Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Samúel Karl Ólason skrifar 25. ágúst 2026 11:47 Donald Trump hefur aldrei mælst óvinsælli, en hann hefur tvisvar sinnum áður mælst jafn óvinsæll. AP/Alex Brandon Einungis 33 prósent bandarísku þjóðarinnar eru sátt við störf Donalds Trump, forseta, ef marka má nýja könnun Reuters og Ipsos. Það er sama hlutfall og í síðustu könnunun fyrirtækjanna en vinsældir forsetans hafa aldrei farið neðar. Stríð Trumps gegn Íran er þó enn óvinsælla og segjast einungis 31 prósent þjóðarinnar hlynnt því.
Í mars, skömmu eftir að stríðið hófst, var hlutfall þeirra sem sögðust ánægðir með það 37 prósent og í byrjun þessa mánaðar var það 34. Í frétt Reuters segir að sífellt færri Repúblikanar segist styðja stríðið og rekja megi lækkunina til þess. Í nýjustu könnuninni segjast 69 prósent svarenda segjast Repúblikanar styðja stríðið en hlutfallið hafi verið 77 prósent í mars. Stríðið hófst þann 28. febrúar þegar Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran. Markmiðin þá voru nokkur en undanfarið hefur Trump haldið því fram að stríðið hafi verið nauðsynlegt til að koma í veg fyrir að Íran kæmi upp kjarnorkuvopnum. Átökin hafa haft töluverð áhrif á heimsmarkaði og þá sérstaklega á olíuverð. Það hefur ekki fallið í kramið vestanhafs. Átökin hafa ekki verið mikil að undanförnu en Trump hefur nú heitið því að þvinga klerkastjórnina til uppgjafar með efnahagsaðgerðum og þvingunum. Sögulega óvinsæll Þegar kemur að vinsældum Trumps segjast 33 prósent ánægð með störf hans. Það er sama hlutfall og í síðustu könnun og það lægsta sem hefur mælst á báðum kjörtímabilum hans. Sama hlutfall mældist einu sinni á hans fyrra kjörtímabili. Í samantekt New York Times, þar sem haldið er utan um meðaltal úr könnunum nokkurra fyrirtækja, segir að um 38 prósent þjóðarinnar séu ánægð með störf forsetans og um 59 prósent óánægð. Þar eru vinsældir forsetans einnig í lægstu lægðum, á þessu kjörtímabili og miðað við fyrra kjörtímabil hans.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira