Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Jón Þór Stefánsson skrifar 9. júlí 2026 17:59 Ólafur Ragnar og Þorbjörg Sigríður eru á öndverðum meiði hvað Evrópusambandið varðar Vísir/Arnar/Vilhelm Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, telur nokkuð ófréttnæmt að Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti lýðveldisins, tali fyrir því að fólk svari neitandi í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Það sé vegna þess að hann hafi á sínum stjórnmálaferli verið hrifnari af því að segja „nei“ en „já“.
Þetta kemur fram í færslu Þorbjargar á Facebook, sem birtist í kjölfar umræðu um að illa hafi verið talað um Ólaf Ragnar eftir að hann hafi lýst skoðun sinni á ESB-málinu. Sjá nánar: Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar „Það er alveg rétt að það á ekkert að gagnrýna Ólaf Ragnar Grímsson fyrir að tala gegn aðildarviðræðum við ESB,“ segir hún. „En það á heldur ekki að láta eins og skoðun hans sé ofboðslega fréttnæm.“ Þorbjörg minnist á að Ólafur hafi sem þingmaður Alþýðubandalagsins á síðustu áratugum síðustu aldar verið á móti aðild Íslands að EES-samningnum, NATÓ og EFTA. Þá hafi hann einnig verið andvígur því að bjórinn yrði leyfður á Íslandi. „Það hefði verið mun meiri frétt ef Ólafur Ragnar hefði sagt: skoðum þetta mál bara með opnum huga. Ólafur Ragnar er hrifinn af Nei-takkanum. Og það er bara fínt. En EES-samningurinn reyndist okkur samt ótrúlega vel. EFTA reyndist okkur vel. NATO er grundvallarþáttur fyrir öryggi og um leið fullveldi landsins. Að segja nei við EES, EFTA og NATO hefði haft miklar afleiðingar fyrir efnahag og fullveldi landsins,“ segir hún. Þorbjörg segir að fyrir EES-samninginn hafi heyrst varnarorð um fátækt og fullveldi. „Hætturnar voru taldar miklar m.a. af Ólafi Ragnari Grímssyni, sem hélt því t.d. fram að samningurinn byði þeirri hættu heim að útlendingar gætu eignast allar auðlindir landsins nema fiskveiðiauðlindina, sem var undanskilin í viðræðunum. En nú vitum við að hryllingssögurnar gengu ekki eftir. Og í dag værum við nær því að vera stödd í efnahagslegri hryllingssögu ef við værum án EES-samningsins,“ segir Þorbjörg. „Það er ekki skynsamlegt að berjast af krafti gegn samningi sem ekki hefur verið gerður. Gegn samningi sem ekki er orðinn til. Sagan hefur kennt okkur að það er átak að fara í gegnum umræðu um mikilvæg mál og vega og meta hvað er best fyrir Ísland. Það borgar sig hins vegar alltaf að skoða kostina.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ólafur Ragnar Grímsson Mest lesið Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Sjá meira