Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. júlí 2026 13:13 Elon Musk með gervigreindarsköpuðum Ódysseifi. Auðkýfingurinn Elon Musk hefur ítrekað gagnrýnt leikstjórann Christopher Nolan síðustu mánuði vegna ráðningar hans á hörundsdökkum leikurum og trans manni í Ódysseifskviðu. Nú hefur Musk lýst því yfir að gervigreindararlíkan hans, Grok Imagine, muni ljúka við „sögulega nákvæmari“ aðlögun á Ódysseifskviðu fyrir árslok.
Ódysseifskviða Christophers Nolan hefur verið í bígerð síðustu þrjú ár og verið mikið til umræðu á netinu. Íhaldssamasti kimi netheima hefur bölvað því að aðalpersónur myndarinnar séu ekki grískari en raun ber vitni og að Nolan sé að tikka í box fjölmenningar með leikaravali sínu. Musk hefur verið fremstur í flokki þessa hóps og gagnrýnt sérstaklega að hin hörundsdökka Lupita Nyong'o fari með hlutverk Helenu fögru og að Elliot Page leiki hermanninn Sínon. Musk sagði Nolan vera á verðlaunaveiðum með ráðningunum og hafa „glatað heilindum sínum“. Elliot Page leikur hermanninn Sínon. Nýjasta útspil auðkýfingsins er að lýsa yfir því að hann muni gera „sögulega nákvæma“ útgáfu af Hómerskviðunni með gervigreindarlíkaninu Grok Imagine. „Fyrir árslok mun Grok Imagine búa til kvikmynd í fullri lengd upp úr Ódysseifskviðu sem er sögulega nákvæm og sönn list Hómers,“ skrifaði Musk í færslu á X og vísaði í þriggja mínútna klippu af samtali Ódysseifs og dísarinnar Kalypsó sem notandi miðilsins hafði látið gervigreindina búa til. Before this year ends, Grok Imagine will make a full-length movie of The Odyssey that is historically accurate and true to the art of Homer https://t.co/bVHzUmY9WN— Elon Musk (@elonmusk) July 22, 2026 Í annarri færslu sagðist Musk tilbúinn að fjármagna hundrað milljón dala kvikmynd upp úr kviðunni sem Mel Gibson myndi leikstýra. Ekkert bendir þó til þess að nokkuð slíkt sé í bígerð. Ramakvein netverja yfir Ódysseifskviðu Christophers Nolan virðist þó hafa haft lítil áhrif á almenna bíógesti og gagnrýnendur. Myndin rakaði inn um 264 milljónum Bandaríkjadala yfir helgina og hefur hlotið mikið lof hjá gagnrýnendum. Nolan hefur líka verið einarður í afstöðu sinni gegn gervigreindinni upp á síðkastið. „Hugmyndin um að hún [gervigreindin] skipti algjörlega út mannfólki og mennskri sköpun er fyrir mér algjört kjaftæði,“ sagði Nolan í nýlegu viðtali.
Elon Musk Bandaríkin Bíó og sjónvarp Gervigreind X (Twitter) Tengdar fréttir Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs The Odyssey eftir Christopher Nolan er epísk þriggja tíma ævintýraferð um Miðjarðarhafið þar sem Ódysseifur tekst á við reiði guðanna og ógnvænleg skrímsli en líka eigin sektarkennd. Sjónarspil, hasar og Hollywood-stjörnur ráða för þó Nolan setji sitt eigið handbragð á söguna með nútímalegri, ögn náttúrulausri og kristinni nálgun. 23. júlí 2026 07:02 Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Framkvæmdastjóri True North segir Ódysseifskviðu frábæra landkynningu og koma Íslandi enn á ný á kortið sem frábæran tökustað. Hápunktur tökutímabilsins hafi verið að sjá 450 Íslendinga hlaupa á eftir stórstjörnunni Matt Damon. 21. júlí 2026 19:30 Mest lesið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir Lífið Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar Lífið samstarf Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Tíska og hönnun Fleiri fréttir Skaut sig óvart í fótinn Iceguys reyndu við Hasselhoff Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Sjá meira
Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs The Odyssey eftir Christopher Nolan er epísk þriggja tíma ævintýraferð um Miðjarðarhafið þar sem Ódysseifur tekst á við reiði guðanna og ógnvænleg skrímsli en líka eigin sektarkennd. Sjónarspil, hasar og Hollywood-stjörnur ráða för þó Nolan setji sitt eigið handbragð á söguna með nútímalegri, ögn náttúrulausri og kristinni nálgun. 23. júlí 2026 07:02
Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Framkvæmdastjóri True North segir Ódysseifskviðu frábæra landkynningu og koma Íslandi enn á ný á kortið sem frábæran tökustað. Hápunktur tökutímabilsins hafi verið að sjá 450 Íslendinga hlaupa á eftir stórstjörnunni Matt Damon. 21. júlí 2026 19:30