn og verða verslanirnar því lokaðar tímabundið vegna breytinga frá því annað kvöld og fram á miðvikudagsmorgun. Þá opna fríhafnarverslanir í Keflavík undir nýju nafni, Ísland - Duty Free.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×