Sport

Æfði með feta snák í hjálminum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Snákurinn sem var búinn að koma sér fyrir í hjálminum.
Snákurinn sem var búinn að koma sér fyrir í hjálminum.

Nemandi og leikmaður í amerískum fótbolta við Maumelle-menntaskólann í Arkansas í Bandaríkjunum fann stærðarinnar snák í hjálmi sínum á æfingu.

Eftir upphitun fyrir æfingu í síðustu viku fann nemandinn óvenjulegar hreyfingar í hjálmi sínum. Hann færði aðstoðarþjálfara hjálminn í kjölfarið til skoðunar.

Í hjálminum fannst lifandi tveggja feta eitraður snákur sem hafði falist á bak við hlífar. Talið er að nemandinn hafi æft með snákinn inni í hjálminum í um klukkustund.

Snákurinn hafði greinilega komið sér vel fyrir í hjálminum og á endanum þurftu lögreglumenn að sprauta vatni þangað inn til að losna við snákinn.

Dýralæknar komu skömmu seinna, báru kennsl á snákinn og slepptu honum svo út í náttúruna.

Eftir þetta náði nemandinn sér í nýjan hjálm og hélt áfram að æfa eins og ekkert hefði í skorist. Þjálfari hans sagði þó að leikmenn ættu að kanna búnað sinn áður en þeir nota hann til að forðast að vera með æfingafélaga eins og þann sem umræddur nemandi var með.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×