Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Árni Sæberg skrifar 23. júlí 2026 16:37 Inga Auðbjörg, til vinstri, og Arndís Anna eru fyrrverandi mágkonur og, ef allt gengur eftir, verðandi platónskar sambýliskonur. Mágkonurnar fyrrverandi Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og Inga Auðbjörg Straumland hafa sett íbúðir sína á sölu í þeim tilgangi að fjármagna kaup á „draumakommúnu“. Þar ætla þær að búa saman ásamt sonum sínum, sem eru frændur.
Frá þessu greinir Inga Auðbjörg í færslu á Facebook undir yfirskriftinni Bíræfinn bísexúalisti selur bitastæða miðbæjareign, og gerir þar með góðlátlegt grín að dægurmálablaðamönnum landsins. „Eftir að hafa legið yfir fasteignaauglýsingum í örugglega áratug, gert ýmis tilboð, mælt og pælt, höfum við platónska ofurteymið, ég og Arndís Anna, gert tilboð í draumakommúnuna okkar,“ segir hún. Elda fyrir fjóra í stað tveggja Blaðamaður heyrði í Ingu og spurði hana hvað draumakommúna væri í þessu samhengi. „Við erum náttúrulega mágkonur, eða fyrrverandi mágkonur. Ég var gift bróður hennar Arndísar [Helga Hrafni Gunnarssyni] þannig að börnin okkar eru frændur. Okkur langar að búa saman og hafa hag af því að búa í fjölskyldu þar sem við getum skipt með okkur verkum, eldað fyrir fjóra í staðinn fyrir okkur tvær og eitthvað svoleiðis. En við erum ekki par.“ Nú hafi þær fundið fallegt raðhús í Laugardalnum þar sem þær geti haldið vel utan um sína óhefðbundnu fjölskyldu. Hugmyndin eldri en skilnaðurinn Er þetta hugmynd sem þið eruð búnar að vera lengi með í maganum? „Já, meira að segja frá því áður en að ég skildi við bróður hennar. Við erum oft búnar að gefast upp, höfum ekki fundið réttu eignina og svo bara flækist lífið oft fyrir. En núna finnst okkur vera rétti tíminn og rétta húsið til þess að geta haldið epísk Eurovision-partí. Ef að Eurovision lifnar einhvern tímann aftur við, sem er kannski ósennilegt.“ Hafi lesendur hug á að hjálpa „platónska ofurparinu“ að eignast „draumakommúnuna“ skoða íbúð Ingu Auðbjargar hér og íbúð Arndísar Önnu hér.
Fasteignamarkaður Hús og heimili Mest lesið Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Bíó og sjónvarp Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Í kossaflensi á listasýningu Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Lífið Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Sjá meira