Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Smári Jökull Jónsson skrifar 4. september 2026 13:17 Gréta Ingþórsdóttir er framkvæmdastjóri styrktarfélagsins Börn með krabbamein. Í síðustu umferð Bestu deildar karla og kvenna mættu leikmenn til leiks í sínum uppáhalds treyjum. Vísir Haldið er upp á treyjudaginn svokallaða í dag en þá er fólk hvatt til að klæðast sinni uppáhalds íþróttatreyju til stuðnings börnum með krabbamein. Framkvæmdastjóri styrktarfélagsins Börn með krabbamein segir verkefnið eiga uppruna sinn í Danmörku og markmiðið sé að vekja athygli á félaginu.
Styrktarfélagið Börn með krabbamein fagnaði 35 ára afmæli þann 2. september og því var fyrsti föstudagur septembermánaðar valinn undir viðburðinn. „Ég heyri það alveg á fjölskyldunum í félaginu, þeim finnst skipta máli að núna eigi þessi málstaður dag. Börn og krabbamein eiga núna dag þannig að það skiptir máli að vekja athygli,“ sagði Gréta Ingþórsdóttir framkvæmdastjóri styrktarfélagsins. „Það eru tólf til fjórtán börn sem greinast á hverju ári en hópurinn í kringum þau börn er ekki það rosalega stór. Þannig að það þarf að vekja athygli út fyrir þann hóp á félaginu.“ „Hafa margir séð það og brugðist við“ Félagið breytti nýverið um nafn en það hét áður Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Gréta segir viðbrögðin við verkefninu hafa verið frábær en KSÍ og Íslenskur Toppfótbolti komu af krafti sem þátttakendur í verkefinu. Í leikjum síðustu umferðar karla og kvenna í Bestu-deildunum gengu allir þátttakendur inn á völlinn í sínum uppáhaldstreyjum. „Þjálfarar. leikmenn og dómarar í alls konar treyjum og skiptu svo yfir í sínar félagstreyjur. Þau voru mjög dugleg að birta myndir á samfélagsmiðlum í kringum þetta og það hafa margir séð það og brugðist við.“ Hafi farið langt fram úr væntingum Það hafi ekki endilega verið markmiðum að ná svona mörgum með í fyrstu tilraun. „Við erum að heyra frá vinnustöðum og skólum og fjölda fólks að þeir séu með og það er ekki endilega fólk sem við erum búin að klukka, við höfum ekki bolmagn í það. Enda var það ekki markmiðið að klukka alla í fyrstu umferð og þetta er að fara langt fram úr okkar væntingum,“ bætir Gréta við. Hún segir afar mikilvægt að ná að vekja athygli á málstaðnum. „Líka ef þetta skilar sér síðan í fjáröflun þegar fram líða stundir, þegar dagurinn verður búinn að festa sig sem fastur liður.“
Börn og uppeldi Krabbamein Besta deild karla Besta deild kvenna Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Sjá meira