Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Samúel Karl Ólason skrifar 25. ágúst 2026 11:20 Frá mótmælum í Seattle árið 2019, þegar fólk af frumbyggjaættum mótmælti aðgerðaleysi yfirvalda vegna myrtra og týndra kvenna. AP/Ted S. Warren Forsvarsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) hafa heitið 25 þúsund dala (um þrjár milljónir króna) lágmarksverðlaunum fyrir upplýsingar í málum tuga manna og kvenna af frumbyggjaættum sem hafa horfið eða verið myrt. Tæplega 1.500 slík mál voru óleyst í Bandaríkjunum í lok síðasta árs en ofbeldi hefur lengi leikið samfélög fólks af frumbyggjaættum vestanhafs grátt.
Verðlaunaveitingarnar eiga að ná til rúmlega fimmtíu óleystra mála. Flest þeirra eru minna en tíu ára gömul en nokkur ná langt aftur í tímann, samkvæmt AP fréttaveitunni. Fjölskyldumeðlimir fórnarlamba og sérfræðingar segjast í samtali við blaðamenn efast um að verðlaunaféð dugi til. Innan samfélags fólks af frumbyggjaættum sé mjög lítið traust til alríkisyfirvalda. FBI og ráðuneyti málefna fólks af frumbyggjaættum sjá um rannsóknir glæpa á verndarsvæðum Bandaríkjanna. Þau eru nærri því tvö hundruð talsins og má finna víðs vegar um vestanverð Bandaríkin. Á ensku eru þessi svæði kölluð „Indian country“. Þann tíunda ágúst var stofnaður listi yfir týnt fólk af frumbyggjaættum í Nýju Mexíkó og á yfirráðasvæði Navajo-þjóðarinnar. Það er liður í áætlun yfirvalda sem snýst um að ná betur utan um umfang vandans á landsvísu. Á listanum fyrir Nýju Mexíkó og Navajo eru 206 nöfn. Frá því hann var stofnaður hafa átta nöfn verið fjarlægð af honum en tólf hefur verið bætt við. Í lok síðasta árs mátti sjá á gögnum FBI að í Bandaríkjunum voru rétt tæplega 1.500 óleyst mál sem snúa að týndu fólki af frumbyggjaættum. Efast um árangur Mary Kathryn Nagle, sem tilheyrir Cherokee-þjóðinni í Oklahoma og er lögmaður margra skyldmenna fólks sem er týnt, sagði í samtali við blaðamann AP að starfsmenn FBI mæti reglulega til að rannsaka glæpi en fái litla aðstoð frá íbúum vegna takmarkaðs trausts og vegna þess að fólk óttast að vera refsað af öðrum innan samfélaganna. Hún vonast þó til þess að hærra verðlaunafé muni hjálpa og leiða til þess að einhver mál leysist. „Það er fólk þarna sem veit hvað kom fyrir skyldmenni okkar.“ Önnur kona sem rætt var við sagði að verðlaunafé í málum sem þessum hefði ítrekað ekki fengist greitt. „Mín skoðun er sú að innan verndarsvæðasamfélaga er fólk einstaklega tregt til að uppljóstra um glæpi vina eða ættingja til dómskerfis sem hefur ekki þjónað þeim vel,“ sagði Luana Ross hjá Háskólanum í Washington. Bræður myrtir Eitt málanna fimmtíu snýr að morði bræðranna Matthew og Philip Reagan. Þeir eru ekki af frumbyggjaættum en voru myrtir á verndarsvæði Navajo-þjóðarinnar árið 2020. Þeir voru á leið til Kaliforníu og ætluðu að koma við á Canyon de Chelly í Arizona í leiðinni. Talið er að GPS-tæki þeirra hafi sent þá eftir röngum vegi þar sem bíll þeirra festist í leðju. Þegar þeir voru á gangi í leit að aðstoð voru þeir skotnir til bana. Eiginkona eins þeirra sagði blaðamanni að hún teldi litlar líkur á því að hækkun verðlaunanna fyrir upplýsingar um morðingjana myndi leiða til einhvers. Það dygði ekki til að fá einhvern úr smáu samfélagi til að benda á svo grimmilega morðingja. „Þú þyrftir að heita einhverjum mikilli og alvöru vernd. Ég meina, þeir myrtu tvo menn grimmilega.“
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira