Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Freyja Þórisdóttir skrifar 20. ágúst 2026 16:56 Sigga Birna sagði ekkert annað hafa verið í stöðunni en að fara með strákana í Ísbúðina eftir kvöldsund, þrátt fyrir að buxurnar fyndust hvergi. Hún hafi verið búin að lofa þeim ís. Aðsend/Vísir/Vilhelm Þegar flugfreyjan Sigríður Birna Jónsdóttir áttaði sig á því að buxurnar hennar hefðu verið teknar í misgripum í útiklefa Vesturbæjarlaugar dó hún ekki ráðalaus. Hún vafði hálfkláraðri peysu sem hún hafði meðferðis um sig miðja og arkaði því næst ásamt syni sínum og tveimur frændum yfir í Ísbúð Vesturbæjar. Þar tók við henni hópur túrista sem brá heldur betur í brún við að sjá konu koma sér fyrir aftast í röðinni, á brókinni. „
Ég er alltaf að lenda í einhverju svona rugli,“ segir Sigríður, oftast kölluð Sigga Birna, í samtali við blaðamann en hún setti í gær inn færslu á Facebook-hverfishópinn Vesturbærinn og auglýsti eftir ljósbrúnum buxum ásamt hlébarðamynstruðu belti sem einhver hafði tekið í misgripum, eða ófrjálsri hendi, úr kvennaútiklefanum í Vesturbæjarlaug. Leitað hátt og lágt „Það voru ógeðslega margir í klefanum og ég var bara, bíddu, hvað er að frétta af því að þær [buxurnar] voru sko undir gallajakkanum mínum,“ segir Sigga. Það hafi öllu verið snúið á hvolf í klefanum við leit að buxunum. „Ég fór í afgreiðsluna, bara á rassinum, og var bara að spyrja hvort það gæti einhver hjálpað mér að leita að buxunum,“ segir hún. Frændur hennar, fimm og sjö ára, hafi verið í heimsókn á landinu en þeir búi í Queens-hverfi í New-York og því hafi ekki verið í stöðunni að hætta við það að koma við í ísbúð á leið heim úr kvöldsundi. Hún hafi haft hálfklárað prjónaverkefni í sundtöskunni sem hún vafði um sig miðja á köflum, handklæðið hafi eiginlega ekki komið til greina; það hafi verið svo kalt og blautt. Það voru allir og frænkur þeirra í útiklefanum í Vesturbæjarlaug þegar Sigga þurfti að leita þar hátt og lágt að buxunum sínum. Vísir/Anton Brink „Það er bara svoleiðis og þar voru fullt af túristum,“ segir Sigga en það hafi liðið um klukkustund frá því að hún gekk út úr anddyri sundlaugarinnar, á brókinni, og þar til hún var komin heim til sín. „Í ísbúðinni stendur maður fyrir framan mig sem er alltaf að snúa sér við til að kíkja á mig og ég er þarna að reyna að hafa peysuna yfir. Ég hugsaði síðan: Guð minn góður, það myndi kannski einhver segja eitthvað við okkur,“ segir hún og bætir við: „En svo var enginn að spá í þessu nema kannski bara ég.“ Hún var sem fyrr segir í sundi með frændum sínum en sonur hennar, átta ára, kippti sér lítið sem ekkert upp við þetta tiltæki móður sinnar. Honum fannst það aðallega bara „skemmtilegt og fyndið“. Sömu sögu má ekki segja um dóttur hennar, fimmtán ára. „Eftir að ég kom inn, hún var heima, þá sko dó hún,“ segir Sigga og hefur eftir dóttur sinni: „Fórstu svona út, hvar varstu svona? Þú ert brjáluð.“ Þekkti sökudólginn Það kom í ljós skömmu eftir að hún auglýsti eftir buxunum á Facebook, og flestir í ummælakerfinu höfðu reiknað með að þeim hefði verið stolið, að fyrrum samstarfskona hennar hafði tekið þær með sér heim fyrir slysni. „Við vorum að spjalla á fullu í klefanum en ég var bara að fara í sturtu og þá var hún að klæða sig,“ segir Sigga og bætir hlæjandi við: „Já, já, svo tekur hún bara fötin mín.“ Buxurnar eru svipaðar, en ekki alveg eins. Buxurnar til hægri eru þær sem hinn sundgesturinn átti en Siggu eru til vinstri.Aðsend Sjálf segist Sigga ekki með nokkru móti geta verið ósátt út í hana, þetta sé of kostulegt. Hún sé þó líklega í hópi þeirra sem mættu teljast seinheppnustu konur Íslands.
Reykjavík Matur Sundlaugar og baðlón Grín og gaman Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Titanic? Lífið Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verkefnum? Áskorun Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Fleiri fréttir Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Sjá meira