Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Kristján Már Unnarsson skrifar 2. júlí 2026 23:09 Drífa Bjarnadóttir, fiskeldisfræðingur og bareigandi. Egill Aðalsteinsson Endalok Klausturbleikju gætu þýtt fall annarrar eldisstöðvar í Skaftárhreppi, Lindarfisks í Meðallandi. Eigendur þeirrar stöðvar lokuðu bleikjuvinnslustöð sinni í Vík í Mýrdal, í trausti samstarfs við Klausturbleikju, en hafa núna í staðinn opnað barinn Syndabælið í vinnsluhúsinu.
Í kvöldfréttum Sýnar heimsóttum við lágreist hús í Vík en þar var um átta ára skeið rekin fiskvinnsla. Þar var þar til fyrir fjórum árum flökuð bleikja úr eldisstöð Lindarfisks á jörðinni Botnum í Meðallandi. Núna er húsið búið að fá nýtt útlit og nýtt hlutverk. Framkvæmdastjóri Lindarfisks, Drífa Bjarnadóttir fiskeldisfræðingur, er orðin bareigandi. „Við hættum með fiskvinnsluna af því að við ætluðum að fara í samstarf við Klausturbleikju. Þeir ætluðu að kaupa af okkur allan fisk. Þannig að við lokuðum vinnslunni hjá okkur í góðri trú og seldum öll tæki. Svo klikkaði það nú eitthvað,“ segir Drífa. Syndabælið í Vík í Mýrdal var áður vinnslustöð Lindarfisks.Egill Aðalsteinsson Eigendur Klausturbleikju lokuðu sem sagt sinni fiskvinnslu á Kirkjubæjarklaustri. Það þýddi að eigendur Lindarfisks stóðu uppi án vinnslustöðvar en áttu hins vegar tómt vinnsluhúsið í Vík. Þeirra niðurstaða var að breyta því í bar. „Bar fyrir heimamenn, hitting fyrir heimamenn.“ -Og þetta er dálítið sérstakt nafn? „Syndabælið? Já. Það verður að kalla hlutina réttum nöfnum. Bar er ekkert annað en syndabæli,“ svarar Drífa hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: Syndabælið, sem opnað var um síðustu helgi, er einnig matsölustaður og búið að koma þar fyrir gamaldags sófasettum. Eldhúsið bakatil er það eina sem minnir á gömlu fiskvinnsluna. En hvað verður núna um bleikjueldið í Meðallandi? „Bleikjueldið er ennþá til, þetta er ennþá barnið okkar. En það er bara orðið lítið. Og við ætlum bara að vera með bleikju á matseðli hér og halda því áfram. Þetta er náttúrulega fyrsta flokks hráefni.“ Frá bleikjueldisstöð Lindarfisks í Meðallandi í Skaftárhreppi.Einar Árnason Þegar við heimsóttum eldisstöð Lindarfisks á sínum tíma vegna þáttarins Um land allt sáum við stórfjölskylduna standa saman að framkvæmdum við að byggja upp stöðina. -Þið eruð búin að byggja upp þessa flottu bleikjueldisstöð. Þetta er náttúrulega synd. „Þetta er synd, það er alveg rétt. Það er búið að eyða miklum tíma í að byggja þetta upp. En svona er þetta,“ segir fiskeldisfræðingurinn. Gömul sófasett prýða Syndabælið.Egill Aðalsteinsson Drífa segir þó lítið mál að setja eldið aftur á fullt, svo fremi að til sé vinnsla til að taka við bleikjunni. „Það vantar bara sláturfélag, bara eins og gömlu sláturfélögin voru hérna með rollurnar. Vantar bara bleikjusláturfélag,“ segir Drífa Bjarnadóttir, fiskeldisfræðingur og bareigandi. Kynningarstiklu þáttarins um Meðalland frá árinu 2021 má sjá hér:
Fiskeldi Bleikja Mýrdalshreppur Skaftárhreppur Um land allt Matvælaframleiðsla Veitingastaðir Tengdar fréttir Klausturbleikjan fæst ekki lengur Ein þekktasta bleikjueldisstöð landsins, Klausturbleikja á Kirkjubæjarklaustri, hefur hætt starfsemi. Oddviti Skaftárhrepps segir þetta áfall fyrir lítið sveitarfélag og telur að strangt og dýrt eftirlit hafi átt þátt í því hvernig fór. 1. júlí 2026 21:41 Segir vatnið eina gullið sem kemur úr Skaftáreldahrauni Kalt vatn sem sprettur undan Skaftáreldahrauni er grunnur tveggja eldisstöðva í Skaftárhreppi sem báðar sérhæfa sig í bleikjueldi. Fiskeldisfræðingur, sem stýrir öðru fyrirtækinu, segir vatnið í raun eina gullið í Eldhrauni. 26. júlí 2020 22:10 Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Sjá meira
Klausturbleikjan fæst ekki lengur Ein þekktasta bleikjueldisstöð landsins, Klausturbleikja á Kirkjubæjarklaustri, hefur hætt starfsemi. Oddviti Skaftárhrepps segir þetta áfall fyrir lítið sveitarfélag og telur að strangt og dýrt eftirlit hafi átt þátt í því hvernig fór. 1. júlí 2026 21:41
Segir vatnið eina gullið sem kemur úr Skaftáreldahrauni Kalt vatn sem sprettur undan Skaftáreldahrauni er grunnur tveggja eldisstöðva í Skaftárhreppi sem báðar sérhæfa sig í bleikjueldi. Fiskeldisfræðingur, sem stýrir öðru fyrirtækinu, segir vatnið í raun eina gullið í Eldhrauni. 26. júlí 2020 22:10