Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. ágúst 2026 12:02 Frá slysstað á Hrútafjarðarheiði í gær, þar sem betur fór en á horfðist. Vísir/Viktor Freyr Lögregla segir að ökumenn á heimleið í gær á síðasta degi Verslunarmannahelgar hafi verið helst til of óþolinmóðir en tvö umferðarslys urðu vegna tilrauna til framúraksturs á Norðurlandi. Hátíðir á Akureyri og í Reykjavík voru í fjölmennari kanti en áður og skipuleggjendur í Eyjum eru sáttir við sitt.
Stærsta ferðahelgi ársins Verslunarmannahelgin er nú að baki og venju samkvæmt fóru tugi útihátíða fram um land allt. Að sögn skipuleggjenda Einnar með öllu á Akureyri mættu um eða yfir tuttugu þúsund manns í bæinn og hátíðin því með þeim stærstu í bænum hingað til. Þá voru skipuleggjendur í Eyjum einnig sáttir við fjölda gesta sem og skipuleggjendur Innipúkans í Reykjavík sem segja hátíðina með þeim fjölmennari hingað til, enn eigi eftir að taka saman endanlegan fjölda gesta. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu gekk umferð í borgina vel í gær en töluvert var um hraðakstur. Höskuldur B. Erlingsson aðalvarðstjóri lögreglunnar á Norðurlandi vestra sinnti útkalli vegna tveggja umferðarslysa á þjóðveginum í gær. „Fyrra slysið varð þarna rétt sunnan við Blönduós, sunnan við Vatnsdalshóla, þar var fyrra slysið og seinna slysið gerðist á Hrútafjarðarhálsi og það er stutt á milli, ekki nema kannski klukkutími milli þessara tveggja slysa og það má rekja bæði þessi slys til þess að um framúrakstur var að ræða og óaðgæslu.“ Stressið algjör óþarfi Hann segir mikla mildi að farþegar bílanna hafi ekki slasast alvarlega. Mikil óþolinmæði hafi verið í loftinu í gær. „Það var náttúrulega alveg gríðarlegur umferðarþungi og þá sérstaklega á suðurleið og það virtist vera einhverskonar stress sem okkur fannst vera algjör óþarfi því það var gullfallegt veður og sól og heiðskýrt og engin ástæða fyrir fólk að flýta sér. Það vantaði kannski pínu stillingu í umferðina.“ Lögregla hafi haft afskipti af tugum ökumanna fyrir of hraðan akstur. „Okkar upplifun með þessar verslunarmannahelgar að þá er það frekar föstudagurinn sem er svoleiðis með farið og fólk afslappaðra á mánudeginum á leið heim til sín en það virtist vera á báðum leggjum þessa helgina.“
Verslunarmannahelgin Umferð Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira