Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Birgir Olgeirsson skrifar 4. ágúst 2026 18:31 Í nýrri Maskínukönnun var fólk spurt hvaða áhrif aðild Íslands að ESB hefði á vexti, matvælaverð og sjávarútveg. Meirihluti þeirra sem tók afstöðu í nýrri Maskínukönnun telur að vextir á Íslandi myndu lækka ef landið gengi í Evrópusambandið. Svipað hlutfall telur hins vegar ólíklegt að Ísland fengi varanlegar undanþágur í sjávarútvegi.
Könnunin var gerð dagana 22. til 29. júlí og tóku 2.255 þátt. Spurt var um áhrif mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu á matvælaverð og vexti, auk þess sem spurt var um líkur á varanlegum undanþágum í sjávarútvegi. Svörin voru vegin eftir kyni, aldri, búsetu og menntun. Af þeim sem tóku afstöðu telja 57,8 prósent að vextir á Íslandi myndu lækka við inngöngu í Evrópusambandið. Þar af telja 13,1 prósent að þeir myndu lækka mikið og 44,7 prósent að þeir myndu lækka nokkuð. Rúmur þriðjungur, eða 34,3 prósent, telur að vextirnir myndu standa í stað. Alls telja 7,9 prósent að vextir myndu hækka. Þar af telja 4,6 prósent að þeir myndu hækka nokkuð og 3,3 prósent að þeir myndu hækka mikið. Tæp 19 prósent allra svarenda sögðust ekki vita hvaða áhrif aðild hefði á vexti og 1,5 prósent vildu ekki svara. Hlutfall þeirra sem telja vexti lækka er hæst meðal fólks á aldrinum 18 til 29 ára, tæp 67 prósent. Hlutfallið er tæp 65 prósent í Reykjavík en lægst á Austurlandi, þar sem um þriðjungur telur að vextir lækki. Tæpur helmingur telur matvælaverð lækka Af þeim sem tóku afstöðu telja 48,3 prósent að matvælaverð myndi lækka ef Ísland gengi í Evrópusambandið. Þar af telja 7,1 prósent að það myndi lækka mikið og 41,2 prósent að það myndi lækka nokkuð. Tæp 40 prósent telja að matvælaverð myndi standa í stað en tólf prósent að það myndi hækka. Hlutfall þeirra sem telja matvælaverð lækka er hæst meðal fólks á aldrinum 18 til 29 ára, rúm 58 prósent. Munur kemur einnig fram eftir búsetu. Tæp 56 prósent Reykvíkinga telja að matvælaverð lækki. Hlutfallið er um 32 prósent á Vesturlandi og Vestfjörðum og svipað á Austurlandi. Alls sögðust 18,1 prósent ekki vita hvaða áhrif innganga hefði á matvælaverð og 1,7 prósent vildu ekki svara. Meirihluti telur undanþágur ólíklegar Af þeim sem tóku afstöðu telja 58,6 prósent ólíklegt að Ísland fengi varanlegar undanþágur í sjávarútvegi ef landið gengi í Evrópusambandið. Þar af telja 41,4 prósent það mjög ólíklegt og 17,2 prósent fremur ólíklegt. Fjórðungur, eða 25,2 prósent, telur varanlegar undanþágur líklegar en 16,2 prósent telja líkurnar hvorki miklar né litlar. Hlutfall þeirra sem telja undanþágur ólíklegar er lægst í Reykjavík, tæp 49 prósent. Það er hæst á Vesturlandi og Vestfjörðum, rúm 76 prósent, en yfir 70 prósent á bæði Norðurlandi og Austurlandi. Alls sögðust 16,6 prósent ekki vita hvort líklegt væri að varanlegar undanþágur fengjust og 1,4 prósent vildu ekki svara. Stjórnendur hlaðvarpsins Korter í kosningar, Pétur Krogh og Magnús Sigurbjörnsson, ræddu niðurstöður könnunarinnar í beinni útsendingu í kvöldfréttum okkar.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Skoðanakannanir Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira