Sindri Hrafn tíundi á Evrópumótinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2026 19:41 Sindri Hrafn Guðmundsson hefði viljað gera betur í kvöld en er engu að síður í hópi tíu bestu spjótkasta Evrópu. EPA/TOLGA AKMEN Íslenski spjótkastarinn Sindri Hrafn Guðmundsson endaði í tíunda sæti í úrslitum spjótkastsins á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Birmingham í kvöld.
Sindri Hrafn varð þriðji Íslendingurinn á mótinu sem vann sér sæti í úrslitum en það gerðu einnig sleggjukastararnir Hilmar Örn Jónsson (sjöundi) og Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir (tólfta). Sindri kastaði 79,21 í undankeppninni sem hefði dugað honum í hóp átta bestu í kvöld en 75,36 metra kast hans í kvöld var ekki nóg til að fá að kasta oftar. Sindri kastaði 71,93 metra í fyrstu tilraun sinni sem var sjöunda besta kastið eftir fyrstu umferðina. Sindri lengdi sig aðeins með því að kasta 72,79 metra í annarri tilraun en aðrir lengdu sig meira og Sindri var kominn niður í níunda sætið eftir tvær umferðir. Sindri lengdi sig aftur í þriðja kastinu þegar hann kastaði 75,36 metra en það var ekki nóg til að ná að vera í hópi þeirra átta sem fengu þrjú köst til viðbótar. Hann endaði síðan í tíunda sæti eftir að Ítali náði að lengja sig í þriðja kasti sínu. Í áttunda sætinu var Finninn Topi Parviainen með kast upp á 77,82 metra eða rúmum tveimur metrum lengra en Sindri. Sindri Hrafn hafði kastað 81,90 metra á tímabilinu og var því nokkuð frá sínu besta í kvöld.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Enski boltinn Fleiri fréttir Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Risahelgi í boltanum og óvænt bílferð með mömmu Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Atvinnumenn mega snúa aftur í háskólaboltann Kínverskar stórstjörnur í haldi yfirvalda vegna rannsóknar um spillingu Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Kjúklingur kostnaður fyrir treyjunúmerið Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ „Var ekki langt frá því að tárast“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Sjá meira