Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Lovísa Arnardóttir skrifar 31. ágúst 2026 12:42 Vegurinn var opnaður í júní en gjaldtakan hefst á morgun. Vegagerðin Gjaldtaka um nýjan hringveg um Hornafjörð hefst á morgun, 1. september. Nýr Hringvegur (1) um Hornafjörð var opnaður fyrir umferð í júní. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að veggjöld standi undir hluta kostnaðar við framkvæmdina, rekstur og viðhald vegarins.
Innheimta veggjaldsins fer fram undir merkjum Spalar ehf. og segir í tilkynningu að markmiðið sé að gera gjaldtökuna eins einfalda fyrir notendur og mögulegt er. „Veggjaldið var meðal annars ákveðið með hliðsjón af þeim ávinningi sem vegfarendur hafa af nýja veginum, svo sem styttri ferðatíma, lægri eldsneytis- og rekstrarkostnaði og betri akstursaðstæðum,“ segir í tilkynningu. Stakt gjald fyrir ökutæki undir 3,5 tonnum verður 1.500 krónur, 2.100 krónur fyrir millistóra bíla frá 3,5 til 7,5 tonna og 4.500 krónur fyrir bíla yfir 7,5 tonnum. Gjaldflokkur miðast við heildarþyngd ökutækja. Afsláttarkjör verða fyrir litla og millistóra bíla og þak sett á mánaðarlegar greiðslur. Þannig eru ekki greiddar meira en 18.750 krónur á mánuði fyrir minnstu bílana og ekki meira en 26.250 krónur fyrir millistóra bíla. Hámarksgjaldinu er náð við 22 ferðir á mánuði. Ekkert mánaðarlegt hámark verður á greiðslum fyrir ökutæki yfir 7,5 tonnum. Gjaldtakan verður að fullu sjálfvirk og vegfarendur þurfa ekki að skrá sig eða greiða sérstaklega þegar ekið er um veginn. Myndavélar lesa skráningarnúmer ökutækja og upplýsingar eru sóttar í ökutækjaskrá. Reikningur fyrir ferðir hvers mánaðar er síðan sendur í heimabanka. Styttist um tólf kílómetra Með framkvæmdinni styttist Hringvegurinn um 12 kílómetra og leiðin frá Reykjavík til Hornafjarðar um rúma 14 km. Áætlað er að ferðatími styttist um 15 til 20 mínútur. Lagðir voru tæpir 19 kílómetrar af nýjum Hringvegi, níu km af öðrum vegum og byggðar fjórar tvíbreiðar brýr, sem eru samtals 468 metra langar. Einnig var gerður áningarstaður og hringtorg við Hafnarveg. Verkið er fyrsta samvinnuverkefnið sem Vegagerðin stendur að. Samkvæmt lögum um samvinnuverkefni er gert ráð fyrir að veggjöld standi straum af að lágmarki 50 prósentum af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri og þróun samgöngumannvirkisins. Heildarkostnaður við framkvæmdina í Hornafirði er áætlaður rúmlega 10 milljarðar króna. Á spolur.is er hægt að nálgast yfirlit yfir notkun og upplýsingar um gjaldtökuna. Þar verður einnig hægt að greiða fyrir stakar ferðir.
Sveitarfélagið Hornafjörður Vegagerð Umferð Umferðaröryggi Veggjöld Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira