Myrtu fjörutíu manns í kirkju Samúel Karl Ólason skrifar 25. ágúst 2026 08:58 Fjölmargir voru myrtir í árásinni. AP/Odelyn Joseph Hópur glæpamanna er sagður hafa myrt tugi manna í landbúnaðarsamfélagi nærri Port-au-Prince, höfuðborg Haítí um helgina. Mennirnir ruddust inn á heimili fólks, myrtu það og brenndu húsin til grunna. Einnig ruddust þeir inn í kirkju þar sem um fjörutíu manns sem höfðu leitað sér skjóls í kirkjunni voru myrtir.
Árásin var gerð í bæ sem heitir Kenscoff og er staðsettur í fjöllunum nærri höfuðborginni. Lík hafa fundist á víð og dreif á svæðinu en heildarfjöldi þeirra sem voru myrtir liggur ekki fyrir. Margra er enn saknað. Samkvæmt AFP fréttaveitunni hafa glæpagengi um nokkuð skeið barist um yfirráð í Kenscoff. Bæjarstjóri Kenscoff segir árásina hafa byrjað á sunnudagskvöld og lýsti nóttinni sem hryllilegri. Einn maður sagði blaðamanni AP fréttaveitunnar að fjórtán manns úr fjölskyldu hans hefðu dáið í árásinni. Nokkurra væri enn saknað en útlit er fyrir að glæpamennirnir hafi einnig rænt fólki. Íbúar Kenscoff velta bílbraki á mótmælum vegna ofbeldisins. Mótmælendur vilja aðgerðir frá lögreglunni.AP/Odelyn Joseph Ríkisstjórn landsins hefur fordæmt árásina og segir að liðsauki lögregluþjóna hafi verið sendur á svæðið. Mikil vargöld á undanförnum árum Staðan á Haítí er einstaklega alvarleg og eru hömlulaus glæpagengi orðin gífurlega öflug. Gengi stjórna nærri því allri höfuðborg landsins og mörgum öðrum byggðum þess. Glæpagengi Haítí eru bæði mun fjölmennari og betur búin en lögregla landsins. Stjórnmálamenn hafa í gegnum árin dælt peningum í mismunandi gengi og beitt þeim gegn pólitískum andstæðingum sínum. Óreiðan náði nýjum hæðum þegar Jovenel Moise, forseti, var myrtur árið 2021. Moise var einkar óvinsæll forseti og var sakaður um einræðistilburði. Degi áður en hann dó skipaði hann sinn sjöunda forsætisráðherra á kjörtímabili sínu. Til stendur að halda kosningar í desember en þær voru síðast haldnar í Haítí árið 2016. Sjá einnig: Vargöldin á Haítí versnar hratt Samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum voru rúmlega 3.100 manns myrtir frá janúar til júní og 1.189 særðir í ofbeldinu sem skekur landið. Um ein og hálf milljón manna hefur þurft að flýja heimili sín á Haíti og þar að auki hefur fjöldi fólks flúið land.
Haítí Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira