Opnar sig um þunglyndi og depurð Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. ágúst 2026 13:09 George R. R. Martin hefur stritað við að klára The Winds of Winter síðustu fimmtán ár. EPA Rithöfundurinn George R. R. Martin hefur opnað sig um erfiða glíma við þunglyndi og sorg. Hann hafi misst vini sína, það sé erfitt að eldast og það versta mögulega handan við hornið.
Martin er þekktastur fyrir fantasíuseríuna Söng um ís og eld, sem var aðlöguð að sjónvarpsskjánum í hinum geysivinsælu Krúnuleikum (2011-19), og á farsælan rúmlega hálfrar aldar rithöfundarferil að baki. Sjá einnig: Nýtt verk frá Martin en samt kvarta aðdáendur Martin hefur verið fimmtán ár að skrifa The Winds of Winter, sjöttu og næstsíðustu bókina í seríunni og er hvergi nálægt því að vera búinn með hana. Seinagangur rithöfundarins hefur pirrað marga aðdáendur seríunnar og óttast margir að honum muni aldrei takast að ljúka við hana. Sorg, missir og þunglyndi Martin heldur úti blogginu Not a Blog þar sem hann segir tíðindi af sér, skrifum sínum og ýmsu efni sem tengist verkum hans. Nýjasta færslan á blogginu birtist í gær og hljómaði Martin heldur þungur á brún. „Síðasta færslan mín birtist hér 19. febrúar. Færslurnar sem hafa birst síðan hafa verið skrifaðar af mínum öflugu skósveinum. Ég er svo að eiga frábært starfsfólk og aðstoðarmenn... jafnvel með þeirra hjálp held ég samt áfram að dragast lengra og lengra aftur úr,“ skrifaði Martin í færslunni. Martin er með ýmis járn í eldinum.Vísir/Getty „Þetta ár hefur verið... streituvaldandi, vægast sagt. Það hefur verið svo mikið í gangi að það er yfirþyrmandi. Margir frábærir hlutir, spennandi hlutir. Draumar sem hafa ræst. En það hafa líka verið martraðir. Ég hef misst vini. Glímt við sorg og þunglyndi. Það versta er hugsanlega handan við hornið. Ég var sjötíu og sjö ár síðasta september og ég get sagt ykkur það, það er ekkert gaman að eldast. En það hafa líka verið æðislegir tímar,“ skrifaði hann. „Ætli það sé ekki bara lífið. Auðvitað vissi ég það. Ef þið hafið lesið sögurnar mínar, vitiði það.“ Martin sagði nóg að frétta og hann myndi reyna að halda fólki upplýstu. Skósveinar hans myndu hjálpa við það en færslurnar verði sennilega stuttar og hraðsoðnar. Að lokum nefndi hann einn nýlegan hápunkt, níu Emmy-tilnefningarnar sem sjónvarpsþættirnir A Knight of the Seven Kingdoms hlutu.
Game of Thrones Geðheilbrigði Bókmenntir Bandaríkin Tengdar fréttir George R. R. Martin á Íslandi: „Það er smá svalt hérna“ Fantasíuhöfundurinn George R. R. Martin, sem skrifaði Krúnuleikana, var í banastuði þegar á bókahátíðinni Iceland Noir sem hófst í dag en þar er hann heiðursgestur. Hann hafði orð á veðrinu. 12. nóvember 2025 21:08 Martin bað forstjóra HBO um hundrað þætti af Game of Thrones George R.R. Martin, rithöfundurinn sem skrifaði Game of Thrones bókina og aðrar bækur í þeim söguheimi sem sjónvarpsþættirnir vinsælu byggja á, hafði áhyggjur af því að gera þyrfti fleiri þáttaraðir til að gera sögunni skil. Alveg eins og við hin! 30. nóvember 2021 21:40 Hver er lykillinn að velgengni Game of Thrones? Hvað er það við GOT sem nær til þessara mismunandi hópa, þvert á aldur, áhugasvið og drullusokka-stig? 20. mars 2019 08:45 Mest lesið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fleiri fréttir Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Sjá meira
George R. R. Martin á Íslandi: „Það er smá svalt hérna“ Fantasíuhöfundurinn George R. R. Martin, sem skrifaði Krúnuleikana, var í banastuði þegar á bókahátíðinni Iceland Noir sem hófst í dag en þar er hann heiðursgestur. Hann hafði orð á veðrinu. 12. nóvember 2025 21:08
Martin bað forstjóra HBO um hundrað þætti af Game of Thrones George R.R. Martin, rithöfundurinn sem skrifaði Game of Thrones bókina og aðrar bækur í þeim söguheimi sem sjónvarpsþættirnir vinsælu byggja á, hafði áhyggjur af því að gera þyrfti fleiri þáttaraðir til að gera sögunni skil. Alveg eins og við hin! 30. nóvember 2021 21:40
Hver er lykillinn að velgengni Game of Thrones? Hvað er það við GOT sem nær til þessara mismunandi hópa, þvert á aldur, áhugasvið og drullusokka-stig? 20. mars 2019 08:45