Golf

LIV-mótaröðin í upp­námi en Rory Mcllroy ekki spenntur að fá kylfinga þaðan

Andri Broddason skrifar
Mikill rígur hefur verið milli Bryson DeChambeau hjá LIV og Rory Mcllroy hjá PGA.
Mikill rígur hefur verið milli Bryson DeChambeau hjá LIV og Rory Mcllroy hjá PGA. Richard Heathcote/Getty Images

Miklar vangaveltur eru um framtíð kylfinga á LIV-mótaröðinni í golfi eftir að síðasta móti tímabilsins var frestað. Kylfingar gera ráð fyrir því að mótaröðin verði lögð niður og skoðaðar lausnir á endurkomu kylfinga á PGA-mótaröðina.

LIV-mótaröðin virðist vera í uppnámi eftir að síðasta móti tímabilsins var aflýst. Fyrr í ár var tilkynnt að sádí-arabísku fjárfestarnir sem væru bakvið mótaröðina myndu draga fjárfestinguna sína til baka eftir tímabilið. Formaður LIV, Scott O’Neil, hafi þó tekið fram að hann hefur fundið nýja fjárfesta fyrir næsta tímabil. Ekki eru allir kylfingar né stuðningsmenn sannfærðir um að það sé nóg.

Í febrúar var kylfingum frá LIV boðið að snúa aftur á PGA-mótaröðina sem einhverjir kylfingar nýttu sér. Því fylgja þó strangar reglur og sem dæmi fá kylfingar sem koma til baka minna verðlaunafé næstu fimm árin.

Fyrir BMW Championship-mótið á PGA-mótaröðinni um helgina var Rory Mcllroy spurður út í hvað honum fyndist um að LIV-kylfingar snúi aftur. Hann gaf lítið fyrir það og velti fyrir sér hvort kylfingar LIV gæfu verðmæti á PGA-mótaröðina.

„PGA-mótaröðin er á virkilega góðum stað núna. Kylfingarnir munu snúa aftur á endanum. Ég er ekki hluti af samningaviðræðunum en ég er nokkuð viss um að þeim verði ekki hleypt strax til baka.“

Einn stærsti kylfingur LIV-mótaraðarinnar er Bryson DeChambeau en það hefur verið mikill rígur milli hans og Rory Mcllroy.

Scottie Scheffler var spurður hver hans staða væri og var hann aðeins jákvæðari heldur en Rory.

„Ef þú horfir á hæsta stigið á LIV-mótaröðinni sérðu fullt af kylfingum sem geta hækkað virði PGA-mótaraðarinnar. Það eru einnig kylfingar sem ég elska að keppa við.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×