Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 8. ágúst 2026 12:00 Eiríkur Bergmann Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði og rithöfundur. vísir/anton brink Það er óskhyggja að vonast til að afgerandi stuðningur með eða á móti aðildarviðræðum við Evrópusambandið fáist upp úr kjörkössunum þann 29. ágúst. Þetta segir prófessor í stjórnmálafræði. Sagan í seinni tíð sýni að afar mjótt verði á munum þegar atkvæði verða talin.
Samkvæmt nýrri könnun Gallup sem gerð var fyrir hreyfinguna Áfram-Ísland segjast átta prósent óákveðnir þegar spurt er um afstöðu þeirra í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. 46 prósent ætla að segja já og sami fjöldi, 46 prósent, ætlar að segja nei. Staðan er því hnífjöfn þegar kemur að hópunum tveimur. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði segir það ekki koma á óvart. Reynslan í seini tíð sýni að þjóðaratkvæðagreiðslur sem snúast um Evrópusambandið verði ansi jafnar. Það hafi þó ekki alltaf verið þannig í sögunni. „Til dæmis þegar Austur-Evrópuríkin gengu inn í Evrópusambandið þá gerður þær það allar með yfirgnæfandi stuðningi eða meira og minna í það minnsta en það hefur verið miklu mjórra á mununum í ríkjum sem Íslendingar eru vanari að bera sig saman við eins og á Norðurlöndunum.“ Mjótt á munum Eiríkur segir til dæmis að Svíar hafi gengið inn í sambandið með litlum stuðningi auk þess sem Norðmenn felldu samning naumlega. „Þegar Bretar gengu út úr Evrópusambandinu var það líka mjög naumlega. Seinasta kosningin sem er reyndar fyrrum austantjaldsríki, Moldóva, þar var mjög mjótt á mununum. Þannig þetta hefur verið tilhneigingin ef maður lítur til tímans og samanburðarhæfra ríkja við Ísland þá segi það okkur að mjótt verði á munum.“ Þær atkvæðagreiðslur sem Eiríkur vísar til snérust um aðild að sambandinu eða útgöngu úr því. Í ágúst greiðum við landsmenn atkvæði með eða á móti því að fara í aðildarviðræður. Eiríkur segir þá breytu mögulega hafa einhver áhrif á það hvort mjög mjótt verði á munum, það sé þó erfitt að segja. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, var spurð að því í Bítinu á Bylgjunni fyrir helgi hvort 51 prósent niðurstaða væri nógu afgerandi til að hefja ekki viðræður. Sagðist hún þá gjarnan vilja fá meira afgerandi svar frá þjóðinni. Er það raunhæft? „Það er óskhyggja.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Utanríkismál Evrópusambandið Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira