Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2026 13:32 Vuk Oskar Dimitrijevic fagnar sigurmarki sínu fyrir FH á móti Stjörnunni í apríl 2023. FH hefur ekki unnið Stjörnuna síðan. Vísir/Hulda Margrét FH-ingar taka á móti Stjörnumönnum í eina leik kvöldsins í Bestu deild karla í fótbolta en það er orðið langt síðan Hafnfirðingar fögnuðu sigri á nágrönnunum hinum megin við hraunið.
Síðasti sigurleikur FH á Stjörnunni kom 15. apríl 2023 eða fyrir rúmum þremur árum. Liðin hafa mæst níu sinnum í Bestu-deildinni síðan þá og meðan Stjörnumenn hafa unnið sjö leiki þá hafa FH-ingar aldrei náð í öll þrjú stigin. Stjarnan hefur náð í 23 stig samtals úr leikjunum níu á móti aðeins tveimur hjá FH. Markatalan er 24-9 Garðbæingum í vil. FH var reyndar 2-1 yfir í Garðabænum í fyrri leik liðanna í apríl síðastliðnum en Guðmundur Baldvin Nökkvason jafnaði metin í 2-2 og Andri Rúnar Bjarnason skoraði sigurmarkið fjórum mínútum fyrir leikslok. Kjartan Kári Halldórsson og Tómas Orri Róbertsson höfðu komið FH í 2-1 eftir að Stjörnumaðurinn Birnir Snær Ingason skoraði fyrsta mark leiksins. Síðast þegar FH fagnaði sigri í leik þessara liða þá skoraði Vuk Oskar Dimitrijevic eina markið á 63. mínútu en sá leikur var spilaður á frjálsíþróttavelli FH fyrir ofan aðalleikvanginn þeirra. Völlurinn var bæði gulur og ósléttur. Það þarf því að fara mun aftar í tímann til að finna síðasta sigurleik FH á Stjörnunni á aðalvelli sínum í Kaplakrika. Stjarnan er nefnilega taplaust í síðustu níu heimsóknum sínum á þann völl eða síðan FH vann 3-0 sigur í leik liðanna 4. júní 2017, eða fyrir rúmum níu árum. Steven Lennon, Kristján Flóki Finnbogason og Þórarinn Ingi Valdimarsson skoruðu þá mörk FH-liðsins. Leikur FH og Stjörnunnar hefst klukkan 19.15 í kvöld en bein útsending á Sýn Sport Ísland hefst klukkan 19.00.
Besta deild karla FH Stjarnan Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira