Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. september 2026 13:25 Dagbók lögreglu er spennandi ný gamanþáttaröð sem hefur göngu sína á Sýn+ í september. Dagbók lögreglu er ný leikin gamanþáttaröð innblásin af raunverulegum fréttum úr dagbók lögreglu. Margir af þekktustu leikurum landsins koma við sögu í ófyrirsjáanlegum útköllum þar sem óvæntar uppákomur eru aldrei langt undan. Þættirnir hefja göngu sína á Sýn+ í september.
Áhorfendum er fylgt gegnum þáttaröðina af lögreglumönnum sem takast á við skrautleg verkefni sem hafa ratað í dagbók lögreglu í gegnum tíðina. Á milli útkalla kynnast áhorfendur daglegu lífi á lögreglustöðinni, þar á meðal Dolla varðstjóra, sem leikinn er af Jörundi Ragnarssyni, og Boggu símadömu, sem leikin er af Ilmi Kristjánsdóttur. Vísir birtir í dag stiklu úr þáttunum þar sem fólk fær smjörþefinn af fáránlegum uppákomunum og misáreiðanlegum lögregluþjónunum sem þurfa að takast á við þær. Leikstjóri og yfirhandritshöfundur þáttanna er leikarinn Ólafur Ásgeirsson. Handritið skrifa einnig Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Kjartan Darri Kristjánsson og Oddur Júlíusson. Þau fara jafnframt með aðalhlutverk í þáttunum ásamt Aroni Má Ólafssyni, Sögu Garðarsdóttur og Vigdísi Höllu Birgisdóttur. Dagbók lögreglu er fyrsta sjónvarpsverkefni framleiðslufyrirtækisins Logn Media og framleiðendur þáttanna eru Fannar Scheving Edwardsson og Þórunn Elva Þorgeirsdóttir. Þættirnir fara í loftið á Sýn+ í september. Hér að ofan má sjá stikluna úr þáttunum og að neðan eru myndir bak við tjöldin úr tökunum: Katrín Halldóra og Aron Mola með sérsveitarmönnum úr þáttunum, þar á meðal Patrik Atlasyni. Naflinn í góðum félagsskap. Steindi Jr. kemur við sögu. Aron Mola, Katrín Halldóra og Óli Ásgeirs með fúlskeggjuðum manni. Saga Garðarsdóttir og Oddur Júlíusson handjárna tvo káta karla. Piparúðin er snúinn. Aron Mola og Katrín Halldóra fara með aðalhlutverk. Davíð Berndsen er meðal aðstandenda þáttanna. Aðstandendur þáttanna með nokkrum kátum krökkum. Gervikúk sprautað á húdd.
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Sýn Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Hvað veistu um... fugla? Lífið Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi Lífið Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Áskorun Fleiri fréttir Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Ben Jones er látinn Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Sjá meira