Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 31. júlí 2026 22:05 Elizabeth-Jane Ross hafði verið í Grikklandi í um hálfan mánuð þegar hún lést. Facebook Gríska lögreglan hefur til rannsóknar andlát skoskrar konu sem fannst látin í ferðatösku í yfirgefinni byggingu í Aþenu. Grunur leikur á að einhver hafi haft umráð yfir farsíma hennar eftir andlátið og sent skilaboð til að villa um fyrir þeim sem leituðu hennar.
Um er að ræða hina 38 ára gömlu Elisabeth-Jane Ross sem fannst látin í Kypseli-hverfi Aþenuborgar þann 18. júlí síðastliðinn. Heimilislaus maður fann lík hennar í yfirgefinni byggingu í hverfinu. Talið er að Ross hafi látist fimm til sjö dögum áður en hún fannst, en hún mun hafa ferðast til Grikklands frá Kýpur um tveimur vikum fyrir andlátið. Villt um fyrir yfirvöldum og vinum Talsmaður grísku lögreglunnar segir í samtali við breska ríkisútvarpið að beðið sé niðurstaðna úr eiturefnarannsóknum til að fá úr því skorið hvað varð Ross að aldurtila. „Við bíðum eftir niðurstöðum úr eiturefnarannsóknum til að ákvarða dánarorsök og ganga úr skugga um það hvort um saknæmt athæfi hafi verið að ræða, þar sem það kom ekki fram við fyrstu skoðun á líkinu,“ segir talsmaðurinn. Helena Smith, fréttaritari Guardian í Aþenu, segir að líkið hafi fundist í niðurníddri byggingu í miðborg Aþenu, á svæði sem sé í mikilli uppbyggingu og einkennist af fjölda leiguíbúða fyrir ferðamenn. Svæðið sé vinsælt meðal ferðamanna og ungra aðflutta útlendinga sem hafi ákveðið að setjast að í grísku höfuðborginni. Að sögn Smith átti Ross fjölskyldu í Edinborg en hafði jafnframt tengsl við Grikkland og hafði meðal annars dvalið hjá vini í Aþenu áður en hún hvarf. Þá segir Smith að svo virðist sem einhver hafi haft umráð yfir farsíma Ross eftir að hún lést og sent skilaboð í því skyni að villa um fyrir yfirvöldum og nánum vinum sem reyndu að hafa upp á henni. Enginn handtekinn John Swinney, forsætisráðherra Skotlands, hét fjölskylda Ross stuðningi frá bæði skosku ríkisstjórninni og breska utanríkisráðuneytinu. „Þetta er alveg skelfilegt mál sem greint var frá í nótt,“ segir Swinney. Talsmaður skosku lögreglunnar segir að lögreglan sé meðvituð um andlát skoskrar konu í Aþenu og í sambandi við grísk yfirvöld vegna málsins, auk þess sem lögreglumenn veiti fjölskyldu hennar í Skotlandi stuðning. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.
Grikkland Skotland Erlend sakamál Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira