Viðskipti innlent

Selur eftir þrjá­tíu og fimm ára rekstur

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Ásgeir segir að með tímanum hafi Hlíðarkaup orðið hans annað heimili.
Ásgeir segir að með tímanum hafi Hlíðarkaup orðið hans annað heimili. Hlíðarkaup

Ásgeir Björgvin Einarsson opnaði verslunina Hlíðarkaup á Sauðárkróki fyrir 35 árum. Nú hefur hann ákveðið að selja verslunina en segir ákvörðunina ekki hafa verið auðvelda. Nýir eigendur taki við á föstudaginn og hann voni að Hlíðarkaup verði áfram sá staður þar sem fólk komi ekki aðeins til að versla heldur einnig til að hittast, spjalla og eiga góða stund.

„Ég hef selt Hlíðarkaup. Ákvörðunin var ekki auðveld og henni fylgir vissulega söknuður en umfram allt þó þakklæti – þakklæti fyrir að hafa tekist að reka þetta fyrirtæki og þjónað þessu einstaka samfélagi í þrjá og hálfan áratug, segir Ásgeir í Facebook-færslu en hún hefur fengið rúmlega þúsund læk og nærri þrjú hundruð ummæli þar sem viðskiptavinir þakka honum fyrir þjónustuna og samverustundirnar í gegnum árin. 

Hann segir markmið og leiðarljós sitt hafa verið að reka góða verslun með verð og þjónustu í fyrirrúmi. Forréttindi séu að hafa fengið að umgangast viðskiptavini sína en hann hafi ekki gert sér grein fyrir hve stóran sess starfsfólk og viðskiptavinir verslunarinnar myndu eiga í lífi sínu. Með tímanum hafi Hlíðarkaup orðið hans annað heimili. 

„Í gegnum árin höfum við hist ótal sinnum við afgreiðsluborðið. Við höfum rætt um gleði og sorgir, veðrið, heimsmálin og íþróttir, um börnin sem uxu úr grasi og barnabörnin sem komu í heiminn. Við höfum hlegið saman, stundum haft áhyggjur saman en ávallt kvatt með brosi og hlýjum orðum. Það sem hófst sem viðskipti og varð smám saman að sterkum tengslum sem byggðust á trausti, virðingu og vináttu,“ skrifar Ásgeir. 

„Ég vil þakka ykkur öllum, hverju og einu, fyrir að hafa staðið við bakið á mér öll þessi ár, fyrir traustið sem þið hafið sýnt mér og fyrir öll litlu augnablikin sem hafa orðið að ógleymanlegum minningum.“

Hann hafi verið afar lánsamur með starfsfólk og segir enga verslun verða betri en fólkið sem þar starfi. 

„Starfsfólkið hefur tekið á móti viðskiptavinum af alúð, sýnt umhyggju og átt stóran þátt í að gera verslunina að meiru en bara stað þar sem fólk kaupir inn – frekar að stað þar sem allir þekkja alla, hittast og spjalla. Fyrir þetta vil ég færa öllu því góða fólki sem hefur starfað hjá mér í gegnum árin mitt innilegasta þakklæti. Ég mun sakna daglegrar samveru, hlátursins, samheldninnar og allra þeirra augnablika sem gerðu hvern vinnudag sérstakan.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×