Heimir Hannesson er látinn Jón Þór Stefánsson skrifar 4. ágúst 2026 10:44 Heimir Hannesson kom víða við á löngum ferli. Aðsend Heimir Hannesson, lögfræðingur, fyrrverandi formaður Ferðamálaráðs Íslands og stofnandi Iceland Review, er látinn, níræður að aldri.
Hann lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ 30. júlí síðastliðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjölskyldu hans. Heimir fæddist 10. júlí 1936 á Akureyri, sonur hjónanna Hannesar J. Magnússonar, skólastjóra og rithöfundar, og Sólveigar Einarsdóttur húsfreyju. Heimir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1955 og prófi frá lagadeild HÍ sem héraðsdómslögmaður 1963. Samhliða laganámi var Heimir blaðamaður á Tímanum og umsjónarmaður vinsælla útvarpsþátta um íslensk og erlend málefni. Heimir var virkur í stjórnmálum á yngri árum og varaþingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi 1971-1978. Hann sat nokkur þing sem varamaður. Heimir var alla tíð stuðningsmaður samstarfs vestrænna lýðræðisríkja og aðildar Íslands að Atlantshafsbandalaginu. Hann var meðal stofnenda Varðbergs, félags ungra áhugamanna um vestræna samvinnu 1961 og síðar formaður félagsins. Hann tók virkan þátt í starfsemi Atlantic Treaty Association, samtökum áhugafólks um málefni Atlantshafsbandalagsins í einstökum aðildarríkjum. Árið 1963 stofnaði hann, ásamt Haraldi J. Hamar, tímaritið Iceland Review, í þeim tilgangi að miðla upplýsingum á ensku um íslensk málefni með áherslu á stjórnmál, menningararf og ferðaþjónustu. Tímaritið var prentað í lit og þótti metnaðarfullt. Góðar viðtökur í Evrópu og Norður-Ameríku skiptu verulegu máli fyrir markaðsstarf útflutningsfyrirtækja og flugfélög. Tímaritið hlaut skjótt lof fyrir framúrskarandi hönnun, segir í tilkynningunni. Fram kemur að Heimir hafi leikið mikilvægt hlutverk á bak við tjöldin í aðdraganda samningaviðræðna Íslendinga og Breta um lausn landhelgisdeilna árin 1972 og 1976. Þá segir að þeirri lítt þekktu en merku sögu verði gerð góð skil í væntanlegri bók Guðna Th. Jóhannessonar sagnfræðings og fyrrverandi forseta lýðveldisins um sögu landhelgisdeilna 1971-1974. Fyrri eiginkona Heimis var Birna Björnsdóttir, f. 2. febrúar 1936, d. 15. júní 1985. Þau áttu saman þrjú börn, Hannes, f. 25. mars 1960, Sigríði, f. 29. mars 1963 og Magnús, f. 25. ágúst 1964. Barnabörn þeirra eru tíu og barnabarnabörnin þrettán. Síðari eiginkona hans var Oddný Björgvinsdóttir. Þau skildu.
Andlát Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira